Sprautur og aukaverkanir

Rannsóknir streyma nú fram á yfirborðið sem fjalla á einn eða annan hátt um stórhættulegar og grafalvarlegar aukaverkanir sóttvarnaraðgerða, þar á meðal sprautanna. 

Hvernig veit ég þetta? 

Jú, því ég les skrif og hlusta á orð manna sem fylgjast með, t.d. Substack Alex Berensonhlaðvarp Tom Woods og pistla Brownstone Institute. Og hunsa fréttastofu RÚV. Það hjálpar.

Lítið dæmi: Serious Adverse Events of Special Interest Following mRNA Vaccination in Randomized Trials

The excess risk of serious adverse events found in our study points to the need for formal harm-benefit analyses, particularly those that are stratified according to risk of serious COVID-19 outcomes such as hospitalization or death.

Þeir sem vilja lesa nánari umfjöllun um þessa rannsókn geta gert það á Substack Dr. Robert Mallone

Það fer að verða ansi erfitt að sópa öllum aukaverkunum sóttvarnaraðgerða og sprauta undir teppið. Ein leið er sú að þegja um niðurstöður rannsókna og láta eins og ekkert sé. Ég upplifi samt oftar og oftar í samræðum við fólk á förnum vegi að margir sjái á eftir að hafa látið glepjast til að samþykkja aðgerðir og þiggja sprautur (margir viðurkenna að þeir létu bara sprauta sig til að fá ferðafrelsið). Það er gott og gefur svolitla von um að hjarðhegðunin sé að fjara út og að næsta umferð hræðsluáróðurs verði ekki seld jafnauðveldlega.

En sjáum hvað setur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Afkimar internetsins geyma margar óyfirfarnar "rannsóknir" og skoðanir undarlegustu manna fyrir fólk sem vill velja sína niðurstöðu fyrirfram frekar en treysta alvöru rannsóknum sem vísindasamfélagið hefur yfirfarið.

Þó rannsóknir sýni að það geti verið hættulegt að ganga yfir götu þá þýðir það ekki að betra sé að leggjast og rúlla sér yfir.

Vagn (IP-tala skráð) 23.6.2022 kl. 13:13

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Veistu af hverju Alex Berenson var bannaður á Twitter? Því hann sá á gögnum að sprauturnar stöðvuðu ekki útbreiðslu. Núna er þetta almenn vitneskja.

Mjög almenn vitneskja.

Geir Ágústsson, 23.6.2022 kl. 13:27

3 identicon

Ég tek undir með Geir, kanski er von. Ég þurfti enga aðstoð neins staðar frá til að sjá að bólusetningarherferiðin var ekkert annað en þaulskipulögð árás á almenning. Það var heilaþvottur í gangi og ég held að margir séu farnir að átta sig á því. Það þarf nauðsynlega að finna út af hverju þessi heilaþvottur átti sér stað til að átta sig á því þegar þetta gerist aftur. Það sem kom mér mest á óvart var hversu auðvelt er að heilþvo svo stóran hóp af fólki. Vísindasamfélagið svokallað sem Vagn vitnar í hefur gert sig að algjöru fífli.

Vísindamenn eru aldrei allir sammála en vísindasamfélag Vagnsins er alltaf sammála.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 23.6.2022 kl. 13:52

4 identicon

Ruglukollurinn Alex Berenson var bannaður á Twitter, eftir fimm aðvaranir, vegna ýmissa fullyrðinga sem voru, og eru enn, ósannar. Að segja að hann hafi verið bannaður því hann sá á gögnum að sprauturnar stöðvuðu ekki útbreiðslu er eins og að segja að maður sem búinn er að drekka tvær vodkaflöskur og hálfan bjór hafi misst prófið vegna þess að hann drakk hálfan bjór.

Berenson kærði Tvitter, en gat ekki sýnt fram á sannleiksgildi orða sinna og tapaði. Tvitter má víst setja króníska lygara sem setja almenning í hættu á bannlista.

Vagn (IP-tala skráð) 23.6.2022 kl. 15:48

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Lögsókn Berenson er þvert á móti ennþá í gangi eftir að Twitter mistókst að láta vísa henni frá. Og þessar fimm aðvaranir, hverjar voru þær?

Geir Ágústsson, 23.6.2022 kl. 18:11

6 Smámynd: Jón Þórhallsson

Heldur þú að þeir á rúv séu vísvitandi að tala fyrir hönd vondu karlanna

í New World Order;

eða blæs það fólk bara til sóknar með eiturbrasinu í sinni fávisku?

Jón Þórhallsson, 23.6.2022 kl. 18:45

7 identicon

Þú lest víst skrif og hlustar á orð manna sem fylgjast með og ættir því að vera vel upplýstur um þetta allt. Megninu af rusli Berensons kastaði dómarinn á haugana í Apríl. Þú hlýtur að geta séð hjá mönnum sem fylgjast með hvaða grín stendur efir af lögsókn Berensons. Og hann hefur væntanlega upplýst fylgjendur, eins ákafur og hann er að veita ykkur upplýsingar, um allar aðvaranirnar. Ekkert sem ég hef lesið úr dómskjölum, mörgum vikum eftir atburðinn, hefði átt að koma þér á óvart. Varla eru vinir þínir að fela eitthvað fyrir þér.

"..Twitter constructed a robust five-strike COVID-19 misinformation policy and, ev.."      "In sum, plaintiff’s breach of contract and promissory estoppel claims survive for now. Plaintiff’s other claims are futile and are DISMISSED WITHOUT LEAVE TO AMEND."          https://s3.documentcloud.org/documents/21822565/govuscourtscand389677390_1.pdf

Vagn (IP-tala skráð) 23.6.2022 kl. 20:00

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Það er bara heilmikill lögfræðingur í þér. Var Geir H. Haarde ekki saklaus með öllu úr því það tókst bara að klína á hann einni ákæru? Er Twitter ekki saklaust af ásökunum af því það tókst að vísa sumum en ekki öllum ásökunum frá dómi? 

Berenson er með opið dómsmál gegn Twitter og jafnvel þótt einhverjum ákæruatriðum hafi verið vísað frá þá standa sum mikilvæg eftir. 

Þú mátt alveg halda með Twitter fyrir mér. Leikurinn er rétt að byrja.

Geir Ágústsson, 23.6.2022 kl. 20:33

9 Smámynd: Geir Ágústsson

Jón,

Af hverju réttu flestir upp hendi á ákveðinn hátt þegar Hitler keyrði framhjá? Ég veit það ekki enda var ég ekki þar. Kannski ótti. Kannski hatur á Gyðingum. Kannski leiðtogadýrkun. Kannski það sem hefur verið kallað fjöldadáleiðsla.

Geir Ágústsson, 23.6.2022 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband