Laugardagur, 28. ágúst 2021
Bólusettir veirudreifarar
Við vitum flest að við þurfum ekki bóluefni við öllu sem gengur. Flestir undir fimmtugu sleppa flensusprautunni árlegu. Enginn er sérstaklega hræddur við svolítið kvef og hálsbólgu og fæstir láta lækninn sinn vita af slíkum pestum. Hingað til höfum við þegið bóluefni við mjög alvarlegum sjúkdómum eins og mislingum og mænuveiki en um leið fullvissuð um að slík bóluefni eru rannsökuð í þaula yfir áratugi.
Nú er búið að snúa öllu á haus. Ungu fólki er nú sagt að bólusetja sig gegn einhverju sem herjar engu verr á líkama þess en flensa og nota til þess lítið rannsökuð efni sem byggjast á lítið rannsakaðri tækni.
Það má ganga á slíkt fólk og spyrja: Af hverju þá að bólusetja sig? Af hverju að þröngva þessum sprautum upp á börnin?
Og þá kemur dýrðlingurinn fram: Jú, ég er að bólusetja mig til að verja aðra! Ég er að reyna koma í veg fyrir að smita þá eldri og viðkvæmari!
En er ekki búið að bólusetja þá eldri og viðkvæmari og þeir komnir með nauðsynlega vörn?
Já, vissulega, en sjáðu til: Ég er fyrirmyndarborgari og tek áhættuna af þessum efnum fyrir þá sem þola ekki að koma nálægt veiru!
Þetta gæti auðvitað verið ákveðinn punktur. Vandamálið er bara að bólusettir geta alveg smitað eins og þeir óbólusettu. Rannsóknir hafa sýnt að veirumagnið í bólusettum getur verið alveg jafnmikið og óbólusettum. Bandarísk rannsókn komst til dæmis svona að orði:
Notably, 68% of individuals infected despite vaccination tested positive with Ct <25, including at least 8 who were asymptomatic at the time of testing. Our data substantiate the idea that vaccinated individuals who become infected with the Delta variant may have the potential to transmit SARS-CoV-2 to others.
(Hér er vert að nefna að hugtakið Ct, eða "cycle threshold", gefur til kynna hversu mikið af veiru er í líkamanum. Lág gildi, t.d. undir 25, gefa til kynna mikið veirumagn á meðan hærri gildi, t.d. yfir 35, gefa til kynna lítið veirumagn.)
Rannsókn frá Singapore komst svo að orði:
PCR cycle threshold (Ct) values were similar between both vaccinated and unvaccinated groups at diagnosis, but viral loads decreased faster in vaccinated individuals.
Bóluefnum er vissulega hampað fyrir að lækka veirumagnið hratt en fyrstu daga eftir smit er það samt svipað hjá bólusettum og óbólusettum, og er ekki líklegt að fólk sé mest smitandi í upphafi á meðan veiran er að breiða úr sér, jafnvel einkennalaust?
Einn læknir (sem af afskaplega hlynntur sprautunum) kemst svona að orði eftir að hafa fjallað um þessar rannsóknir og aðrar:
The substantial outbreaks in exceptionally well-vaccinated places like Israel, Malta and Vermont make it clear that pushing up vaccination rates does not guarantee control of Covid-19.
Þegar íslensku tölurnar eru skoðaðar virðast bóluefnin leiða til minna en 20% fækkunar í smitum og hafa lítið sem engin áhrif á innlagnir á spítala.
Hvað um það. Ef þú tókst sprauturnar til að verja þá eldri og viðkvæmnari þá ertu búin(n) að kaupa áróður eða úreltar upplýsingar. Hafir þú komist í námunda við veiruna þá getur þú smitast og smitað aðra, alveg eins og óbólusettir. Það er enginn munur á þér og óbólusettum annar en sá að þú tókst gríðarlega áhættu með ófyrirséðum afleiðingum. Þú skalt því ekki voga þér að kalla eftir sprautu í mín börn í nafni verndar á öðrum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:12 | Facebook
Athugasemdir
Hér er vitnað í Ísraelska rannsókn Geir, og það er enn verið að dæla sama glundrinu í börn og sem ábót á aldraða eins og það sé engin morgunn dagurinn. Á meðan lætur Hagstofa Íslands það vera að gefa út tölur um andlát.
https://www.wakingtimes.com/this-ends-the-debate-israeli-study-shows-natural-immunity-13x-more-effective-than-vaccines-at-stopping-delta/
Magnús Sigurðsson, 28.8.2021 kl. 10:47
Magnús,
Mjög áhugavert!
"This study demonstrated that natural immunity confers longer lasting and stronger protection against infection, symptomatic disease and hospitalization caused by the Delta variant of SARS-CoV-2, compared to the BNT162b2 two-dose vaccine-induced immunity."
https://www.medrxiv.org/con.../10.1101/2021.08.24.21262415v1
"... this study further questions the credibility of relying on vaccines, given that the study showed that the vaccinated were ultimately 13x as likely to be infected as those who were infected previously, and 27x more likely to be symptomatic."
https://www.wakingtimes.com/this-ends-the-debate-israeli.../
Geir Ágústsson, 28.8.2021 kl. 17:36
Sæll Geir,
Bólusettir halda áfram að smita bólusetta, en þetta er eins og með annað sem að EKKI má fjalla um í þessum ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðlum hér. Eins og þú veist þá segja þessir líka ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðlar nákvæmlega ekkert frá öllum þessum mótmælum erlendis, hvað þá þegar þeir í Japan eru hættir að nota þetta bóluefni frá bóluefnaframleiðandanum Moderna, eftir að tveir einstaklingar létust innan við fáeina daga frá bólusetningu (Two die in Japan after shots), svo og þegar að innihaldsefnið graphene oxið fannst í bóluefninu (Contaminant In Moderna Vaccines Is Metallic, Reacts To Magnets).
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.8.2021 kl. 18:55
Þetta stórhættulega eiturefni"Graphene Oxide" er reyndar falið og skráð undir öðrum nöfnum, eða sem bara "SM102" hjá svokallaða bóluefninu frá Moderna, nú og hjá Pfizer í Bretlandi þá er það skráð undir nafninu "ALC0305", nú og síðan er það skráð undir nöfnunum "ALC0159" og "BNT162b". Ég heyrði fyrst um þetta stórhættulega eiturefni frá henni Karen Kingston fyrrum starfsmanni hjá Pfizer á þessu myndbandi hérna: "...Dr. Jane Ruby, that video revealing that Graphene Oxide, a toxic poison was found in the Pfizer vaccines. Those researchers later found that the same applied to Moderna and Astrazeneca is being tested as a result of our reporting of the truth here."
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.8.2021 kl. 19:20
Tveir hafa látist í þessari bylgju, sá fyrsti var sprautaður en sá næsti ekki. Sprauturnar koma því ekki í veg fyrir dauðsföll, þó því sé stöðugt haldið fram að þær dragi úr líkum á alvarlegum veikindum hjá þeim sem verða fyrir því óláni að komast í snertingu við veiruna.
Frá því að byrjað var að sprauta lýðinn hér á landi hafa 30 látist eftir að fá sprautu, eða næstum jafn margir og eiga að hafa látist vegna veirunnar sjálfrar frá því að faraldurinn byrjaði (32).
Takið smá stund til að láta þetta sökkva inn...
Guðmundur Ásgeirsson, 28.8.2021 kl. 20:00
"Tveir hafa látist í þessari bylgju, sá fyrsti var sprautaður en sá næsti ekki."
Kannski dó hann minna alvarlega af því hann var sprautaður.
Nenni ekki að skoða meira um bóluefnin. Tók smá hring í gær, og fékk yfirgnæfandi tilfynningu um að ég væri að horfa á einhevrskonar meiriháttar Thalidómíd dísaster.
Enginn veit hvað þetta efni gerir, ekki í alvöru. Menn fleyta lærðum kenningum eins og: taugaskemmandi, (þekkt vandamál núna) veldur hjartaskemmdum (annað þekkt vandamál), er hugsanlega krabbameinsvaldandi (ekki óhugsandi - næstu 4-10 ár verða súper-skemmtileg) og einn vildi meina að þetta myndi leiða til þess að ónæmiskerfið bilaði. Þið vitið katastrófísk albilun.
Það eina sem við vitum er að það kemur ekki í veg fyrir Kína-kvefið.
Svo...
Ok.
Ásgrímur Hartmannsson, 28.8.2021 kl. 20:10
Já kannski lést hann friðsamlega í svefni af því hann var sprautaður en hinn sem var það ekki mátti líða vítiskvalir í langdregnu dauðastríði. Ef svo væri hefði það örugglega komið fram í fjölmiðlum sem vatn á myllu áróðursins fyrir því að allir eða sem flestir láti sprauta sig.
Samúð mín er hjá fjölskyldum hinna látnu.
Guðmundur Ásgeirsson, 28.8.2021 kl. 21:08
Sæll Guðmundur,
Þessar upplýsingar hjá Lyfjastofnun Ísland eru alls ekki nægilegar góðar með þessum líka lélegu súluritum, eða flokkaðar sem bara "aukaverkanir" og "alvarlegar aukaverkanir", svo og þar sem EKKI er minnst á dauðsföll eftir bólusetningar. Nú og auk þess þar sem aðrar upplýsingar eru þarna á ensku, eins og t.d. sjón- og augnavandamál 142 tilfelli. En það er eins og þessi stofnun sé í því að fela allar upplýsingar, eins og t.d. með þessar yfir 1.600 konur með allar þessar blæðingar með verkjunum o.s.frv.
Ég held að fólk sem að hefur farið í þessar svokölluðu bólusetningar ætti að athuga blóðkornin eða blóðið hjá sér, svo og ef mögulegt er að bera það saman við fyrir þessa svokölluðu bólusetningu.
Sjá myndbandið hérna
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.8.2021 kl. 22:06
Allar fréttir í Íslenskum fjölmiðum eru "ef þú færð covid þá deyrðu svo mikið að að þarf að jarða þig tvisvar."
Ásgrímur Hartmannsson, 28.8.2021 kl. 22:06
Sæll Ásgrímur,
Já, þessir ritstírðu og ríkisstyrktu fjölmiðla hér hafa staðið sig mjög vel í því að öskra smit, smit og fleiri smit, og minnast síðan aldrei á alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll eftir þessar svokölluðu bólusetningar. Nú og auk þess þá passa þessir ritstírðu og ríkisstyrktu fjölmiðla hér mjög vel uppá að minnast ekki á líflíkur þeirra sem fá Covid 19 veikindi, nú og hvað þá minnast á eitthvað til styrkja ónæmiskerfið, þar sem að allt gegnur út á það eitt að koma inn þessum svokölluðu bólusetningum.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.8.2021 kl. 22:39
leiðr.
þessir ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðla
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.8.2021 kl. 22:42
Ég sá um daginn viðtal við konukind í Ameríku sem faðir hennar hafði drepist úr kóvít.
Karlinn var vaxíneraður upp í topp en drafst samt úr kóvít. Það gerðist þannig að hann hætti að geta andað, barðist um að reyna að ná andanum, sem tók langan tíma, og drafst svo.
Dóttirin var afar þakklát fyrir að karlinn hafi verið vaxíneraður því annars hefði hann ábyggilega þjáðst miklu meira áður en hann drafst.
Gott ef hún var ekki á því líka að hann hefði orðið meira dauður ef hann hefði sleppt vaxíninu.
Þetta var í Ameríku.
Þorsteinn Siglaugsson, 28.8.2021 kl. 23:01
Sæll Nafni,
Ég kannast eitthvað við þetta sem að þú ert að tala um, eða sjá hérna:
Ég hef reyndar einnig verið athuga með þessi nýju alvarlegu margkerfis-bólguheilkenni (Multisystem Inflammatory Syndrome MIS-C) er 4.404 börn hafa fengið og 37 börn hafa látist af (samkvæmt CDC ) eftir þessar svokölluðu bólusetningar, en sem að menn ræða alls ekkert um hér á landi ?https://www.facebook.com/10000033.../videos/5966366726770669
Sjá einnig hérna varðandi "geldingar"? videos
https://www.openvaers.com/covid-data
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.8.2021 kl. 00:03
13,000 Deaths, Nearly 600,000 Adverse Events Reported After COVID Vaccines, as Debate Heats Up Over Boosters
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.8.2021 kl. 00:12
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.8.2021 kl. 13:39
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.8.2021 kl. 13:42
Dr. Robert Young Finds Graphene Oxide in All Four Vaccines and Other Disturbing Ingredients
https://www.thelibertybeacon.com/dr-robert-young-finds-graphene-oxide-in-all-four-vaccines-and-other-disturbing-ingredients/
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.8.2021 kl. 15:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.