Fjölmiðlar og raunveruleikinn

Hér fyrir neðan er mynd. Á henni er samanburður: Hvað telur meirihluti þátttakenda í könnun (í bandarísku samhengi) vera ákveðið hlutfall, og hvert er hið rétta hlutfall. Þessi mynd segir sögu, sem er sú að við vitum í raun mjög lítið um okkar raunveruleika. Og hvernig stendur á því?

unnamed

Kannski er hægt að benda á fjölmiðla hérna. Eru þeir að bera á borð heimsmynd sem er allt önnur en raunveruleikinn? Auðvitað. Fréttir snúast um að ýkja vandamál, ekki lýsa þeim. Frétt um að fátækt í heiminum hafi minnkað er léleg söluvara. Frétt um að læsi kvenna sé á uppleið í heiminum er varla lesin.

En þetta eru bara vitlausir Bandaríkjamenn að svara könnun! Við í Evrópu erum upplýstari en þetta! Við vitum hversu stórt hlutfall samfélagsins er samkynhneigt, og hvaða hlutfall kvenna í heiminum kann að lesa sér til gagns!

Gott og vel, upplýsti Evrópubúi, skelltu þér þá í eitt af mörgum prófum Gapminder og sjáðu hversu illa þú fellur. Þar er hægt að prófa sig í þekkingu á fátækt, sjálfbærnimarkmiðum, umhverfisvernd og hvaðeina. 

Upphafsmaður þess konar prófunar á almennri vanþekkingu almennings á mikilvægum staðreyndum, Hans Rosling heitinn, stríddi oft háskólanemendum sínum á því að þeir vissu minna en sá sem giskaði af handahófi á svörin, nefnilega simpansinn. Ekki til að letja nemendur sínar, heldur hvetja. 

Ég held að það sé hollt og gott að endurskoða raunverulegt vitneskjustig sitt á heiminum. Neysla á fréttum er mögulega leið til að minnka slíkt vitneskjustig, þótt neysla á fréttum sé um leið mikilvæg af ýmsum ástæðum.

En ekki láta plata þig.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Sennilega eru miðlar eins og X, Google, Facebook o.fl. jafnvel áhrifameiri í að skekkja heimsmynd okkar. Þeirra algrím leitast við að mata þig á því sem þú vilt helst heyra og sjá frekar en því sem er rétt. Mata þig, óumbeðið, á öllu sem á einhvern hátt styrkir þig í trúnni, án minnsta tillits til sannleiksgildis.

Ef þú trúir því að jörðin sé flöt þá færð þú greinar, leitarniðurstöður og umræður um það að jörðin sé flöt frekar en um það hvort jörðin sé flöt. Fljótt fer þér að finnast sem stór hluti jarðarbúa sé þér sammála, að mikið sé rætt um það að jörðin sé flöt og að vísindasamfélagið sé á villigötum. Sannfæring þín verður svo sterk að engin rök og sannanir fá þig til að trúa öðru. Þú hefur fundið sannleikan á netinu og stjórnvöld, gáfumenni, mennta og vísindastofnanir hafa rangt fyrir sér, sennilega af annarlegum hvötum.

Vagn (IP-tala skráð) 31.5.2025 kl. 14:17

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Þetta er auðvitað rétt hjá þér og því mikilvægt að láta þá ekki mata sig. Veirutímar eru mjög gott dæmi um slíka mötun sem gekk svo langt að venjulegt fólk taldi það vera skyldu sína að minna á grímur og handahófskenndar fjarlægðartakmarkanir því samfélagsmiðlar bældu niður öll rökin gegn vitleysunni. Var þá gott að hafa aðgang aö öðrum heimildum.

Geir Ágústsson, 31.5.2025 kl. 14:27

3 identicon

" Var þá gott að hafa aðgang aö öðrum heimildum." ...sem, hafa undantekningarlaust sýnt sig vera margfalt verri í að miðla einhverju af viti en meginstraumsfjölmiðlar, stjórnvöld og vísindasamfélagið. Jörðin verður ekki flöt þó þú trúir einhverjum vafasömum netsíðum betur en öllum öðrum. Grímur og fjarlægðartakmarkanir eru marg rannsakaðar og viðurkenndar aðferðir sem í áratugi hafa sýnt sig virka eins og til er ætlast....En þú hefur auðvitað fundið sannleikan einhverstaðar á netinu og stjórnvöld, gáfumenni, mennta og vísindastofnanir hafa rangt fyrir sér, sennilega af annarlegum hvötum.

Vagn (IP-tala skráð) 31.5.2025 kl. 16:28

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Þvert á móti. Skal finna tengil á leiðbeiningar WHO sem hurfu á undarlegan hátt úr umræðunni. Nei, RÚV fjallaði ekki um það.

Geir Ágústsson, 31.5.2025 kl. 17:27

5 identicon

RÚV fjallaði heldur ekki um þessi frægu ummæli. Ætli sé eitthvað undarlegt plott í gangi hjá RÚV til að halda merkilegum upplýsingum frá þér?

Vagn (IP-tala skráð) 31.5.2025 kl. 18:30

6 Smámynd: Geir Ágústsson

Leiðbeiningar WHO árið 2019:

9789241516839-eng.pdf

Svolítil umfjöllun um einhverjar af þeim leiðbeiningum sem var hent í ruslið, undur fyrirsögninni Óvestræn vísindi:

Óvestræn vísindi - geiragustsson.blog.is

Er RÚV með allskonar plott? Auðvitað.

Geir Ágústsson, 31.5.2025 kl. 19:00

7 identicon

Flensa og Covid 19 eru ekki sama veikin og það væri óeðlilegt að aðlaga ekki varnir í samræmi við það. Ekkert undarlegt við það að RÚV skuli ekki segja frá því að í vörnum gegn Covid finnist ekki leiðbeiningar WHO gegn flensu. Og heldur ekkert undarlegt við það að þú skulir telja það grunsamlegt, þú hefur jú fundið sannleikann sem fjölmiðlum, stjórnvöldum og vísindum er hulinn...að egin sögn.

Vagn (IP-tala skráð) 31.5.2025 kl. 20:44

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Það er rétt að flensan og kórónu-kvefin, sem eru mörg, kalli ekki á nákvæmlega sömu aðgerðir. Flensan er til dæmis banvænni börnum en COVID-19, og því engin ástæða til að skerða menntun og félagslíf barna vegna COVID-19. En var samt gert, og rökin engin.

Geir Ágústsson, 31.5.2025 kl. 21:32

9 identicon

Skólasókn og félagslíf barna fer ekki fram nema fullorðnir séu þar. Fullorðnir sem eru þá í meiri hættu. Og foreldrar sem fá þá smituð börn inn á heimilið. Börn eru ekki hópur sem lifir einn og sér fjarri öllum öðrum. Frelsi fólks, barna og fullorðinna, til að smita aðra þurfti að skerða. En það eru náttúrulega engin rök fyrir mann sem fundið hefur sannleikann á netinu.

Vagn (IP-tala skráð) 31.5.2025 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og átján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband