Bólusetningarstaða

Langt er síðan yfirvöld hættu að tala um bólusetningarstöðu þeirra sem af einhverjum ástæðum hafa þurft að leita á náðir heilbrigðiskerfisins í tengslum við heimsfaraldursveiruna. Þessu var hætt þegar bólusettir fóru að taka fram úr í allri slíkri tölfræði og enda svo á að vera nokkurn veginn eini hópurinn sem þurfti - og þarf - heilbrigðisþjónustu vegna veirunnar. 

En afleiðingar veirutíma eru ekki að baki - fjarri því. Sprauturnar eru ennþá að herja á líkama þeirra sem þáðu þær og jafnvel taka suma af lífi. Um þetta hefur ítrekað verið fjallað hér og víðar og ekkert lát á því. Yfirvöld reyna að hunsa allar ábendingar í þessu máli enda sitja þar enn flestir á sínum stólum síðan á veirutímum og vilja ekki játa nein mistök. Sumir stefna svo á þing og munu þar vinna gegn öllum tilraunum til að gera upp veirutíma sem ætti þó að vera sjálfsagt mál og vinna við það ætti að vera fyrir löngu hafin.

Ekki duga blaðamenn svo til að kryfja málin. Þeir umorða einfaldlega fréttatilkynningar yfirvalda og gera úr þeim fréttir. Enginn tekur upp símann og spyr augljósra spurninga. Það er þá gott að vita af öðrum uppsprettum upplýsinga sem hafa reynst mun betur á veirutímum og jafnvel í öðrum málum. Má þar nefna The Epoch TimesAlex Berenson og Tom Woods, auk Íslendinga eins og þeirra að baki Ábyrgri framtíð og Frelsi og ábyrgð.

En umfram allt þarf að hugsa gagnrýnið og lesa ekki bara það sem er skrifað heldur líka það sem ekki er skrifað.


mbl.is 30% með langvarandi áhrif covid
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Voru sprauturnar ekki einmitt meðal afleiðinga veirunnar?

Guðmundur Ásgeirsson, 21.10.2024 kl. 21:40

2 identicon

Ástralski þingmaðurinn, Russel Broadbent, hefur sent frá sér kröfu um áströlsk stjórnvöld um að hætta strax bólusetningum með skaðlegum og banvænum Covid-19 bóluefnum.Vísindamenn þar í landi hafa komist að því að mRNA tilraunalyfin séu menguð af DNA.

Broadbent hefur stutt tillögu Adrian McRae, ráðherra Port Hedland, sem nú er í Kazan í Rússlandi fyrir BRICS leiðtogafundinn.

Allavega eru þeir í Ástralíu að reyna en þar í landi hafa ný lög tekið gildi þar sem hreinlega er bannað að gagnrýna stjórnvöld svona líklega þau sömu lög og Hate Speech sem Kata reyndi að koma í lög hér í landi en fékk lítin  hljómgrunn.

Trausti (IP-tala skráð) 22.10.2024 kl. 18:08

3 Smámynd: Dominus Sanctus.

Mín skoðun á öllum þesum málum í hnotskurn:

https://contact.blog.is/blog/vonin/category/1608/

Dominus Sanctus., 23.10.2024 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband