Fimmtudagur, 15. október 2009
Af hverju?
Ég bara spyr.
Loftslag Jarðar er alveg rosalega breytilegt, hvort sem mannkynið hefur eitthvað um það að segja eða ekki. Besta ráðið til að tækla loftslagsbreytingar (sem af einhverjum ástæðum eru sjaldan kallaðar "loftslagshlýnun" lengur) er að gera mannkynið aðlögunarhæft. Og það gerist með frjálsum viðskiptum og tækniþróun, ef einhver er í vafa.
Svo já, ég spyr bara - hvað vakir fyrir finnskum stjórnmálamönnum að lofa einhverju og einhverju sem mun ekki verða mælt fyrr en eftir 10 kjörtímabil og jarðaför þeirra allra?
Finnar dragi úr losun um 80% fram til ársins 2050 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sennilega vegna þess að það þykir gott til vinsælda og þeir verða aldrei krafnir reikningsskila ef að þetta er bull
Jón Aðalsteinn Jónsson, 15.10.2009 kl. 22:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.