Vestrænir blaðamenn í fjáröflun fyrir Trump?

Af hverju eru vestrænir blaðamenn að vinna launalaust við að fylla á kosningasjóði Donald Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda til embættisins?

Er einhver með gott svar við því?

Mér dettur ekkert í hug.

Staðreyndin er samt sú að þeir eru í slíkri vinnu. Þeir eru að láta nafn hans birtast í óteljandi fyrirsögnum. Þeir eru að birta myndbönd af honum að segja það sem sífellt fleiri eru að hugsa - láta hann líta út fyrir að vera mann fólksins.

Ég skil vel að sífellt færri vestrænir blaðamann geti hugsað sér að Biden haldi áfram að vera strengjabrúðu í Hvíta húsinu. En að óbeint spyrða sig saman við Donald Trump? Ég hélt að enginn þeirra þyrði því.

Margt er skrýtið í kýrhausnum.


mbl.is Segir Biden vera gamla niðurbrotna skítahrúgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju virðast demókratar vera ringlaðir eftir fyrstu kappræður Trump og Biden?

Trump afhenti Ísraelum Jerúsalam og Gólanhæðir.

Á Gólanhæðum eru Robert Murdoch fjölmiðla mógull, Dick Cheney ( þægur hvutti sem elti beinið til Íraks ) og sjálf Rothchild fjölskyldan, fyrrum yfirmenn núverandi forseta Frakklands að bora eftir olíu.

Btetar varla langt undan að koma fénu í skjól.

Andsetnar klappstýrur ekki langt undan að styðja voðaverkin.

L (IP-tala skráð) 4.7.2024 kl. 23:49

2 identicon

Vinstri öfga stefna og hægri öfga stefna er Tróju hestur Evrópu.

Engin lýðræðislegur munur, aðeins stjórntæki elítunar.

L (IP-tala skráð) 5.7.2024 kl. 00:10

3 identicon

Trump maður fólksins -í alvöru!  Engin með fullu viti telur að Trump sé eitthvað annað en fulltrúi sjálfs sín. Narrsisisti dauðans, hinn fullkomni viðbjóður.

Bjarni (IP-tala skráð) 5.7.2024 kl. 00:24

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er þar sem hann er augljósasti bjargvætturinn;Fullkominn frelsis vinur og fólkið dáir hann.

Helga Kristjánsdóttir, 5.7.2024 kl. 00:41

5 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það er nú annar sem aldrei er gagnrýndur ekki einu sinni á skopmyndum

og sópar til sín skriljónum frá öllum þjóðarleiðtogum heimsins jafnvel ráðherrar Íslands "gefa" honum ótrúlegar upphæðir fyrir að fá selfie með honum eða fá að taka þátt í "friðar" kaffiboðum

Fjármunir úr vösum skattgreiðanda án nokkurs efftirlits með hvað er gert með peningana enda skiptir  þessi aðili um æðstu stjórnendur landsins eftir eigin geðþótta til að "verja lýðræðið".

Grímur Kjartansson, 6.7.2024 kl. 07:05

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og núlli?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband