Sunnudagur, 5. ágúst 2007
Hvenær verður þessi iðja bönnuð?
Líkaminn hefur ekkert gott af því að sitja í háum hita í langan tíma. Ef margir taka upp á þessari iðju þá er sennilega hægt að tala um að "lýðheilsunni" sé ógnað.
Spurningin er bara: Hvenær verður löng sita í gufubaði orðin að lögreglumáli?
Heimsmeistaramót haldið í gufubaðsetu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það verður nú ekki langt, Íslendingar eru svo svakalega góðir í að koma með boð og bönn að það ætti nú ekki að vera neitt mál að fá þetta bannað.
Axel (IP-tala skráð) 5.8.2007 kl. 23:27
Amk að setja í lög hámarkstíma versus hitastig, aldur og hæð. Annað er hrein geðveiki!
Hópurinn sem stundar gufuböð "meira" og "stífar" en aðrir er lítill og dreifður hópur sem á ekki séns í vel skipulögð og vel fjármögnuð Lýðheilsuyfirvöld þegar þau fara af stað.
Geir Ágústsson, 6.8.2007 kl. 08:06
Ég ætla rétt að vona að þú sért að grínast. Að setja í landslög hversu fólk má vera lengi í gufubaði væri nú bara hámark afskiptaseminnar gagnvart borgurunum. Þá ætti líka að setja í lög hámarksþyngd á súkkulaði sem hver og einn má innbyrða á degi hverjum...
Sigurjón, 6.8.2007 kl. 12:50
Ég ætla rétt að vona að háðið skíni sólarsterkt í gegnum skrif mín, og að reykinga- og mataræðisfasistar skilji sneiðina!
Geir Ágústsson, 6.8.2007 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.