Föstudagur, 4. desember 2020
Takmarkanir og veira
Sóttvarnaraðgerðir eru af ýmsu tagi, og yfirleitt þær að fólk er beðið um að hósta í ermina, halda höndum hreinum og forðast að labba um hóstandi meðal eldra fólks. Hin nýja kynslóð sóttvarnaraðgerða (sem Kínverjar fundu upp í byrjun árs) er af öðru tagi. Heilbrigt fólk er lokað inni, fyrirtækjum er lokað með valdi og fjölskyldu-, atvinnu- og félagslíf gjörsamlega eyðilagt.
Og árangurinn, ef eingöngu er einblínt á veirusmit og öllum óbeinu og hræðilegu afleiðingunum sópað til hliðar? Sennilega enginn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það var einmitt í lok september sem ríkisstjórn Florida ákvað að taka upp þá nálgun sem mælt er með í Barrington yfirlýsingunni. Á þessari mynd sjáum við þróun smita síðan þá. Áhugavert væri að sjá einnig þróun dauðsfalla.
Þorsteinn Siglaugsson, 4.12.2020 kl. 21:32
Gáði: Síðan í byrjun september hefur daglegum dauðsföllum snarfækkað, þótt smitum hafi farið fjölgandi. Það er vísbending um að breytt stefna sé að skila raunverulegum árangri.
Þorsteinn Siglaugsson, 4.12.2020 kl. 21:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.