Þriðjudagur, 27. júlí 2021
Pestarbælið við Suðurlandsbraut 34
Við Suðurlandsbraut 34 er löng röð frá morgni til kvölds af fólki á leið í skimun vegna veiru. Sumir eru þar til að fá ferðafrelsi eftir að hafa sóað 5 dögum í stofufangelsi, aðrir því þeir finna til einkenna, enn aðrir því þeir voru nálægt smituðum á einhverjum undangengnum dögum og sumir bara aðeins að taka stöðuna, svona til öryggis.
Fólk stendur í röðinni í um 20-40 mínútur, að mestu leyti utandyra en í návígi við annað fólk, bæði það í röðinni og annað fólk sem er að reyna troðast ferða sinna á þröngu svæðinu með mörgum bílum, þröngum göngustígum, runnum og köntum. Þetta er sennilega mesta pestarbæli landsins þar sem öllum með allskyns einkenni allskyns sýkinga er hrúgað saman í langan tíma, og endaspretturinn svo tekinn á þröngum gangi sem leiðir til afgreiðslu þar sem strikamerkið góða er skannað.
Þeir sem eru lasnir - af einhverju - eru sennilega ekki að gera sér og heilsu sinni mikinn greiða með því að leggja leið sína á Suðurlandsbrautina og standa þar í langri röð í langan tíma. Sennilega væri slíku fólki hollast að halda sig heima og jafna sig, óháð tegund sýkingar. Til vara ætti kannski að bjóða þeim sem mæta á mannmargt svæði að fá annan inngang og sleppa við langa röð og vera ekki að dreifa sínum veirum og bakteríum innan um þá sem eru fullfrískir og bara að láta skima sig til að sleppa úr stofufangelsi eða öðlast ferðafrelsi.
Um leið mætti e.t.v. hugleiða upp á nýtt aðstöðuna utan við pestarbælið. Ýmsar reglugerðir hins opinbera tala um fjarlægðarmörk og annað gott en við Suðurlandsbraut 34 ægir öllu saman og lítil von að komast í skimun nema vera í mikilli nánd við margt fólk í langan tíma, sumir hóstandi og hnerrandi en sagt að koma í skimun. Það þarf jú að rekja smitin vegna einnar veiru og skítt með að sextug kona sem er sennilega bara með svolitla hálsbólgu hafi verið rifin úr rúminu til að standa í röð. En hafi hún hina einu sönnu veiru þá er hún sennilega búin að dreifa henni á samferðafélaga sinn í röðinni þökk sé skimunarskyldurækninni.
Dag einn hringir smitrakningarteymið í einstakling sem greindist með veiruna frægu og spyr: Hvar hefur þú umgengist smitaða einstaklinga?
Svarið sem kemur þá verður: Í röðinni við Suðurlandsbraut 34.
Sú skýrsla verður aldrei send til fjölmiðla.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
COVID röðin stendur undir nafni.
Guðmundur Ásgeirsson, 27.7.2021 kl. 19:47
Ekki að gera lítið úr vísindum (sem virðast leiða til þess að hvert einasta ríki tekur upp sínar eigin nálganir á grímur, bóluefni, opnanir, lokanir, ferðalög, mælikvarða og hvaðeina), en að hrúga fólki saman á lítið svæði - jafnvel utandyra (sem má ekki í tilviki útihátíða eða tjaldstæða) - virkar handahófskennt og ófyrirsjáanlegt.
Geir Ágústsson, 27.7.2021 kl. 19:59
Hlýtur samt að einfalda smitrakninguna, ekki satt?
Guðmundur Ásgeirsson, 27.7.2021 kl. 20:06
Já auðvitað. Allir smitaðir koma úr einni röð. Smitaðir þar? Pass. Greindir smitaðir eftir röðina? Já.
Sagt öfugt: Ef þú varst á Suðurlandsbraut ertu líklegri en ella að enda í stofufangelsi.
Geir Ágústsson, 27.7.2021 kl. 21:15
Hei! Allir sem finna fyrir einkennum og telja sig sýkta komi niður á suðurlandsbraut að chilla í röð með öllum hinum sem eru skikkaðir í próf eftir óskiljanlegum prótokollum.
Gott tiltak. Best ef við næðum að smita 5000 manns á dag. Þá verður þessu lokið í október.
Jón Steinar Ragnarsson, 28.7.2021 kl. 20:25
Á meðan fólk tekur mark á þessum aðgerðum verður þessu aldrei lokið.
Næst verður þetta notað sem afsökun vegna flensu, svo vegna Noro-veiru, svo vegna hvers annars sem þeim dettur í hug.
Að eilífu.
Ásgrímur Hartmannsson, 29.7.2021 kl. 13:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.