Alþjóðastofnanir, gamlar og nýjar

Íslendingar eru meðlimir í Sameinuðu þjóðunum, NATO, OECD, eiga hlut í Alþjóðabankanum og óteljandi öðrum alþjóðastofnunum, aðilar að EES samningnum við Evrópusambandið, aðilar að Schengen-samningnum, hafa gert ógrynni samninga við önnur ríki og eflaust er ég að gleyma einhverju. Gleymum svo ekki dellumálum, eins og Parísarsamkomulaginu. 

Sjálfsagt er að endurskoða allt þetta með reglulegu millibili. Er viðkomandi aðild að gagnast hagsmunum Íslendinga eða ekki? Er ávinningurinn meiri en kostnaðurinn, fyrirhöfnin og valdaframsalið? 

Það má færa rök fyrir því að slík endurskoðun sé svo sannarlega við hæfi núna, og þá sérstaklega á tvennu:

  • Schengen-samningnum
  • NATO

Um leið er kominn tími til að skoða alvarlega hvernig Íslendingar eigi að nálgast hið hratt stækkandi BRICS samstarf sífellt fleiri ríkja. Á að hunsa það? Opna á viðræður? Vona að það fjari út? Krossleggja fingur og vona að heimurinn endurskipuleggi sig ekki algjörlega án aðkomu Vesturlanda og skilji þau jafnvel eftir í hagvexti og viðskiptum?

Að gera ekkert - hvorki endurskoða né skoða - er varla í boði. Eina utanríkisstefna Íslands virðist vera að renna lengra í fangið á Evrópusambandinu og fylgja að öðru leyti í einu og öllu utanríkisstefnu Bandaríkjanna sem velja hvaða skærur á milli ríkja skipta máli og hver ekki.

Heimurinn er að breytast hratt. Þeir sem fylgjast ekki með sitja fastir í ónýtum stofnunum sem framleiða meira af pappír en lausnum og hverfa að lokum undir þykkt lag af ryki.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Fyrir okkur lyggur að kafna í ryki.  Okkar leiðtogar skynja ekki heiminn, hafa skynvillu.  Sennilega vegna sveppa sem þeir hafa týnt á næstu umferðareyju.

Allt sú kynslóð núna, fattaru?

Ásgrímur Hartmannsson, 14.10.2024 kl. 20:29

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Ásgrímur,

Mig minnir að ég hafi lesið um einhverja alþjóðastofnun sem átti að leggja niður fyrir löngu en lifði enn, en man ómögulega hver. Mig grunar að slíkar séu margar. Svo eru aðrar að grafa eigin gröf, svo sem Mannréttindadómstóll Evrópu sem er kominn með aktívista (þar á meðal Íslending) fremsta í flokki: Dæma ekki samkvæmt lögum eða sáttmálum, heldur eigin smekk - tískusveiflu dagsins. Og allir halda að þarna sé "dómstóll" á ferðinni.

Geir Ágústsson, 14.10.2024 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og níu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband