Laugardagur, 2. september 2017
Útgjaldaráðherra talar um efnahagsbólu
Óttarr Proppé segir að íslenska hagkerfið sé á toppi efnahagsbólu og að það sé ábyrgðarhluti að stjórna í slíku ástandi.
Það, út af fyrir sig, er rétt.
Það sem er líka rétt er að Óttarr talar aldrei fyrir minni ríkisútgjöldum og aldrei gegn auknum ríkisútgjöldum. Skattar, sem nú þegar eru í hæstu hæðum, geta ekki lækkað. Ríkið sópar til sín hverri krónu af uppsveiflunni og spennir útgjaldabogann fastar og fastar. Ekkert svigrúm er til annars er að moka fé í ríkisreksturinn.
Talar Óttarr gegn betri vitund? Hann væri þá ekki sá fyrsti. Þeir sem vinna við að eyða fé annarra missa oft vinnunna þegar þeir tala um að eyða minna af fé annarra. Freistingin er því alltaf sú að lofa því að eyða meira af fé annarra. Kjósendur verðlauna slíkt ábyrgðarleysi, því miður.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.