Mánudagur, 10. maí 2021
Einkageirinn
Ég er mjög spennt að vera komin aftur yfir í einkageirann segir Maríjon Ósk Nóadóttir sem hefur verið ráðin til almannatengslafyrirtækisins Kvis þar sem hún kemur til með að sinna fjölmiðla- og lögfræðiráðgjöf.
Hérna fagnar ung kona því að vera aftur komin í einkageirann. Kannski er það óráðlegt. Hún var jú í öruggu starfi hjá hinu opinbera með tryggðan lífeyri, stanslausar launahækkanir og sennilega frekar afslappaðan vinnudag. Nú tekur við veðmál á kaupmátt lífeyris, troðfullur vinnudagur og hætta á atvinnumissi.
Kannski hefði Marijón Ósk frekar átt að sækja um stöðu upplýsingafulltrúa á skrifstofu Alþingis (100% starfshlutfall) og tryggja sér rólega vinnudaga.
En kannski ekki. Kannski Kvis sé hinn rétti áfangastaður fyrir Marijón Ósk. Nógu vel er a.m.k. búið að tilkynna um ráðningu hennar! (mbl, visir, vb, frettabladid) Maður er hreinlega orðinn spenntur fyrir frekari fregnum af Marijón!
Maríjon Ósk ráðin til Kvis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:58 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.