Heimatilbúin vandamál í nafni umhverfisverndar

Vestræn samfélög geta verið lausnamiðuð. Menn geta lagt hausinn í bleyti og lagst á árar saman og leyst alveg ótrúleg vandamál. Þannig tókst Íslendingum að fara í næstum því 100% orkuskipti yfir í endurnýjanlega og umhverfisvæna orku með notkun fallvatna og jarðvarma - hið agnarlitla sem eftir er í formi jarðefnaeldsneytis knýr svo hagkvæman flota af bílum og skipum og er til ráðstöfunar sem varaafl. Í evrópsku samhengi hugsa ég oft til Hollendinga sem tekst með tækni og hugviti að flytja út meira af matvælum en nokkurt annað ríki veraldar ef Bandaríkin eru undanskilin, og þeir sem þekkja Holland á landakorti botna ekkert í því hvernig svona agnarsmátt frímerki getur staðið undir slíkri framleiðslu. Þar hefur mönnum líka tekist vel að halda hafinu frá láglendi sínu með notkun áveituskurða, dælukerfa og annarrar tækni.

Hugvitinu eru nánast engin takmörk sett þegar kemur að því að leysa stór og erfið vandamál og sagan er troðfull af dæmum um slíkt.

En hugvitinu má líka beina í andstæða átt: Því að framleiða vandamál. Heimatilbúin, manngerð vandamál. Slík vandamál auka kostnað, draga úr stöðugleika, valda óþægindum og yfirleitt kosta þau líka fleiri auðlindir en gömlu og hagkvæmu lausnirnar vegna innleiðingar á lélegri endingartíma.

Hérna má nefna sem augljóst dæmi alla sóunina og ringulreiðina í kringum sorphirðu og -förgun, að ónefndum kostnaðinum og óþægindunum, en annað augljóst dæmi er lagning vega. Áður fyrr var hægt að leggja góða og sterka vegi sem entust svo árum skiptir. Í dag grotna vegir niður á nokkrum misserum og viðvörunarskilti sem vara til banvænni hálku nauðsynleg þegar er nýbúið að leggja malbik.

Ég les í skrifum manna sem þekkja til vegamála að hérna séu yfirvöld að búa til stór og mikil vandamál. Ekki má lengur nota steinolíu í malbikið, en hún þornaði hratt og skildi eftir sig sterkt malbik. Þess í stað eru lífolíur notaðar, og þær þorna lítið sem ekkert. Niðurstaðan er lélegur vegur. Er þetta gert í nafni umhverfisverndar og niðurstaðan er sama sóunin og ringulreiðin og gildir í kringum sorphirðu, en að auki er öryggi fólks ógnað. 

Í nánast öllum tilvikum þar sem yfirvöld taka úr sambandi góðar og þaulreyndar lausnir og innleiða í staðinn lélegar og kostnaðarsamar lausnir, gjarnan með stuttan líftíma, þá er hægt að rekja orsökina til umhverfisverndar. Út með góð hráefni, inn með léleg. Út með endingu, inn með grænt bókhald sem segir að loftslaginu sé hlíft. Út með uppbyggingu á innviðum og orkuframleiðslu, inn með hækkandi rafmagnsverð og skerðingar á raforku. 

Menn gera stöku sinnum hlé á þessu rugli, svo sem þegar reisa þarf veggi til að verjast hrauni og halda innviðum í gangi þegar eldsumbrot ganga yfir, en yfirleitt ekki. Óteljandi leyfi þarf frá óteljandi opinberum einingum sem herskáir þrýstihópar geta tafið með endalausum kæruferlum.

Ég velti því fyrir mér hvað þurfi að gerast til að sparka þessa spilaborg niður. Forstjórar og aðrir yfirmenn í atvinnulífinu mættu gjarnan tjá sig meira um raunveruleikann. Kannski vantar frambjóðanda til þings sem kann að halda á vélsög. Eða hvað? Er hið óumflýjanlega gjaldþrot sem er svo sannarlega endastöðin á þessari vegferð eina leiðin út? Vonum ekki.


mbl.is „Þetta er grafalvarleg staða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Eftir að það kom á daginn velti ég fyrir mér hvað er þá hægt að gera við alla þessa lífolíu sem menn virðast hvergi geta losað sig við.

Plast?  Líklega.

Eldsneyti?  Örugglega - það þarf bara að laga vélarnar að notgkuninni.

Verður alltaf dýrt efni.

Ásgrímur Hartmannsson, 22.2.2025 kl. 16:49

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Ásgrímur,

Þessar lífolíur eru vissulega orðnar vandamál enda búið að ryðja svo mikið af regnskógum til að koma fyrir pálmatrjám að þetta kostar orðið ekki neitt. Menn ættu kannski að byrja hata regnskóga minna. 

Geir Ágústsson, 22.2.2025 kl. 16:59

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Geir.

Fyrst þakkir fyrir að taka slaginn gegn umhverfissóðaskap í nafni umhverfisverndar.

Því það er þetta lélega sem sóar auðlindum og mengar umhverfið.  Steinolía sem slík er steinolía, hefur nú samt fylgt náttúrunni í ármilljónir því víða leitar hún út í yfirborðið og lífríkið aðlagar sig að henni.  Ekki það að ég sé að mæla með að henni sé dælt stjórnlaust út í umhverfið, en hún er samt náttúruleg í þeirri merkingu að það er kraftar náttúrunnar sem mynda hana og í hófi þá aðlagast náttúran henni.

En bikdrullan sem er lögð á vegi í dag í nafni misskilinnar umhverfisverndar, hún dreifist út um allt, í heildina margfalt meira álag á umhverfið en þessir þannig séð örfáu steinolíulítrar sem blandað er við bikið þegar klæðning er lögð.

En það var nú ekki tilefnið, við miðjan lestur  fór ég að hugsa um aðra óhæfu, sem er íblöndun lífeldsneytis í jarðeldsneyti, og þegar ég las athugasemdir ykkar félaga, Ásgríms og þíns, þá hugsaði ég með mér að það ætti að halda þeirri skaðsemi til haga um hin huglægu afglöp, það er að skipta góðu út fyrir lélegt, sem skaða meir en sá meinti skaði sem þeim er ætlað að bæta.

Fyrir utan árásina á regnskógana eða þá siðblindu að nýta ræktarland til að rækta eldsneyti í heimi sem á þegar nóg til að því, en skortir matvæli, að þá eykur lífeldsneytið mengun frá bifreiðum, sem og heildarnotkun jarðeldsneytis.  Vegna þess að nýtni heildareldsneytisins á bifreiðinni minnkar, bruni hans nær ekki þeim gæðum sem bruni á hreinu jarðeldsneyti nær, sem eykur heildarmengun, og bílarnir þurfa meira eldsneyti.

Hlutfallslega meira jarðeldsneyti sem og það þarf jarðeldsneyti til að rækta lífeldsneytið.

Svona algjört rugl forheimsku hins Pólitíska Rétttrúnaðar Góða fólksins og fórnarlömbin dansa með.

Og það er rétt hjá þér Geir, endastöðin er í nánd.

En það er okkar að hindra að sú endastöð sé gjaldþrot samfélags okkar, að við höfum ekki lengur efni á allri vitleysunni.

Líkt og blasir við í Evrópu í dag.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 22.2.2025 kl. 19:55

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Ómar,

Takk fyrir hugleiðinguna sem ég tek undir.

Það er að fæðast nokkuð sem menn kalla "common sense" sem fellur hvorki í flokk með hægri né vinstri. Menn einfaldlega benda á augljósa svarið. Svo sem: "Það eru of margir ólöglegir innflytjendur hérna. Við sendum þá til baka."

Punktur. Engar langar málalengingar um skyldu okkar í alþjóðasamfélaginu, fátækt og vosbúð í boði erlendra yfirvalda og Dublinarsamningur þetta og kvótaflóttamenn hitt. 

"Orkuverð er of hátt og fer hækkandi. Framleiðum meiri orku."

Punktur. Engar langar málalengingar um að leggja niður verðmætaskapandi iðnað til að ríkt fólk geti hlaðið rafmagnsbílana og Apple-símana sína. Enginn eltingaleikur við nýjasta útspil Evrópusambandsins sem endurspeglar engan veginn íslenskar aðstæðar. 

"Common sense", þvert á línuna.

Geir Ágústsson, 23.2.2025 kl. 09:05

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hlustaði á viðtal við einhverja spekinga áðan.  Um virkjun.

Einhver dama frá umhverfissamtökunum "rústum íslandi" eða eitthvað svoleiðis.  Hún spurði, hæun fékk svar.  Hún spurði sömu spurningarinnar aftur, fékk sama svarið, og svo spurði hún í þriðja sinn...

Þetta er liðið sem stendur í veginum.

Ásgrímur Hartmannsson, 23.2.2025 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband