Föstudagur, 25. desember 2020
Lögregluþjónn skilur ekki. Þá þarf að útskýra
Ég skil þetta bara ekki. Við erum búin að segja þetta skilmerkilega og margir eru að færa miklar fórnir. Fólk er eitt um jólin og svo framvegis, segir Rögnvaldur Ólafsson, aðalvarðstjóri hjá almannavörnum.
Það er því svigrúm til að bjóða upp á útskýringar úr því Veitinga-Víðir er ekki að koma samstarfsmanni sínum til aðstoðar.
Í grunninn snýst málið um örfá einföld atriði, og má þar nefna:
- Sumir einstaklingar telja sig vera að passa sig: Passa fjarlægð, snertingar, knús og kyss. Kannski fleiri innan ákveðins rýmis en reglugerð dagsins mælir fyrir um en engu að síður varfærni til staðar.
- Sumir einstaklingar telja sig einfaldlega ekki vera í smithættu eða þola að fá veiru og ná sér af henni.
- Sumir einstaklingar þurfa einfaldlega að lifa lífi sínu og ætla sér að gera það, óháð reglugerð dagsins. Veiran hefur að mörgu leyti verið sæmilega kortlögð með tillits til áhættuhópa, fýsileika lyfja og fyrirbyggjandi aðgerða og því engin ástæða til að fórna lífi sínu til að halda sér á lífi.
Þetta þurfa yfirvöld að skilja. Reglugerð dagsins bítur einfaldlega ekki eins og áður - ekki eins og í vor þegar enginn vissi neitt og allir voru sammála um að gera eitthvað og hvað sem er til að fletja út kúrvuna, eins og markmiðið var þá (en ekki lengur).
Rögnvaldur Ólafsson, aðalvarðstjóri hjá almannavörnum, ætti kannski að spara sorgina og depurðina og spyrja fólk einfaldlega: Hvað vakti fyrir þér? Veitinga-Víðir svarar örugglega í símann.
Ég skil þetta bara ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það fer enginn út að borða á málverkasölu. Með hliðsjón af jafnræðisreglu hljóta eigendur lokaðra vínveitingastaða því að vera byrjaðir að undirbúa langar raðir myndlistarsýninga á næstunni.
Guðmundur Ásgeirsson, 25.12.2020 kl. 18:15
Það er engin nýlunda að rekstraraðilar "tvíki" aðeins rekstrarform sitt. Þetta hefur átt sér stað fyrir núverandi veirutíma.
Barir byrja að selja samlokur.
Salareigendur bjóða utanaðkomandi að selja mat fyrir utan dyrnar, og fólki að borða innan við þær.
Hestur þykist vera asni, eða var það öfugt?
Geir Ágústsson, 25.12.2020 kl. 21:16
Það eru allir í heiminum orðnir hundleiðir á reglum yfirvalda sem ekki eru að skila þeim árangri sem verið er að leita eftir
Yfivöldin alls staðar virðast ekki hafa mjög góða hugmynd um hvernig veiran dreifist og þá er fjári erfitt að setja upp varnir
Svo það eru búnar til alskyns reglur svo fólk HALDI að verið sé að gera eitthvað
Grímur Kjartansson, 25.12.2020 kl. 22:36
Uppljóstrarar hafa aldrei þótt sérlega aðdáunarverðir.
Ragnhildur Kolka, 25.12.2020 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.