Vill­andi að tala um per fjöl­skyldu?

Til stendur að taka upp nýja skattheimtu á ökumenn. Hún á mögulega að bæta upp fyrir þá skattheimtu sem þegar er við lýði og er að miklu leyti sóað í allt annað en vegakerfið og innviðina. Hin nýja skattheimta á að fjármagna það sem gamla skattheimtan ætti að fjármagna, en gerir ekki.

Heldur einhver að hin nýja skattheimta muni í raun renna í það sem henni er ætlað að fjármagna? 

Hvað um það. Blaðamenn eru að reyna að komast að því hvað stendur til. Hvað mun nýja skattheimtan kosta fjölskyldur? Þá kemur furðulegasta svar sem lengi hefur verið skjalfest:

„Það er líka svo­lítið vill­andi að tala um per fjöl­skyldu myndi ég segja, þá ertu alltaf kom­inn með hærri tölu frek­ar en að það er talað um per bíl eða per ein­stak­ling.“ 

Villandi að tala um per fjölskyldu af því það fær skattheimtuna til að líta illa út, með öðrum orðum.

Auðvitað er það rangt að það sé villandi að tala um per fjölskyldu. Fjölskyldur í grunninn eru sambúð barna og fullorðinna - vinnandi fullorðinna og barna í skóla. Þegar skattheimtan er aukin á vinnandi aðila þá dregst úr ráðstöfunartekjum allrar fjölskyldunnar. Fé til matarkaupa fyrir börnin skerðist. Það er því alveg hárrétt nálgun að tala um kostnað per fjölskyldu frekar en að telja bara með fullorðna ökumenn og gleyma því að þeir standa undir þeim sem ekki vinna og keyra ekki - krökkunum, farþegunum sem treysta ekki síður á bílinn en ökumennirnir.

Ökumenn eiga ekki von á góðu. Þeir fá að borga og borga í skiptum fyrir ekkert. Hvað er langt síðan seinustu mislægu gatnamót voru byggð í Reykjavík? Eða á höfuðborgarsvæðinu ef því er að skipta? Er það þetta við Smáralind? Ímyndum okkur umferðina þar ef það svæði væri eins og gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, eða Grensáss og Miklubrautar.

Manni fer að líða eins og aumingja manninum í myndinni Groundhog Day, sem vaknaði aftur og aftur á sama tíma á sama degi við sama þáttinn í útvarpsvekjaranum. Munurinn er samt sá að með nógu mörgum endurtekningum þá tókst honum að lokum að ná markmiði sínu. Ég ber enga slíka von fyrir hönd stjórnmálamanna á höfuðborgarsvæðinu og ráðherranna sem lofa þeim og kjósendum gulli og grænum skógum í skiptum fyrir enn einn sáttmálann, í skiptum fyrir enn einn skattinn sem hverfur í hítina.


mbl.is Reiknar með nokkur þúsund krónum á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Vel orðað og svo satt og rétt.

Sigurður Kristján Hjaltested, 23.8.2024 kl. 15:55

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Geir.

Frú Kolka hafði nýlega meintar áhyggjur að Rétthugsunin myndi þagga niður í þér fyrir þann glæp að segja satt og rétt frá um hina óendanlegu vitleysu sem ríður röftum í opinberi umræðu.

Annan pistilinn í röð vegur þú að forheimskunni í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins. Spurning hvort þú þurfir ekki að fjárfesta í handjárnum til að spara ríkinu útgjöld?

Á meðan, keep on running.

Þú ert virkilega raunsannur

Kveðja úr næstum óbúandi borg.

Ps. Eins gott að maður fer austur eftir helgina þó sorgin vofir þar yfir öllu.

Ómar Geirsson, 23.8.2024 kl. 18:06

3 identicon

Hafið þið velt því fyrir ykkur hvers vegna kílómetragjaldið á að verða það sama fyrir alla bíla sem eru innan við 3,5 tonn að þyngd?

Það skyldi þó ekki vera vegna þess hversu illa það kæmi út fyrir rafdrifna bíla (að hluta eða öllu leyti) í samanburði við sambærilega bíla með brunahreyfil, ef kílómetragjaldið yrði alfarið miðað við þyngs?

TJ (IP-tala skráð) 23.8.2024 kl. 21:35

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Ómar,

Það er engin leið að þagga niður í neinu lengur. Á veirutímum spruttu upp svo margir valkostir við þessa hefðbundnu miðla að á þeim verða ekki lögð nein bönd. Atlagan að málfrelsinu skaut sig í fótinn. Næstu veirutímar (eða hvað það nú verður) verða ekki bergmálshellir.

TJ,

Auðvitað þarf að halda áfram að hossa efnaða fólkinu á rafmagnsbílunum sínum. Eða hélstu að hið opinbera væri þjónn fólksins - þjónn hinn almenna borgara? Sú tíð er liðin. 

Geir Ágústsson, 24.8.2024 kl. 11:57

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og átta?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband