Þúsundir eða hundruð þúsunda

Það er eitthvað á seyði í Brasilíu. Yfirvöld þar á bæ eru núna að reyna koma á banni á miðlinum X (áður Twitter) enda málfrelsið orðið þeim óþægilegt og menn eins og Elon Musk þyrnir í augum þeirra. 

Þessu hafa margir Brasilíumenn brugðist ókvæða við og streymt út á göturnar til að mótmæla. En hversu margir? Samkvæmt AP er um að ræða nokkur þúsund einstaklinga sem hlýða á ræður fráfarandi forseta, Bolsonaro, en samkvæmt öðrum heimildum er miklu nær að tala um hundruð þúsunda. Flestir miðlar segja svo ekki neitt. Ef marka má BBC er það helst að frétta í Brasilíu að bannið á X sé að fara í gegnum stjórnkerfið og viðbrögð við því frekar hófstillt. 

Þetta minnir svolítið á mótmæli evrópskra bænda fyrir ekki löngu. Flestir fjölmiðlar fjölluðu lítið um þau en gerðu til vara lítið úr þeim. Örfáir bændur, ekkert að sjá hér. En upptökur frá mótmælunum voru margar og sögðu aðra sögu. Það blasir við að fjölmiðlar voru að forðast að segja frá stórum viðburðum - forðast að segja fréttir til að raska ekki frásögn yfirvalda og hrista í stoðum blekkinga.

Hinn venjulegi blaðamaður fær auðvitað ekki borgað aukalega fyrir að þagga niður í fréttnæmum viðburðum. Hann er ennþá á lélegum launum og vinnur langa vinnudaga. Ritstjórinn hans er jafnvel í sömu sporum. Báðir treysta á línuna sem er dregin af erlendum, alþjóðlegum fréttastofum sem vinna saman og með moldríkum eigendum sínum og ákveða hvað þolir dagsljósið og hvað ekki. Þeir sem víkja frá þeirri línu eru samsæriskenningasmiðir, óróaseggir og flytjendur falsfrétta. 

Þetta sáum við svo skýrt á veirutímum að frekari dæmi er óþarfi að nefna, en dæmin eru mörg og þeim fer fjölgandi: Gangur mála á sléttum Úkraínu og Rússlands, mótmæli almennings gegn umhverfissköttunum og innflytjendaflóðinu, bændamótmælin og núna mótmælin í Brasilíu. 

Sem er bara eins og það er. Ekki er hægt að ætlast til meira af fjölmiðlum sem taka sig svo hátíðlega að þeir hafa kastað fyrir róða öllum sjálfstæðum vinnubrögðum og fylgja einfaldlega línunni að utan.

Á meðan getum við lesið á einum stað að mótmæli séu lítil og ómerkileg og á öðrum að þjóð sé risin á afturlappirnar. Enn einu sinni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það er orðið svo að einungis fólk yfir 60 horfir á áróðurinn.

Það er hratt minnkandi hópur, þó hann eigi mestan peninginn.

Eftir 20 ár verða svo fáir að horfa á áróðursveiturnar að það verður skynsamlegast að loka þeim.

Ég giska á að þeir reyni fleiri sæopp.  Kóvitleysan virtist virka mjög vel.  Fólk kok-gleypti hana.

Ásgrímur Hartmannsson, 8.9.2024 kl. 17:20

2 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

ALVEG HÁRRETT. Þ0GGUNGAR TILBURÐIR ERU ORÐNIR ALGERIR. Einhver fámennur hópur ætlar ser að stjónra hverju resting á að trúa. 

Rise and fall og cambridge analytica.  Heimildarmynd. 

þar þá  voru þeir ráðnir sem sérfræðingar fyrir  stórnvöld og jafnvel ennfámennari klíku, til að búa til glansmynd af  Irak  stríðinu sem dæmi. 

það er líka búin til glansmynd af hopi hælisleitenda, þar sem að islendingar höfðu búið við ákveðna friðsæld, en i staðin er kominn leiðinda kúltur sem að ekki má segja hvaðan kemur. 

Hnífa kúlturinn. Kemur með Albönum, og hefur breyðst út frá þeim. 

það sama skeði i  Bergen i Noregi.  þar var enginn hnífa kúltur a meðal ungs fólks fyrr en Albanarnir fóru að flytjast þangað, sagði mér maður sem að býr þar.  

Stelpan sem að var drepin nýlega á menningar nótt. það má ekki segja að strákarnir hafi  verið múslimar.  Var mér sagt nýlega ?

þoggunar tilburðirnir á öllum sviðum, er svakalegir. 

Fer á You tube, þar er fullt af frábærum einsaklingum sem að eru að fjalla um hins ýmsu mál og eru að rýna í hlutina eins og þeir eru alveg hlutlauust. 

Mccregor, hef ég litið á fjalla umm Ukrainu stríðið, og sá er fyrrum Usa hermaður, sem að þolir illa washington dc i þvi samengi, og er raunsær með afbrigðum og er áráðuslaus einstaklingur, heldur er meira raunsær og heldur sig við þær staðreyndi sem að hann hefur hverju  sinni.

Hefðbundir fjolmilðar hafa breyst i   ,,, SÉÐ OG HEYRT ,, ! 

Kræf fréttamennska og harðar staðreyndir ekki fyrir hendi,bara sykur húðin eftir skipun yfirvalds.

kv

LIG

Lárus Ingi Guðmundsson, 8.9.2024 kl. 19:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband