Sunnudagur, 1. maí 2022
Fíll í herberginu
Eins og kom fram hjá Hagstofu Íslands um daginn þá létust töluvert fleiri Íslendingar á fyrsta ársfjórðungi 2022 en undanfarinn áratug - alls 760 dauðsföll sem er um 150 fleiri en undanfarin tvö ár þennan ársfjórðung. Eðlilega spyrja margir sig að því hvort um sé að kenna sprautunum sem fólk er búið að fá allt að fjórum sinnum til að verja sig gegn COVID-19 enda hefur ekkert annað nýtt verið að gerast seinustu ár: Engar hamfarir, stríð eða skyndileg fjölgun háaldraðra. Það var því viðbúið að þetta yrði á einhvern hátt rætt af viðeigandi yfirvöldum þótt ekki væri hægt að treysta blaðamönnum til að spyrja neinna spurninga.
Og vissulega kom svolítill pistill frá sóttvarnalækni á heimasíðu landlæknisembættisins um þetta.
Af hverju sóttvarnalækni? Jú, því afstaða embættisins er sú að þessi umframdauðsföll megi öll skrifa á veiru sem lagði að velli þá eldri sem nutu ekki sóttvarnatakmarkana:
Þegar öll andlát hér á landi eru skoðuð eftir mánuðum þá kemur í ljós að marktæk fjölgun andláta sást einungis hjá einstaklingum 70 ára og eldri í mars 2022 en ekki í heildarfjölda andláta. Líklega má skýra þessa fjölgun andláta af mikilli útbreiðslu COVID-19 á þessum tíma. Athyglisvert er að marktæk fækkun andláta hjá 70 ára og eldri sást hins vegar í júní til september 2020 og í janúar til mars auk september og október 2021. Þessi marktæka fækkun skýrist vafalaust af þeim sóttvarnaaðgerðum sem þá voru í gildi sem drógu verulega úr sýkingum almennt.
Einfalt, ekki satt?
Ekki orð um möguleg áhrif umfangsmikillar lyfjagjafar á nýstárlegum lyfjum til veikburða einstaklinga.
En gott og vel, enn og aftur er reynt að selja séríslensk vísindi. Allt í einu eftir 2 ár af heimsfaraldri og þrjár til fjórar sprautur af lítið prófuðum lyfjum með nýstárlega virkni varð mikil útbreiðsla á vægasta afbrigðinu hingað til ekki bara hættuleg þeim elstu heldur beinlínis banvæn. Allt í einu voru elstu hóparnir mættir á pöbbinn og tónleika og sugu í sig veiruna og stóðust henni ekki snúning.
Harðar takmarkanir óháð árstíma eru ástæða þess að dauðsföllum fækkaði og afnám aðgerða ástæða þess að dauðsföllum fjölgaði.
Vafalaust og líklega, að mati sóttvarnalæknis.
Trúir þú þessu?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:04 | Facebook
Athugasemdir
Samtals létust 64 einstaklingar með kóvít á fyrsta fjórðungi ársins. Það skýrir því í mesta lagi þriðjung þessara umframdauðsfalla. Þetta ætti sóttvarnalæknir að vita, og veit eflaust, en kýs að slá ryki í augu almennings. Ég gerði stutta samantekt um þetta þar sem farið er í saumana á tölunum, og einnig um tvöföldun fósturláta og nýburadauða á síðasta ári. Þessar samantektir má sjá hér:
https://dailysceptic.org/2022/04/28/deaths-in-iceland-jump-30-in-first-quarter-of-2022-just-as-vaccine-boosters-were-rolled-out/
https://dailysceptic.org/2022/04/30/stillbirths-and-infant-deaths-double-in-iceland-in-2021-raising-questions-of-vaccine-safety/
Þorsteinn Siglaugsson, 1.5.2022 kl. 13:39
Þorsteinn,
Takk fyrir þetta. Þú ávarpar fílinn í herberginu beint á meðan yfirvöld leggja sig öll fram um að forðast að nefna hann.
Geir Ágústsson, 1.5.2022 kl. 14:36
Sniðugar greinar þarna.
"Samtals létust 64 einstaklingar með kóvít á fyrsta fjórðungi ársins."
*með*
Á hápúnti faraldursins, 2020, þá dóu ekki nema 29 *úr* Kínakvefinu. Sannanlega. Næstum allt krabbameinssjúk gamalmenni.
Þetta orsakaði mesta hysteríkuast í margar aldir.
Núna eru 150-290 látnir úr engu sérstöku, og menn humma það bara frammaf sér. Sótti veit alveg hvað er að gerast.
Þetta var vel sett upp í prentútgáfunni af mogganum um daginn. Merkilegt nokk. Miklu betra línurit en Hagstofan er með. Þeir hafa mikið fyrir að fela hvað er að gerast.
Ásgrímur Hartmannsson, 1.5.2022 kl. 22:02
Það er búið að vera merkilegt að fylgjast með viðtölum við Þórólf s.l. 2 ár, hann er aldrei spurður krefjandi spurninga né beðinn um að sýna gögn sem sanni það sem hann heldur fram hverju sinni.
Það er alltaf látið gott heita þegar hann segir að einhverjar "nýjar rannsóknir" bendi til einhvers.
Kristín Inga Þormar, 4.5.2022 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.