Föstudagur, 12. febrúar 2016
Sekur uns sakleysi er sannað
Yfirleitt er sú regla viðhöfð í réttarríkjum að aðilar eru taldir saklausir uns sekt er sönnuð. Þessi regla á ekki við um skattheimtu. Þar er maður sekur uns sakleysi er sannað!
Tollstjóri krafðist gjaldþrotaskipta vegna áætlaðra skatta sem nú er búið að krefjast leiðréttingar á. Dregist hafði að senda inn skattaframtöl fyrir félagið.
Ekki satt?
Þetta er ekkert íslenskt einsdæmi. Í Bandaríkjunum haga skattayfirvöld sér með svipuðum hætti. Líklega á þetta við víðar. Skattheimtuyfirvöldin eru eins konar ríki í ríkinu þar sem allir eru í raun sekir en flestum tekst að sanna sakleysi sitt jafnóðum með því að borga og borga og borga.
Hið opinbera lætur þetta viðgangast því án peninga skattgreiðenda er það í raun lamað. Ýmis konar brot eru látin óáreitt til að lögreglan geti náð andanum, en skattalagabrot eru miskunnarlaust elt uppi. Fyrirtæki eru hreinlega lýst gjaldþrota af skattheimtuyfirvöldum - einhliða - ef þau hafa ekki séð neina peninga koma inn úr hirslum þeirra!
Íslendinga vantar sinn eigin Mogens Glistrup eða Irwin Schiff til að benda á óréttlæti skattheimtunnar. Ætli Friðrik Þór Friðriksson verði sá maður?
Framleiðslufyrirtæki Hross í oss ekki gjaldþrota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.