Sunnudagur, 14. febrúar 2021
Mjólkurverzlunin
(Mynd: Alþýðublaðið - 263. Tölublað (18.12.1968))
Vínbúðinni í Borgartúni verður lokað frá og með mánudeginum 22. febrúar og rekstri hætt í núverandi húsnæði.
ÁTVR harmar þessa niðurstöðu en því miður eru ekki aðrir valkostir að svo stöddu. Við biðjum viðskiptavini okkar afsökunar á þeim óþægindum sem lokunin hefur í för með sér en bendum á að næstu Vínbúðir eru í Kringlunni, Skeifunni og Skútuvogi, segir í tilkynningu ÁTVR (og blaðamaður bætir við að einnig sé verslun við Austurstræti).
Og þá er það mál úr sögunni, ekki satt?
Ég dvaldi um hríð í íbúð í Túnunum seinasta sumar og fannst frábært að geta skottast á fæti í áfengisverslunina í Borgartúni. Núna dugir sennilega ekkert minna en bifreið til að krækja í sopann. Það mætti segja að núverandi fyrirkomulag áfengisverslunar stuðli að aukinni umferð og þrýsting a stóru verslunarkjarnana að leggja land undir bílastæði.
Um leið dregur núverandi fyrirkomulag áfengisverslunar þróttinn úr minni kaupmönnum sem gætu annars starfrækt hverfisverslanir sem fólk getur skotist í á fæti eða hjóli.
Heilli verslun er lokað með einni tilkynningu og fólki bara bent á bílinn sinn.
Kannski sagan sé gleymd - tímar þegar sunnudagssala á mjólk var mál á borði sveitarstjórnar en ekki samkomulagsatriði milli neytenda og kaupmanna.
Því miður.
Rekstri Vínbúðarinnar í Borgartúni hætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:16 | Facebook
Athugasemdir
Væri ekki ráð að leyfa vínsölu í matvöruverslunum með ákveðnum skilyrðum.
Sigurður I B Guðmundsson, 14.2.2021 kl. 12:45
Sigurður,
Mikil ósköp! Hér er úr mörgu að velja ef menn eru ekki tilbúnir að líta á áfengi eins og venjulega neysluvöru eins og tóbak, sykur og fitu:
Í Noregi mega matvöruverslanir selja áfengi upp að ákveðnum styrkleika til kl. 20 á kvöldin. (Ég hef staðið í röð í norskri búð með bjórkippu í körfunni og þegar kom að mér var klukkan nýdottin í 20:00 og ég fékk ekki afgreiðslu.)
Það yrði strax til bóta. Hagabúðin gæti sparað mörgum viðskiptavininum bílferð í Kringluna eða á Seltjarnarnesið.
Geir Ágústsson, 14.2.2021 kl. 14:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.