Þriðjudagur, 1. júní 2021
Hvað varð um stöðu sérhæfðs ritara skrifstofustjóra?
Í apríl auglýsti dómsmálaráðuneytið eftir umsækjendum í stöðu sérhæfðs ritara skrifstofustjóra sem ég kallaði á sínum tíma draumastarfið enda lítið um hæfniskröfur og skyldur og nánast eins og í boði væru ókeypis laun.
Ég sótti vitaskuld um og bauðst til að sinna öllum verkefnum starfslýsingarinnar sem verktaki í 25% hlutastarfi en fékk ekkert svar við þeirri umsókn. Ekki er að sjá að ráðið hafi verið í stöðuna. Var hætt við allt saman eða búin til ný staða fyrir þann eða þá sem átti að koma fyrir í stjórnsýslunni sem þurfti ekki að auglýsa, hafi það verið markmiðið?
Þetta er allt á huldu en skýringar hljóta að vera væntanlegar.
34 vilja í dómsmálaráðuneytið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hæfi þitt var metið í raunheimum og útkoman var önnur en þú væntir. Þú stóðst ekki hæfniskröfurnar, þó litlar væru. Sem kom fæstum öðrum á óvart.
Vagn (IP-tala skráð) 1.6.2021 kl. 23:06
Vagn,
Það er ein tilgáta en það er lágmark að svara.
Geir Ágústsson, 2.6.2021 kl. 01:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.