Þeir sem trúðu því að Biden væri heill og að stjórna

Það blasti við frá upphafi kosningabaráttu Joe Biden í embætti forseta fyrir kosningarnar 2019 að hann væri hvorki andlega til staðar né hæfur til að stjórna. 

Þegar á þetta var bent á sínum tíma var það yfirleitt túlkað sem stuðningsyfirlýsing við Donald Trump. Slíkt er ástandið á umræðunni. Það er ekki hægt að vara mann við því að detta ofan í holu án þess að vera ásakaður um að vera eitthvað eða vilja eitthvað.

En glæpurinn liggur ekki hjá Joe Biden, sem er hrumur maður sem veit ekki hvort hann á að beygja til vinstri eða hægri. Glæpurinn liggur hjá þeim sem börðust á hæl og hnakka í fjögur ár að fela ástand hans og starfrækja skuggastjórn þar sem einhverjir allt aðrir en kjörinn forseti voru raunverulega við stjórnvölinn. Skrifuðu undir tilskipanir fyrir hans hönd, földu andlegt og líkamlegt ástand hans og ráku bandaríska alríkið eftir uppskrift sem sjálfur forsetinn vissi varla af.

Allt verður þetta auðvitað rannsakað. Áhyggjur mínar liggja ekki í málinu sem slíku heldur í trúgirni þeirra sem trúðu lygunum - í fjögur ár!

Af því að fjölmiðlar og fjölmiðlafulltrúar sögðu þeim að trúa. Trúa í blindni. Trúa þvert á það sem blasti við eins og flugeldasýning, dag eftir dag, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár.

Ég held því ekki fram að allt sem ég trúi í dag sé sannleikurinn. Ég trúði á sínum tíma á réttmæti þess að siga sprengjum og hermönnum á íbúa Írak og þeirra þáverandi forseta með yfirvaraskeggið og finnst sjálfsagt að biðjast afsökunar á þeim dómgreindarbresti. Síðan þá hef ég reynt að fara varlega í stuðningsyfirlýsingum mínum, sem eru frekar fáar. 

En ég er gapandi hissa á því að ástand Joe Biden hafi verið talið gott af svona mörgum svona lengi. 

Hverju öðru er fólk að láta ljúga að sér og það trúir því það þorir ekki öðru eða treystir í alvöru ennþá þeim sem báru á borð allar hinar lygarnar? Biden, sprauturnar, skattar til að breyta veðrinu, karlar í kvennaklefa - listinn er endalaus.


mbl.is Þekkti ekki einu sinni George Clooney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Ekki hægt annað en að vera sammála, Biden var augljóslega ekki hæfur til að stjórna. Átti ekki í orðaskaki við Spingsteen, Taylor Swift eða aðrar stjörnur í kosmóinu eins og alvöru forseta ber að gera sem er upptekinn af velferð þegnanna. Fékk ekki jumbo-þotu í mútur, var ekki að auðgast á verðlausri rafmynnt í embætti. Raðaði ekki í kringum sig getulausum fábjánum í öll helstu embætti.

Hans stærsti glæpur er að hafa skilið eftir sig efnahag í blóma og verið í góðum samskiptum við bandamenn til áraftuga. Alvoöru forseti siglir efnhag eigin þjóðar í strand, efnir til illinda við núna fyrrum samherja með hringlandahætti, hótunum og ofríki. Gerist taglhnýtingur einræðisherra.

Ps. Öfugt við þig þá sá ég í gegnum lygaþvælu litlaBush og Powell á sínum tíma. Eitthvað segir mér að stuðningur þinn við innrásina í Írak sé ekki þín stærsta yfirsjón.

Bjarni (IP-tala skráð) 26.5.2025 kl. 19:50

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Bjarni,

Ég hafði þig svolítið í huga þegar ég skrifaði þessa færslu. Takk fyrir innleggið. 

Geir Ágústsson, 26.5.2025 kl. 20:53

3 identicon

Góður

Bjarni (IP-tala skráð) 26.5.2025 kl. 22:54

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Góð tækling Geir.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.5.2025 kl. 16:58

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Ómar,

Ég var ekki að reyna tækla neinn heldur vekja til umhugsunar. Ég spái raunar mikið í því hverju á að trúa og hverju ekki og eyði frekar mikið af frítíma mínum í að lesa allt mögulegt annað en "fréttirnar". 

Kannski óþarfa tortryggni á allt, og enginn að ota að mér sprautum eða hóta að taka af mér lífsviðurværið eins og er (nýsloppinn úr tilraun til þess síðarnefnda), en veirutímar og Biden-árin voru lexía í hjarðhegðun sem hefur kannski mótað mig varanlega.

Geir Ágústsson, 27.5.2025 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og nítján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband