Sinubrunastjórnin

Nýtt gælunafn er að fæðast fyrir sitjandi ríkisstjórn Íslands: Sinubrunastjórnin.

Það er ekki nóg með að það eigi að eyða seinustu sjávarplássunum á landinu með ofurskattlagningu sem stenst jafnvel ekki lög heldur á að sjálfvirknivæða ríkisútgjöld til velferðarmála. Milljörðum hefur verið lofað í stríðsrekstur og búið að leggja til hærri skatta á nánast allt sem kalla mætti auðlind, svo sem heitt vatn. 

Gleymum svo ekki vandræðum einstaka ráðherra sem vilja bæði halda og sleppa: Dómsmálaráðherra í máli aðstoðarríkissaksóknara sem situr heima hjá sér á fullum launum eins lengi og hann nennir, ráðherranum sem fékk hús nánast upp í hendurnar frá bankanum sínum (og átti í einhverju ástarsambandi sem öllum er sama um en blaðamönnum fannst mjög athyglisvert) og svo menntamálaráðherranum sem les ensku eins og 8 ára barn. Listinn yfir vandræðamál lengist með hverjum degi.

Í stjórnarandstöðu er að vísu bara einn flokkur, Miðflokkurinn, en það er kannski óþarfi að hamast of mikið í stjórnarandstöðu með þingmeirihluta sem hefur meiri áhyggjur af reglum um klæðaburð en stóru málin.t

Valkyrjurnar í verkstjórninni miklu eru svo sannarlega að taka viðurnefni sitt inn að hjartastað og velja þá sem eiga að falla á vígvellinum, fólk og fyrirtæki.

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það sem hann sagði.

Guðjón E. Hreinberg, 24.6.2025 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og fjórtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband