Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Laugardagur, 24. ágúst 2024
Þegar fjölmiðlar sannreyna
Margir fjölmiðlar, a.m.k. þeir stærri, halda úti svokölluðum staðreyndaathugunum (fact check). Með notkun þeirra tókst þeim að ritskoða viðvaranir gegn hættulegum sprautum og aðgerðum gegn veiru, ásaka lækna og prófessora um að ljúga eða afvegaleiða og fylkja okkur enn þann dag í dag að baki utanríkisstefnu herskárra bandarískra yfirvalda í sérhverju máli.
Núna er verið að nota slíkar athuganir til að tryggja kjör Harris í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember.
Það er gert með því að mála allt sem Harris segir sem satt en í versta falli misvísandi, en allt sem Trump segir sem haugalygi, samsæriskenningar og uppspurna.
Tökum nýlegt dæmi.
Hérna er BBC að fara yfir útvaldar setningar úr munni Harris í nýlegri ræðu. Þar ásakar hún meðal annars Trump um að vilja takmarka aðgengi að getnaðarvörnum. Hann hefur aldrei sagt neitt slíkt og þverneitað fyrir þessa ásökun og BBC viðurkennir það. Og hvað kalla þeir þá fullyrðingu Harris? Jú, misvísandi (misleading)! Ekki lygi heldur misvísandi fullyrðingu.
Af hverju? Af því eitthvað fólk í kringum Trump hefur stutt skýrslu einhverra samtaka sem BBC vísar í Trump segja að hann kannist ekkert við.
Af hverju mátti ekki bara segja að hér hafi Harris logið blákalt? Sem hún gerði? Jú, því það gæti skaðað framboð hennar. Allt sem hún segir er satt eða í versata falli misvísandi. Þetta er eflaust ákveðið áður en svokölluð athugun á sannleiksgildi útvalinna setninga er sett í gang.
Blaðamenn geta verið duglegir og tengt saman allskyns setningar og fólk með veikum böndum og búið þannig til þá ásýnd að einhver hafi sagt eitthvað sem hann sagði alls ekki. Til þess er leikurinn gerður. Til þess eru þessar svokölluðu staðreyndaathuganir. Þær gera sannleika úr lygum, samsæriskenningar úr staðreyndum og lygara að boðberum sannleikans.
Er til of mikils mælst að biðja um heiðarleika? Já.
Er þorandi að treysta fjölmiðlum til að segja fréttir frekar en boða áróður? Nei.
Eigum við að láta fjölmiðla ákveða hverjir eru góðir og hverjir eru vondir? Nei.
Þarf eitthvað að sannreyna það frekar? Nei.
Föstudagur, 23. ágúst 2024
Villandi að tala um per fjölskyldu?
Til stendur að taka upp nýja skattheimtu á ökumenn. Hún á mögulega að bæta upp fyrir þá skattheimtu sem þegar er við lýði og er að miklu leyti sóað í allt annað en vegakerfið og innviðina. Hin nýja skattheimta á að fjármagna það sem gamla skattheimtan ætti að fjármagna, en gerir ekki.
Heldur einhver að hin nýja skattheimta muni í raun renna í það sem henni er ætlað að fjármagna?
Hvað um það. Blaðamenn eru að reyna að komast að því hvað stendur til. Hvað mun nýja skattheimtan kosta fjölskyldur? Þá kemur furðulegasta svar sem lengi hefur verið skjalfest:
Það er líka svolítið villandi að tala um per fjölskyldu myndi ég segja, þá ertu alltaf kominn með hærri tölu frekar en að það er talað um per bíl eða per einstakling.
Villandi að tala um per fjölskyldu af því það fær skattheimtuna til að líta illa út, með öðrum orðum.
Auðvitað er það rangt að það sé villandi að tala um per fjölskyldu. Fjölskyldur í grunninn eru sambúð barna og fullorðinna - vinnandi fullorðinna og barna í skóla. Þegar skattheimtan er aukin á vinnandi aðila þá dregst úr ráðstöfunartekjum allrar fjölskyldunnar. Fé til matarkaupa fyrir börnin skerðist. Það er því alveg hárrétt nálgun að tala um kostnað per fjölskyldu frekar en að telja bara með fullorðna ökumenn og gleyma því að þeir standa undir þeim sem ekki vinna og keyra ekki - krökkunum, farþegunum sem treysta ekki síður á bílinn en ökumennirnir.
Ökumenn eiga ekki von á góðu. Þeir fá að borga og borga í skiptum fyrir ekkert. Hvað er langt síðan seinustu mislægu gatnamót voru byggð í Reykjavík? Eða á höfuðborgarsvæðinu ef því er að skipta? Er það þetta við Smáralind? Ímyndum okkur umferðina þar ef það svæði væri eins og gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, eða Grensáss og Miklubrautar.
Manni fer að líða eins og aumingja manninum í myndinni Groundhog Day, sem vaknaði aftur og aftur á sama tíma á sama degi við sama þáttinn í útvarpsvekjaranum. Munurinn er samt sá að með nógu mörgum endurtekningum þá tókst honum að lokum að ná markmiði sínu. Ég ber enga slíka von fyrir hönd stjórnmálamanna á höfuðborgarsvæðinu og ráðherranna sem lofa þeim og kjósendum gulli og grænum skógum í skiptum fyrir enn einn sáttmálann, í skiptum fyrir enn einn skattinn sem hverfur í hítina.
![]() |
Reiknar með nokkur þúsund krónum á mánuði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 22. ágúst 2024
Þetta reddast?
Eldgosahrinur á Reykjanesi og jökulhlaup á Suðurlandi hafa minnt Íslendinga svolítið á sögulegt eðli sitt sem sumir hafa lýst með orðunum þetta reddast. Er flóð á leiðinni? Við færum okkur og endurreisum vegina. Er eldgos að framleiða hraun? Sprautum á það vatni og reisum varnargarða og sjáum hvað setur, en njótum útsýnisins á meðan ef hraunið heldur sér til hlés. Þarf að koma hundruðum Grindvíkinga fyrir þegar sprungur hafa tekið yfir bæinn þeirra? Komið bara, hér er þak yfir höfuðið.
Sem algjör andstæða þessa hugarfars kemur svo margt til hugar.
Það hefur til dæmis blasað við lengi að gatnakerfi höfuðborgasvæðisins er sprungið fyrir löngu á meðan almenningssamgöngur halda áfram að þenjast út í kostnaði án þess að laða að sér fleiri notendur. Sá sem kallar sig borgarstjóra í Reykjavík í dag bendir á að bílum hafi fjölgað um 15 þúsund á 5 árum en getur ekki bent á ein einustu gatnamót eða eina einustu umferðaræð sem hefur verið aðlöguð að aukinni umferð. Í staðinn er bent á einhverja enn eina útgáfu samgöngusáttmála sem virðist vera pappír sem flýgur ofan í skúffu um leið og hann hefur verið undirritaður enn einu sinni. Það eru áætlanir um að bæta þetta og gera hitt - skýrslur og samþykktir, minnisblöð og viljayfirlýsingar. Á meðan heldur umferðin áfram að þjappast saman.
Hvað væri búið að reisa mörg varnarmannvirki á Reykjanesi ef borgarstjóri og bæjarstjórar nágrannasveitarfélaganna væru við stjórnvölinn? Ég giska á engin, en samt væru milljarðar horfnir.
Annað dæmi er í raun afnám sjúkratrygginga fyrir þá sem þjást af liðslitum og þurfa nýja liði. Biðlistarnir hafa verið slíkir að þá mætti kalla hraðbraut að örorku. Samt er nóg af hæfu fólki til að kippa slíku í liðinn, bókstaflega. Ríkið gæti jafnvel sparað fé á að nýta sér slíka möguleika! Kannski er búið að laga þetta eitthvað í dag en að hugsa sér hvað þarf að framkalla af þjáningum áður en eitthvað er gert.
Til að gera illt verra virðist það svo vera að þegar framkvæmdaviljinn kemur fram þá er það í öllum röngu málunum. Hinu opinbera fannst ekkert mál að kafsigla hagkerfinu til að hægja á veiru, eða reyna það. Fjarlæg stríðsátök opna alla sjóði upp á gátt á meðan skattgreiðendur bíða á biðlistum dauðans. Ekki öll stríðsátök - bara þau sem falla að utanríkisstefnu Bandaríkjanna, svo því sé haldið til haga.
Hvernig stendur á þessu ástandi? Skortur á aðhaldi? Skortur á gagnrýnni hugsun? Kannski þetta reddast hugarfar sé farið að ganga of langt. Yfirvöld teyma almenning að bjargbrún. Bjargbrúnin blasir við. Leiðin að henni er greið og bein. Það er ekkert annað í sjónmáli en fallið niður hana.
Gleymum svo ekki loftslagsþvælunni, innflytjendamálunum, orkuskortinum og verðbólgunni og vaxtastiginu. Bjargbrúnin er orðin að örlögum margra nú þegar.
En kannski gýs Eyjafjallajökull aftur, eða Sigmundur Davíð verður forsætisráðherra aftur, og milljarðarnir flæða inn að nýju. Þetta reddast, ekki satt? En kannski ekki í þetta skipti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 21. ágúst 2024
Þegar orð missa merkingu sína algjörlega
Þetta með samgöngur á höfuðborgarsvæðinu virðist ekki vera einfalt mál. Ekki einfalt því einfaldar lausnir fá ekki að komast að. Stífluð gatnamót? Gerið þau mislæg. Töf á ljósum? Samstillið þau. Erfitt að beygja út af vegi? Setjið frárein. Vandamál fyrir gangandi og hjólandi? Byggið brú eða göng. Enginn í strætó? Minnkið vagna og fjölgið þeim fyrir sama verð og að láta risastórar rútur keyra tómar á lágri tíðni. Fáir að hjóla? Byggið ódýra, upplýsta og upphitaða hjólastíga sem eru ekki ofan í umferðinni.
Nei, þess í stað er alltaf talað um dýrustu mögulegu lausnir sem enginn skilur, enginn mun nýta sér og enginn hefur efni á.
Að ríkisvaldið tali núna um að eitthvað sé fullfjármagnað er svo brandari út af fyrir sig. Ríkisvaldið hefur ekki efni á eigin verkefnum, hvað þá verkefnum annarra. Það er bara fullfjármagnað í þeim skilningi að það er ennþá heimild á kreditkortinu, í bili.
En slíkt er eðli ríkisstjórnarsamstarfsins. Allir ráðherrar hennar mega ferðast um og lofa allskonar fyrir alla til að fjármagna eigin kosningabaráttu. Þegar kreditkortinu er svo hafnað - af bankanum eða þinginu eða hverju sem er - þá er það öðrum að kenna.
Núna má bæta orðinu fullfjármagnað á listann yfir orð sem hafa skipt algjörlega um skilgreiningu sem á ekkert skylt við fyrri skilgreiningu. Þar eru nú þegar orð eins og bóluefni, lýðheilsa, friður, jafnrétti og umhverfisvernd, svo eitthvað sé nefnt.
Kannski gerir það ekkert til að ráðherrar skrifi undir innistæðulausar ávísanir. Við erum kannski orðin vön því. Af því hlýst ekki meiri skaði en af innistæðulausum ávísunum annarra innan hins opinbera (en heldur ekki minni).
En látum ekki orðaleikina plata okkur. Sá sem þarf að fjármagna daglega neyslu með lántökum hefur ekki fullfjármagnað neitt þótt hann hafi slegið á nýtt lán fyrir framkvæmdum, og þurfa svo að slá á lán til að greiða afborganirnar.
![]() |
Sáttmálinn fullfjármagnaður næstu fimm árin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 20. ágúst 2024
Einblíndu á eitt prósent, gleymdu þrjátíu prósentum
Ný lágvöruverðsverslun var opnuð á Íslandi og er að slá í gegn og hafa áhrif á samkeppnina á matvörumarkaði. Gott mál.
Það er enginn svimandi gróði í því að reka matvöruverslun. Hagnaðarhlutfallið er lágt miðað við marga aðra starfsemi. En það er ástæða fyrir því. Neytendur þurfa að kaupa matvöru á hverjum degi, eða fyrir hvern dag, og eltast við tilboð og lægsta verðið og það hefur áhrif. Neytendur eru virkir frá degi til dags.
En kannski gleymist stundum heildarmyndin.
Hvað er að baki verðmiðanum á vörunni?
Álagningin, vissulega - það rekur enginn fyrirtæki á tapi til lengri tíma.
Innkaupsverðið skiptir máli.
Svo eru lagðir á miklir skattar á ýmsa matvöru.
En síðan eru það tollarnir. Þeir hækka ýmsa matvöru um tugi prósenta í verði.
Neytendur eru að leita að prósenti hér og prósenti þar þegar þeir eltast við bestu kjörin og kenna svo skorti á samkeppni um hátt vöruverð en gleyma tugum prósenta sem ríkisvaldið býr til af verði yfir því sem það gæti annars verið.
Ég veit ekki alveg hvernig á að breyta þessu hugarfari til að fleiri sjái raunverulega uppsprettu vöruverðsins: Hið opinbera sem framleiðir skatta, tolla og verðbólgu frekar en kaupmanninn sem fær frekar lítið hlutfallslega út úr rekstri sínum.
Kannski er engin leið að breyta því hugarfari, og gott og vel, neytendur sem um leið eru skattgreiðendur þurfa bara að borga fyrir hagfræðilega blindu sína.
En það má vona.
![]() |
Áhrif Príss: Bónus og Krónan lækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 19. ágúst 2024
Lækkum yfirdrátt Katrínar Jakobsdóttur
Framboðsteymi Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, óskar eftir styrkjum til að klára að fjármagna kostnaðinn við framboð Katrínar. Framboð sem fjaraði út í sandinn fyrir rúmlega tveimur mánuðum síðan.
Er Katrín komin í samkeppni við neyðarstarf? Já, vissulega.
En hún þarf ekki að örvænta. Væntanlega bíða hennar milljónir í biðlaunum og hvað það nú er sem stjórnmálastéttin skammtar sér.
Ég legg nú samt til að allir sem eigi krónu aflögu millifæri hana á Katrínu Jakobsdóttur. Ég meina þetta bókstaflega: Leggi á hana eina krónu. Það væri táknrænt fyrir forsætisráðherratíð hennar. Ein króna, það er það sem er eftir þegar skattar hennar og verðbólga er búin að hirða sitt.
Eigum við að sameinast um það? Ef allir taka þátt, og ungabörn meðtalin, þá gæti yfirdráttur Katrínar við einkarekna lánastofnun lækkað um 400 þúsund krónur, tæplega.
Hún gæti mögulega skilið skilaboðið, ólíkt þeim skilaboðum sem skoðanakannanir senda henni og hennar líkum.
![]() |
Katrín óskar eftir styrkjum til að loka gatinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 18. ágúst 2024
Regnbogafáninn snýr aftur
Á þessum árstíma fara gleðigöngurnar fram í borgum og bæjum. Þar fögnum við fjölbreytileikanum - því að við erum öll mismunandi, hneigjumst að mismunandi kynjum, veljum okkur mismunandi bólfélaga og lífsförunauta, klæðumst mismunandi og svona mætti lengi telja, en erum svo í raun bara fólk. Mismunandi fólk.
Lengi vel var regnbogafáninn tákn þessa fjölbreytileika. Hann er auðvelt að skilja. Litir regnbogans eru hvítt ljós sólar brotið upp í alla frumlitina. Regnbogafáninn táknar þannig mannkynið í öllum sínum fjölbreytileika.
En skyndilega var þetta ekki nóg. Allt í einu fóru einstaka litir fánans að tákna einhvern ákveðinn hóp kynhneigðar eða smekks á klæðaburði og þá runnu litirnir hratt út enda er fjölbreytileikinn nánast óendanlegur - í raun nær hann alveg niður í hvern og einn einstakling (við erum öll einstök, ekki satt?). Þá þurfti að flækja málin og búa til nýja fána með þríhyrningum og einhverjum táknum krotuðum á hann. Úr varð eitthvað afskræmi sem enginn skilur. Ekki nóg með það - þeir sem flögguðu einhverju öðru en nýjustu útgáfunni af fánanum fengu skammir í hattinn. Myndin við þessa færslu er vitnisburður um það (tekin í fyrra).
En núna er eins og regnbogafáninn sé tekinn við aftur sem megintáknmynd fyrir fjölbreytileika mannsins. Er það ímyndun í mér? Furðulegi fáninn með þríhyrningunum er undantekningin frekar en reglan þar sem ég hef séð til. Gafst einhver upp á því að útskýra ekki-regnbogafánanna? Völdum við að snúa aftur til regnbogans því hann segir í raun allt sem segja þarf, og gerir það með einföldum hætti?
Ef svo er þá fagna ég því. Regnboginn rúmar alla, líka miðaldra gagnkynhneigða hvíta karlmenn eins og mig. Hann inniheldur allt litrófið, líka liti sem sjást varla með berum augum. Hann hefði aldrei átt að víkja fyrir fánum sem eiga að þýða eitthvað en þýða í raun ekkert.
Velkominn aftur, regnbogafáni!
Föstudagur, 16. ágúst 2024
Fjölmiðlar, óþarfi?
Það var ánægjulegt að horfa og hlusta á nýlegan þátt Dagmála Morgunblaðsins undir fyrirsögninni Fjörbrot fjölmiðla. Þar ræddu þrír blaðamenn sem ég ber ákveðna virðingu fyrir, jafnvel mikla, um breytt landslag fjölmiðla og fjölmiðlunar og um greinilega naflaskoðun var að ræða, sem er sérhverri starfsgrein bráðholl.
Í grófum dráttum voru tvö sjónarmið til umræðu:
- Upplýsingar eru á hverju strái, nánast ókeypis, og óþarfi að bíða eftir fjölmiðlum til að bera þær á borð
- Upplýsingar þarf að setja í samhengi, og kalla á upplýsingar sem renna ekki út af sjálfsdáðum, og til þess þarf fjölmiðla
Ég er sammála báðum sjónarmiðum.
En ef það er eitthvað sem plagar fjölmiðla umfram allt þá er það eltingaleikur þeirra við það sem þeir telja vera vinsæl sjónarmið. Þeir brugðust allir á veirutímum þegar yfirvöld léku á þá eins og hljóðfæri - mögulega banabiti fjölmiðla um alla framtíð. Þeir taka allir sömu einhliða línuna í öllum utanríkismálum Bandaríkjanna sem Evrópa er látin taka þátt í. Þeir taka yfirleitt stöðu gegn almenningi þegar hann er búinn að fá upp í kok af eyðileggingu velferðarkerfisins og annarra stofnana sem venjulegt fólk reiðir sig á, gegn svimandi skattheimtu.
Fjölmiðlar segjast veita samhengi, krefjast svara og draga saman sjónarmið. Það gera þeir samt ekki. Bara alls ekki. Það er hvergi nærri því línan í þeirra vinnubrögðum.
Ef hefðbundnir fjölmiðlar eru að deyja þá er það af því þeir eru að fremja sjálfsmorð en ekki af því upplýsingar - skoðanir allra á samfélagsmiðlum - eru á hverju strái.
Mér finnst fjölmiðlar vera bráðnauðsynlegir, en bara ef þeir gera það sem þeir segjast vera að gera, ekki ef þeir eru bara gjallarhorn stjórnvalda.
Séu þeir að fremja sjálfsmorð þá þeir um það. Við hin finnum út úr lífi án þeirra.
Föstudagur, 16. ágúst 2024
Blaðamenn, er þetta eitthvað flókið?
Ég þarf sennilega að taka mér langt hlé frá fjölmiðlum áður en ég missi vitið. Þeir skrifa oft af svo mikilli vanþekkingu og jafnvel leti að ég gæti fjallað um það í mörgum ritgerðum. Það ætla ég ekki að gera en taka tvö nýleg dæmi.
Hérna fjallar DV um mann sem kallar sig Tommy Robinson. Hann er ekki í góða liðinu að mati blaðamanns og má því kalla nýnasista þótt hann standi fyrir fjöldahreyfingum fólks af öllum litum, stærðum og gerðum. Á einhvern undraverðan hátt á þessi maður að vera forsprakki götuóeirða og mótmæla á götum Bretlands þótt hann sé ekki einu sinni í Bretlandi - hann fjarstýrir einfaldlega tugþúsundum manna í gegnum samfélagsmiðla. En jæja, látum samsæriskenningar blaðamanns eiga sig. Það eru staðreyndavillurnar sem angra mig meira.
Eftir morð á þremur stúlkum í Southport í sumar dreifði Robinson falsfréttum um að gerandinn væri múslimi og hælisleitandi. English Defence League og fleiri nýnasistasamtök hvöttu og skipulögðu óeirðir í kjölfarið. Var meðal annars kveikt í heimilum hælisleitenda og ráðist á lögregluþjóna.
Sá sem skrifar svona þjáist annaðhvort af leti eða vanþekkingu, eða bæði. Þessi samtök sem eru nefnd þarna hafa ekki verið til í raun í yfir 10 ár og Tommy þessi ekki verið meðlimur síðan árið 2013 - hætti af ótta við ofbeldisöfl innan samtakanna. Það tekur 15 sekúndur að finna og 45 sekúndur að lesa ágæta umfjöllun Sky News um þessi samtök og hvort þau séu yfirleitt til í dag.
Blaðamaður DV bjó einfaldlega til einhverja þvælu til að réttlæta uppnefni sitt. Það er líka rétt að halda því til haga að á götum Bretlands eru það yfirgnæfandi venjulegir breskir skattgreiðendur að mótmæla.
Annað en saklausara dæmi um latan blaðamann er höfundur þessarar fréttar á vef Morgunblaðsins sem fjallar um möguleikann á kjarnorkuknúnum flutningaskipum. Blaðamaður skrifar:
Kjarnaknúin flutningaskip hafa þó hingað til ekki verið talinn fýsilegur kostur, en fyrsta slíka skipið var hannað í Bandaríkjunum árið 1962 og hét NS Savannah. Rekstur skipsins þótti ekki hagkvæmur og var notkun þess því fljótlega hætt.
Aftur þarf ekki meira en 15+45 sekúndur til að komast að því að þetta er úrelt viðhorf. Hérna er ágæt grein um sögu kjarnorkuknúinna skipa og það útskýrt hvernig nýleg þróun á litlum kjarnakljúfum er að fara gera kjarnorkuna mun nothæfari en áður. Hér er svo frétt frá 2023 um áætlanir Kínverja um að byggja risavaxin kjarnorkuknúin skip - frétt sem fór raunar víða í augum þeirra sem fylgjast með svona löguðu. Það gerir blaðamaður Morgunblaðsins greinilega ekki.
Er til of mikils mælst að blaðamenn vandi sig? Ég veit að þeir eru oftar en ekki í því að breiða út eitthvað fagnaðarerindi, eða ófrægingarerindi, frekar en að segja satt og rétt frá, og gott og blessað - þessir fjölmiðlar hafa herrum að þjóna sem eru ekki almenningur, en augljósar staðreyndarvillur? Nei takk.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.8.2024 kl. 09:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 15. ágúst 2024
Hvernig stendur á þessu ruggi á bátnum?
Mikil og hávær mótmæli, og í sumum tilvikum óeirðir, hafa nýlega gengið yfir Bretland. Allt auðvitað vegna rangupplýsinga og í boði nýnasista, en svona er það.
Það stefnir í að Bandaríkjamenn ætli að kjósa Trump aftur í embætti forseta. Allt auðvitað þrátt fyrir endalausar lygar hans og stórhættulegar fasistaskoðanir, en svona er það.
Nýlega sópuðust inn á Evrópuþingið fulltrúar úr öfgahægriflokkum hvaðanæva að úr álfunni. Allt einhverjir lýðskrumarar sem vilja henda öllu lituðu fólki úr álfunni, en svona er það.
Á Íslandi sópa nú að sér fylgi þeir flokkar sem vilja hægja á stjórnlausum innflutningi útlendinga inn í íslenska velferðarkerfið. Stórhættulegur uppgangur útlendingafælni og rasisma, en svona er það.
Fyrir þá sem fylgjast með fréttum, en fáu öðru, hlýtur heimurinn að líta sífellt drungalegri út. Fasistar á hverju götuhorni að sópa að sér fylgi og stuðningsmönnum. Nýnasistar að leiða fjöldahreyfingar í vestrænum lýðræðisríkjum. Trúðar að hafa sigur á þeim sem fjölmiðlarnir elska.
En lof mér að róa niður allar áhyggjur. Það er ástæða fyrir því að forfeður okkar ákváðu að kosningar væru góð hugmynd og að mótmæli almennra borgara ættu að fá að eiga sér stað. Málfrelsið átti að vera ósnertanlegt til að forðast ritskoðanir kónga og einræðisherra. Það hefur tekið langan tíma fyrir almenning að átta sig á þeirri vegferð - þeirri helferð - sem yfirvöld hafa í langan tíma leitt okkur á og núna er einfaldlega verið að bregðast við - spyrna við fótum.
Það tók 2-3 ár fyrir almenning að sjá í gegnum ásetning yfirvalda á veirutímum, sem var þó augljós nánast frá upphafi, og 20-30 ár að sjá í gegnum innflytjendastefnuna, loftslagsrausið og eyðileggingu gjaldmiðlanna, en fleiri og fleiri eru að komast þangað. Hömlulausar lygar veirutíma hröðuðu ferlinu hjá mörgum, og eyðilegging velferðarkerfa og gjaldmiðla eru að vekja aðra.
Mótmælin í Bretlandi eru skiljanleg afleiðing margra ára glórulausrar stefnu í innflytjendamálum þar á bæ. Yfirvofandi endurkjör Trump í embætti forseta Bandaríkjanna eru viðbragð almennings gegn hatri yfirvalda á lífsstíl og skoðunum venjulegs fólks. Kosningaúrslit til Evrópuþings eru táknræn skilaboð frá vaxandi hluta almennings um að Evrópusambandið sé að seilast of langt í völdum. Skoðanakannanir á Íslandi gefa til kynna að jafnvel íslenskur almenningur, sem lætur gjarnan allt yfir sig ganga, sé orðinn langþreyttur á rotnandi velferðarkerfi nema fyrir þá sem borga ekkert í það.
Það er engin ástæða til að hafa áhyggjur af almenningi. Miklu meiri áhyggjur þarf að hafa af yfirvöldum sem stjórna ennþá umræðunni í gegnum verktaka sína hjá fjölmiðlunum. Gott ráð er að leita annars staðar að fréttum um stöðu mála. Það er sem betur fer hægt, ef þú nennir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)