Þriðjudagur, 8. desember 2020
Hið opinbera tapar þegar þú vinnur
Í svolítilli frétt um (löglegan) frádrátt frá skattgreiðslum kemur ítrekað fram orðalag sem gefur til kynna að þegar þú heldur eftir launum þínum þá tapar hið opinbera peningum. Tapar!
Úr fréttinni:
- Ríkissjóður og sveitarfélög hafa orðið af tæplega 3,6 milljörðum króna í skatttekjur ...
- Einnig var spurt um áætlað tekjutap ríkissjóðs og sveitarfélaga ...
- Mat ráðuneytisins er að árið 2018 hafi tap ríkis og sveitarfélaga vegna þessa verið ...
Eina leiðin til að forða hinu opinbera frá svokölluðu tapi er að það nái af þér hverri einustu krónu, ekki satt? Því ef þú nærð að halda eftir einni krónu þá hefur hið opinbera tapað henni, ekki satt?
Ekki veit ég hvað vakir fyrir blaðamanni að apa þetta tungutak upp eftir stjórnmála- og embættismönnum. Kannski til að eygja vonir um þægilega innivinnu sem fjölmiðlafulltrúi einhvern daginn?
Tekjutap 3,6 milljarðar vegna gjafa lögaðila | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta er fasismi. Þetta er skólabókardæmi um fasisma, og ég meina þá "fasismi" eins og fyrirbærið er í orðabókinni, ekki sem blótsyrði.
Svo margir virðast halda að Ríkið eigi fólkið eða sé einhverskonar guð. (Sem er einmitt einfaldasta skilgreining á fasisma.)
Svo: ríkið tapar þegar við borgum minna í það.
Ásgrímur Hartmannsson, 8.12.2020 kl. 16:19
Ásgrímur,
Ég er sammála því. Ein orðabókarskilgreining hljómar svona:
"a tendency toward or actual exercise of strong autocratic or dictatorial control"
Margir segja hreinlega berum orðum í dag að ríkið þurfi að "stjórna" eða "hafa umsjón með" eða "vernda" eða "setja reglur" sem auka völd þess á kostnað samfélagsins. Berum orðum!
Eða gæti ekki hvaða stjórnmálamaður sem er hafa sagt þessi orð?
"The fundamental principle is that the State is not an end in itself, but the means to an end. It's the pre-condition of a higher form of human civilization, but it's not the cause."
(En hver sagði þetta í raun?)
Geir Ágústsson, 9.12.2020 kl. 07:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.