Miðvikudagur, 10. febrúar 2010
Vantar Steingrími og Indriða ekki gögn lengur?
Steingrímur J. getur ekki ákveðið sig. Þegar hann leggur fram og talar fyrir lagafrumvörpum sem steypa íslenskum skattgreiðendum í skuldafen um ókomin ár, þá er allt útrætt, öll gögn á borðinu og óhætt að skrifa undir. Allt tal um annað eru málalengingar og málþóf.
Þegar þjóðaratkvæðagreiðsla er sett á dagskránna, þá vantar skyndilega enn eina skýrsluna og allt verður voðalega óljóst og loðið, og vitaskuld ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar að kenna.
Gott og vel. Það er ruglingur í gangi á stjórnarheimilinu og eftir því er tekið. Steingrímur og Indriði eru bandamenn í Icesave-ánauðinni. Þeir kvaka í kór. Þannig eru stjórnmálin bara oft á tíðum.
Stendur fyrir sínum skrifum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.