Sunnudagur, 15. júní 2025
Bílskúrsútilegan
Manstu eftir fjöldasöng fræga fólksins í sjónvarpinu þar sem verið var að sannfæra fólk um að ferðast innanhúss og hittast í að hámarki 19 manna hópum en ekki 21, 11, 29 eða einhver önnur handahófskennd tala? Myndir til upprifjunar.
Nú mátti kannski afsaka yfirvöld aðeins með því að veiran var tiltölulega nýtilkomin og páskafríið að skella á með tilheyrandi mannamótum, og kannski alveg í lagi að koma sakleysislegum viðvörunum á framfæri með notkun fræga fólksins. En þetta var annað og meira. Þetta var áminning um að reglugerð væri í gildi sem gæti réttlætt lögregluheimsóknir í fjölskylduboð. Þetta var hamar málaður eins og rós. Fræga fólkið, alltaf tilbúið að sjást sem mest á skjánum, hoppaði auðvitað á vagninn. Nytsamir sakleysingjar eins og svo oft áður.
Með því að loka fólk heima hjá sér með hótunum og hræðsluáróðri náðist nákvæmlega enginn árangur. Því var seinkað að veiran næði til hraustra og heilbrigðra einstaklinga sem gætu byggt upp öflugt hjarðónæmi til varnar veikbyggðari og heilsuveilari einstaklingum. Krakkar misstu af skóla og fólk af vinnu og félagslífi. Margir leituðu í áfengi. Krakkar flosnuðu úr námi. Fyrirtæki fóru á hausinn eða sukku í skuldir, gjarnan hvoru tveggja.
Síðan komu sprauturnar sem tóku marga af lífi og örkumluðu aðra, án mælanlegra áhrifa á smit og dauðsföll, og fyrir marga lækning mun verri en sjúkdómurinn.
Hvernig var það, á ekki að fara gera úttekt á þessu og koma í veg fyrir að önnur eins mistök verði gerð? Eða þurfum við að bíða eftir því að kjósendur losi sig við fyrrverandi landlækni af þingi?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Smá upprifjun, áður en byrjað var að sprauta fólk með eitrinu þá lá ljóst fyrir að vírusinn var ekki hættulegur og enginn vissi hvað var í þessum tilraunasprautum. Það var bókstaflega lamið inn í fólk að þetta væri eina leiðin úr þessum vandræðum sem voru engin vandræði.
Kristinn Bjarnason, 15.6.2025 kl. 18:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning