Sunnudagur, 15. júní 2025
Tekjuskattur af engum tekjum
Í umfjöllun DV kemur fram að á Íslandi sé hægt að innheimta tekjuskatt af einstaklingi með engar tekjur. Sönnunarbyrðin liggur hjá skattgreiðenda, að sanna fyrir yfirvöldum hvernig viðkomandi framfleytti sér. Undirliggjandi sú ósannaða ásökun að viðkomandi sé að skjóta undan skatti. Sekur, uns sakleysi er sannað.
Svona lagað kemur mér ekki á óvart. Yfirvöld geta gert það sem þeim sýnist. Setið á umsóknum, áætlað, svipt, leiðrétt, haldið eftir, lokað á. Borgararnir algjörlega valdalausir þegar ríkið úrskurðar í málum ríkis gegn einstaklingum.
Veirutímar kenndu okkur að með svolitlum fjöldasöng fræga fólksins í sjónvarpi er hægt að sannfæra almenning um hvað sem er og því engin ástæða fyrir hið opinbera að breyta einhverju. Aðhaldið er ekki til staðar með örfáum undantekningum eins og Samtökum skattgreiðenda og sjálfstæðra blaðamanna eins og Frosta Logasonar.
Og þess vegna er hægt að innheimta tekjuskatt í fjarveru tekna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er samt óútskýrt í málinu og mögulega verðugt rannsóknarefni hvernig á því stendur að manneskja með engar tekjur árum saman sé enn á lífi.
Guðmundur Ásgeirsson, 15.6.2025 kl. 18:52
Guðmundur,
Mamma mín lifir enn þrátt fyrir mörg ár af "tekjuleysi" þegar ég og systkini mín vorum að vaxa úr grasi. Ég held að hugmyndin "samband" eða "hjónaband" eigi að heimila einhvers konar verkaskiptingu þegar kemur að börnum og heimili, en hafi gleymst.
Geir Ágústsson, 15.6.2025 kl. 20:15
Í þessu máli kom fram að framtaldar tekjur sambýlismanns konunnar hefðu verið langt frá því að teljast geta staðið undir framfærslu fjölskyldunnar. Það er ekki öfundsvert og fólk sem þarf að búa við svo slæma stöðu á alla samúð skilið. Kannski hafa þau notið stuðnings frá ættingjum eða öðru velgjörðarfólki til að framfleyta sér í þessum erfiðleikum, vonandi er þannig í pottinn búið frekar en að eitthvað óeðlilegt búi þar að baki.
Guðmundur Ásgeirsson, 15.6.2025 kl. 20:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning