Miðvikudagur, 13. febrúar 2013
Smyglið orðið mjög ábatasamt
Smygl á áfengi og sígarettum til Íslands er orðið mjög ábatasamt. Mikil hagnaðarvon dregur að sér fleiri og fleiri sem eru tilbúnir að leggja ýmislegt á sig.
Neytendur taka vel í hið lægra verð og kaupa sín vímuefni af nánast hverjum sem er. Glæpamenn eru oft með annað á boðstólnum en hinn löglega og hátt skattlagða markað. Unglingar í leit að sígarettum finna meira úrval á hinum svarta markaði en í næstu sjoppu. Kannabis og amfetamín eru mjög algengar söluvörur á hinum svarta markaði. Þeir lengra komnu fá svo kannski smjörþefinn af ólöglegu fjárhættuspili og jafnvel boð um að kaupa þjónustu vændiskvenna sem hírast við slæm skilyrði í neðanjarðarhagkerfinu.
Það var pólitísk ákvörðun að gera tóbak og áfengi á Íslandi miklu dýrara en víðast hvar annars staðar. Það var pólitísk ákvörðun að leiða hjá sér allar fyrirframþekktar afleiðingar þess að þenja út svarta markaðinn og sópa fleirum inn á hinn hann í leit að löglegum en dýrum varningi, og finna þar í leiðinni allt annað sem er ólöglegt en aðgengilegt og falt.
Ég veit ekki hvað ríkisvaldið sér að sjálfsábyrgð og forræði fullorðinna einstaklinga. Eitthvað er það samt.
![]() |
Teknir með 20 þúsund vindlinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll.
Fólk sem telur sig vita betur en aðrir hvað er öðrum fyrir bestu er orðið að mjög miklu vandamáli - bæði hér og erlendis.
Helgi (IP-tala skráð) 13.2.2013 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.