Samsæriskenningar sem eru engar kenningar

Í lítilli frétt á DV er fjallað um seinasta þátt hlaðvarps þar sem samsæriskenningar eru teknar fyrir. Í þessum þætti er fjallað um rákirnar sem streyma aftan úr flugvélum. Hvað í þeim? Hvaða áhrif hafa þær? Er verið að ráðskast með lofthjúpinn?

Nú eru rákir úr venjulegum flugvélum ekki annað en útblástur sem blandast við loftið. Í þeim útblæstri eru agnir sem mælast í loftgæðamælum, oft vel yfir allskyns mörkum nálægt flugvöllum. Þetta er ekkert nýtt, er auðvitað ákveðið vandamál fyrir nágranna flugvalla en í raun bara hlut af því að búa í þróuðu samfélagi þar sem ákveðin mengun er einfaldlega merki um lífsgæði (þar með ekki sagt að hana eigi ekki að reyna minnka án þess að drepa hagkerfið).

Þessar rákir úr flugvélum eru vissulega taldar valda gróðurhúsaáhrifum - hvað gerir það ekki? En þessar venjulegu rákir aftan við venjulegar flugvélar eru bara það - útblástur á miklum hraða. 

En þar með er ekki sagt að slíkar rákir hafi ekki vakið áhuga milljarðamæringa sem vilja ráðskast með allt og alla. Tilraunir til að breyta veðrinu með losun á ögnum í háloftin hafa verið gerðar og taldar hafa heppnast til að valda úrkomu. En suma dreymir um meira en það. Einn milljarðamæringurinn vill reyna að loka á sólarljósið til að kæla Jörðina og hefur veitt fjármagni í slíkar rannsóknir. Þessi gróðurhúsaáhrif sjáðu til! Þessi hlýnun Jarðar! Þarf ekki að stöðva hana? 

Og hver veit - kannski eru nú þegar í gangi ýmsar tilraunir til að hafa áhrif á lofthjúpinn með því að losa í hann allskyns agnir. Það er nú ekki alveg óþekkt að yfirvöld stundi leynilegar rannsóknir sem valda óafturkræfum skaða á samfélaginu - seinasti heimsfaraldur er gott dæmi um slíkt. Það væri raunar upplagt að framkvæma slíkar tilraunir því þær væru ekki aðgreinanlegar frá hinum venjulegu rákum og allar ásakanir um tilraunastarfsemi má afskrifa sem samsæriskenningar. 

En það er þetta með að afskrifa sem samsæriskenningar sem er ekki jafnauðvelt í dag og áður. Núna má alveg trúa hverju sem er upp á yfirvöld og skjólstæðinga þeirra í milljarðamæringaklúbbnum. Þau bjuggu til heimsfaraldur - hvað ætli sé næst á dagskrá? Skipulagðar hungursneyðir? Þvingaðar lyfjagjafir? Að gera vinnandi fólk að öreigum? Að uppræta vestræn, kristin samfélög? 

Vonandi leiðir tíminn það ekki í ljós af því við hættum að samþykkja að vera meðhöndluð eins og tilraunarottur. En það er ástæða til að óttast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Á sínum tíma afgreiddu ríkjandi skoðanamótandi öfl þessar kenningar um "chemtrails" með því að segja að það væri ósönn samsæriskenning að mannfólk gæti breytt veðrinu og þess vegna myndi engum detta í hug að reyna það. Þetta var fyrir minna en tveimur áratugum síðan.

Núna dynur sífellt á okkur málflutningur um að við verðum að breyta hegðun okkar vegna þess að annars breyti hún veðrinu. Það sem áður var kallað samsæriskenning er þannig orðið að "viðurkenndum" boðskap.

Þetta er athyglisverð þversögn.

Guðmundur Ásgeirsson, 10.8.2024 kl. 16:46

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Bráðum verður sett bleikt litarefni í mjólk, til að greina "vísindaleg vottaða mjólk" frá óvottaðri hvítri mjólk.

Guðjón E. Hreinberg, 10.8.2024 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband