Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2024
Mánudagur, 1. apríl 2024
Ţegar fjölmiđlar velja ađ ţegja
Ég bý í frekar rólegu svćđi í útjađri Kaupmannahafnar og er hér međ eitt og bráđum tvö grunnskólabörn sem ég treysti á einn eđa annan hátt hinu opinbera fyrir. Bćđi ćtlast ég til ţess ađ ţau lćri eitthvađ í skólanum - námsefni, félagsţroska og annađ slíkt - en einnig hitt ađ ţau séu laus viđ heilaţvott. Ég hef ekki séđ merki um annađ en ađ ţetta traust sé verđskuldađ og fyrir ţađ er ég ţakklátur.
Á Íslandi virđist ţessu vera öfugt háttađ. Börnin tileinka sér mjög takmarkađ námsefni og eru heilaţvegin frá morgni til kvölds. Á veggjum skóla eru veggspjöld sem fá ţau til ađ endurskođa eigin líffrćđilega veruleika. Heilu vinahóparnir koma heim eftir heilaţvott frá utanađkomandi áróđurssamtökum og segjast vera af einhverju öđru kyni en ţví sem ţau raunverulega eru af. Mörgum ţeirra er í kjölfariđ beint í hendur skottulćkna sem leggja til ađ ţau stöđvi kynţroska sinn og undirbúi sig undir vegferđ sem endar á limlestingum á kynfćrum ţeirra og í kjölfariđ geldingu.
Yfir ţessu kćtast margir, svo sem lyfjafyrirtćkin og ţeir sem vilja fćkka mannkyninu, en ţví miđur fyrir ţessa ađila ţá verđur ţessi nýja dýrkun á geldingum stöđvuđ. Búiđ er ađ afhjúpa skottulćkningarnar ađ baki ţessari vegferđ og fjalla um ţađ á Íslandi. Öflugar raddir međ alţjóđlegan hlustendahóp, eins og Dr. Jordan Peterson og Michael Schellenberger, leggja nú alla sína ţyngd á ađ róa frá ţessari tilraunastarfsemi á börnum og tilrćđi viđ samkynhneigđ sem samţykktan hluta af mannlífinu.
Landlćknisembćttiđ breytir svörum sínum um hvađa vísindi liggja ađ baki međferđarúrrćđum á íslenskum börnum sem telja sig vera af öđru kyni. Viđbúiđ er ađ íslensk baráttusamtök fyrir auknu hringli í haus og líkama barna geri hiđ sama án ţess ađ hafa hátt um ţađ.
Íslendingar láta stroka nöfn sín út af lista yfir međlimi skttulćkningarsamtakanna.
Spilaborgin er hrunin og ţađ er stórmál.
En hvađ gera fjölmiđlar ţá? Á bćđi Íslandi og erlendis.
Ţeir ţegja.
Ţeir láta eins og ekkert sé. Eins og engin gróf og alvarleg mistök hafi veriđ gerđ međ ţví ađ hleypa erlendum skottulćkningum ađ íslenskum börnum og ungmennum.
En ţađ er ekki öll von úti. Ţökk sé gengdarlausum ritskođunum hefđbundinna fjölmiđla á veirutímum hefur myndast frjór og góđur jarđvegur fyrir valkosti viđ ţá. Hinir hefđbundnu fjölmiđlar gerđu sig ónothćfa og bjuggu til pláss fyrir málfrelsi á öđrum miđlum. Ţađ er til dćmis hćgt ađ treysta á Brotkast til ađ taka fyrir málin sem ađrir vilja ekki eđa ţora ekki ađ snerta međ priki. Eins má alveg ţakka Morgunblađinu fyrir ađ hafa ekki enn ritskođađ penna úti í bć, eins og mig, ţótt ţeir geti stuđađ einhverja.
Gott og vel, hefđbundnir fjölmiđlar geta ennţá sagt okkur frá úrslitum íţróttaleikja, veđurspánni og ţví hvađa frćga fólk er ađ giftast eđa skilja.
En fyrir ţungu og erfiđu málin ţarf ađ leita annađ.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)