Mánudagur, 1. febrúar 2016
Geir Ágústsson
Ég heiti Geir Ágústsson. Afi minn heitir líka Geir Ágústsson. Afi sagði mér einu sinni frá símtali sem hann fékk frá reiðum manni sem langaði að skamma mig fyrir einhverja blaðagrein mína. Afi útskýrði málið og það var úr sögunni hvað hann varðar og raunar mig líka því aldrei fékk ég símtalið.
Mér til mikilla vonbrigða hefur Neytendastofa ekki sett sig í samband við mig og beðið mig um að breyta nafninu mínu. Það er því ennþá hætta á því að afi fái símtöl þegar ég skrifa blaðagreinar.
Neytendastofa hefur samt og sem betur fer komið í veg fyrir að ölvaðir einstaklingar rölti óvart inn á Loftið þegar þeir voru á leiðinni á Loft Bar. Guði sé lof!
Dagsektir lagðar á Loftið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:21 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.