Til hvers að hafa landamæri ef það má ekki ráða því hver fer yfir þau?

Fyrir ekki mörgum árum fór ég í smávegis frí til Tyrklands. Mér brá töluvert þegar ég sá þá kröfu tyrkneskra yfirvalda um að ég þyrfti ekki bara gilt vegabréf við komuna til landsins og á meðan á dvöl minni stóð heldur þurfti gildistíminn að vera a.m.k. 6 mánuðum fram yfir komudag minn. 

Mitt vegabréf gilti sem betur fer í 7 mánuði fram yfir komudag svo þetta slapp fyrir horn.

Það mætti því segja að þegar kemur að því að taka við vestrænum ferðamönnum í tveggja vikna frí við sundlaugarbakka að tyrknesk yfirvöld hafi haft rækilega stjórn á sínum landamærum!

Því til hvers eru landamæri ef ekki stjórn á því hver fer yfir þau og hversu lengi viðkomandi er innan þeirra?

Núna hefur þeirri hugmynd verið fleytt af stað innan Evrópusambandsins að ríki Evrópusambandsins eigi að hafa aðeins meiri stjórn á sínum landamærum.

Þetta er kallað umdeilt og það sagt að von sé á viðspyrnu.

Það eiga að gilda slakari reglur um að setjast varanlega að í vestrænum heilbrigðiskerfum en að eyða tveimur vikum við sundlaug eða strönd í Tyrklandi.

Vissulega er frábært að gera flakkað á milli landa. Ég skrapp til Finnlands um daginn og sýndi engum nein skilríki, og fór í nokkur skipti til Hollands í fyrra og upplifði það sama.

En eins og mér var sagt fyrir 20 árum þegar ég flutti til Danmerkur: Þú stendur á eigin fótum í þessu landi eða ferð til baka.

Og gott og vel, það var alveg sjálfsögð krafa.

Landamæri hafa tilgang. Stundum til að útiloka eitthvað utan þeirra, stundum til að verja eitthvað innan þeirra, en yfirleitt bæði ef sá sem fer yfir landamæri getur læst klónum í þá sem fyrir eru og heimtað það sem aðrir framleiða.

Opin landamæri fást bara með afnámi velferðarkerfisins. Þeir sem vilja opin landamæri vilja að velferðarkerfið fjármagni allt fyrir alla. Kannski verður höggvið á þennan hnút bráðum, ef marka má þróun evrópskra og bandarískra stjórnmála seinustu mánuði.

En sjáum hvað setur.


mbl.is Auðvelda synjun hælisumsókna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og sextán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband