Fimmtudagur, 3. maí 2007
Fylgir öllu gamni alvara?
Ekki eru ţćr sérstaklega vinalegar kveđjurnar sem ég fć í kjölfar örlítilla skrifa minna á Ósýnilegu höndina, ţar sem ég óska Íslendingum til hamingju međ ađ geta haldiđ frídag 1. maí til ađ hitta mann og annan og njóta ávaxta kapítalismans. Hildur Edda Einarsdóttir gengur manna (og kvenna) lengst: "Vill ekki einhver gera okkur öllum ţann stóra greiđa ađ skjóta alla frjálshyggjumenn?"
Auđvitađ meinar stúlkan ţetta ekki bókstaflega (geri ég ráđ fyrir), en hiđ dapurlega er samt ađ nákvćmlega ţetta viđhorf ríkir ennţá hjá rauđliđum (ekki bara á Íslandi) ţótt draumur alrćđisríkisins sé nú ađ martröđ (m.a. međ falli Járntjaldsins). Í Danmörku og Ţýskalandi ganga rauđliđar um međ kyndla og kveikja í og ráđast á eignir, fólk og lögreglu. Á Kúbu og í Norđur-Kóreu eru andstćđingar hins pólitískt viđtekna skotnir, pyntađir eđa sviptir öllu frelsi. Í Sovétríkjunum sálugu földu menn skođanir sínar ef ţćr voru of frjálslyndar ađ mati yfirvalda, einfaldlega vegna ţess ađ annars yrđi Hildum ţess tíma ađ ósk sinni!
Hvernig stendur á ţví ađ gagnrýni á ţrúgandi ríkisvaldiđ og lepphunda ţess (verkalýđsfélög međal annars) er svona óvinsćl í eyrum vinstrimanna? Ţykir ţeim sárt ađ vita til ţess ađ án hins frjálsa markađar (frjáls = frjáls frá ríkinu) vćri lítiđ um ţađ sem viđ köllum lífsgćđi, frítími og ráđrúm til ađ sitja heima í góđum stól og nota háţróađa tölvutćkni til ađ skrifa um aftökur á frjálshyggjumönnum?
Hildur böđull bendir samt réttilega á ađ frjálshyggjumenn eru ekki hrifnir af ţví ađ ríkisvaldiđ afvopni almenning og einoki möguleikann á ađ verja eignir og einstaklinga fyrir árásum og ofbeldi. Ţeir sem vilja kynna sér ţetta viđhorf ćttu ađ skella sér hingađ. Ţeir sem vilja ekki kynna sér ţetta viđhorf geta látiđ sér íslenska dćgurmálaumrćđu og Hildir hennar nćgja.
Já og úr ţví ég er staddur á hinni ágćtu vefsíđu, Mises.org, er e.t.v. rétt ađ endurtaka lokaorđin úr ágćtri grein ţar um 1. maí ("Why Not Capital Day?"):
We are blessed to live in this time and place, since the American Dream is truly within reach. Of course, the dream itself is as far away as it has always been. It's just that the expansion of capital allows us to get there faster and easier than ever before. It's time we ended this misnamed celebration of labor day, and recognized what it is that truly makes our life easier: capital.
Happy Capital Day!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:51 | Facebook
Athugasemdir
Ég ţakka umfjöllunina félagi Geir!
hee (IP-tala skráđ) 3.5.2007 kl. 13:33
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.