Miðvikudagur, 25. október 2023
Kvár
Í tengslum við verkfall allra-nema-gagnkynhneigðra-karlmanna á Íslandi í dag hefur orðið kvár legið svolítið á huga mínum.
Byrjun á orðabókinni, um orðið kvár:
ókyngreint nafnorð um fullvaxta manneskju
Aðrar skilgreiningar eru líka í boði, svo sem þessi:
fólk sem flokkast sem kynsegin/annað
Kynsegin/annað? Hvað er að vera kynsegin? Förum aftur í orðabókina:
sem skilgreinir sig utan kynjatvíhyggju, ekki bara sem karlkyns eða kvenkyns
Hvað er þá annað? Það veit enginn. Kannski bara það sem manneskju dettur í hug þann daginn (samanber mynd).
En gott og vel. Í dag fór fram á Íslandi verkfall kvenna og kvára. Fyrir utan að létta umferðina á háannatíma fólst í þessu, fyrir utan óendanlegan kröfulista, samkvæmt yfirlýsingu (feitletrun mín):
Allar konur og öll kvár sem það geta eiga að leggja niður störf þann 24. október; ekki mæta til vinnu, ekki annast börnin s.s. gefa þeim mat eða smyrja nesti né sinna veikum fjölskyldumeðlimum heldur fá karlkyns fjölskyldumeðlim til að standa vaktina. Sleppa á öllu sem gæti talist til starfa hvort sem er átt við launaða vinnu, eða ólaunaða líkt og umönnun barna, sinna heimilinu eða þriðju vaktina svokölluðu.
Atvinnutekjur kvenna eru enn 21% lægri en karla og hefðbundin kvennastörf eru talsvert verr launuð en karlastörf.
Það er nú það. Furðulegt að yfirvinna borgi sig, eða það að taka á sig hættuleg störf eða mikla ábyrgð sem kostar félagslífið mikið, en hvað um það.
Núna er allt þetta gengið yfir og verður fljótlega gleymt og grafið og fer á listann yfir alla hina dagana þar sem svokallaðar kvennastéttir (stéttir sem laða að sér kvenfólk vegna fyrirsjáanleika og nærveru við fólk frekar en hluti) efna til starfsdaga og annað gott sem skilja vinnandi foreldra eftir í örvinglun því þá þarf að sameina vinnu og barnatíma, og hvorugt verður sérstaklega gott.
Ég er alveg handviss um að ef atvinnurekendur koma auga á ódýrt vinnuafl sem framleiðir það sama, og tekur sömu áhættur, og dýrt vinnuafl að þá stökkvi þeir til og sópi það upp. Ódýr forstjóri? Já takk! Ódýr iðnaðarmaður? Já takk!
En að því sem ég vildi ræða: Kvárin.
Þau fóru víst í verkfall. Kvárin eru sem sagt allir nema gagnkynhneigðir einstaklingar, og í hópi með konum allir nema gagnkynhneigðir karlmenn.
Mér skilst á forsætisráðherra Íslands, sem lagði niður vinnu í dag fyrir utan að svara tölvupóstum, að það hafi gengið bara ágætlega að reka landið án kvenna og kvára.
... það voru karlmennirnir sem tóku vaktina og þeir gerðu það bara ágætlega.
Eru þetta ekki hættuleg skilaboð? Að verkfall kvenna og kvára hafi í raun ekki haft neinar afleiðingar fyrir stjórn á heilu landi? Fyrir utan að létta umferðina?
Þetta hlýtur að vera misskilningur. Í minni vinnu færi allt á hlðina ef kvenmenn (og kvár, sem ég hef reyndar ekki hitt enn þann dag í dag) einfaldlega hætta að vinna í svo mikið sem einn dag. Sennilega afleiðing mikils samstarfs þvert á kyn, húðlit, trúarbrögð og hvaðeina.
Mér finnst að það sem standi eftir er bara enn einn starfsdagur í skóla eða dagur þar sem vinnandi fólk fær ekki að vinna af einhverjum ástæðum (t.d. vegna umferðartafa eða heimsfaraldurs). Gleymt og grafið um leið og venjulegt líf getur hafist á ný.
Því miður, því það er ekkert nema gott að benda á hvað ofbeldi er hræðilegt og hvað mismunun sé það líka. En forréttindafólk í ríki sem mælist best allra í heimi á öllum góðum mælikvörðum valdi að leggja áherslu á peninga. Að vilja fá meira fyrir minna.
Vonandi ekki arfleifð kvenfólks nútímans í sögubókunum, en ekki útilokað.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 24. október 2023
Þar sem Ísraelar og Palestínumenn vinna saman
Hryðjuverkaárás palestínskra hryðjuverkamanna og ofsafengin viðbrögð ísraelska hersins í kjölfarið hafa hreyft við taugum margra. Hraunað er yfir Gyðinga og Araba. Ég hef séð ummæli um Gyðinga eftir Íslendinga sem sjálfur Hitler hefði geta verið stoltur af. Ég hef séð líka séð ljót ummæli um Palestínumenn þótt flestir þeirra á Gasa-svæðinu séu ekkert alltof hrifnir af yfirvöldum sínum og yfirlýsingum þeirra. Við flýttum okkur að hoppa í skotgrafirnar í svart-hvítum heimi þar sem heilu þjóðirnar - ekki bara stjórnmála- og hermenn þeirra heldur almennir borgarar, konur og börn - eru nú eitthvað: Vondar, hræðilegar, kúgarar.
Ekki yfirvöldin, heldur borgararnir.
Það var því óvænt ánægja að rekast á frétt DW um tónlistarskóla í Berlín þar sem nemendur frá 27 ríkjum, þar á meðal Palestínu og Ísrael, læra að tjá sig opinskátt um tilfinningar sínar og upplifun og setjast svo niður og búa til tónlist, saman.
Nemendurnir eru ekki endilega sammála um erfið mál en þeir læra á samtalið, og það að virða skoðanir annarra þótt þær séu á öndverðum meiði við eigin skoðanir, eða eins og segir í fréttinni:
Meðal túlkunar nemenda á atburðunum benti Barenboim á að palestínskir námsmenn hefðu tilhneigingu til að líta á 7. október sem hluta af stærra sögulegu samhengi, en fyrir Ísraela hafa hryðjuverkaárásir Hamas breytt öllu. Þetta er aðeins eitt dæmi, sagði hann, sem sýnir hvernig sjónarhornin á sömu atburði geta verið mismunandi. Og samt held ég að við séum öll sammála um að við viljum vera hér áfram.
**********
Among the students´ interpretation of the events, Barenboim noted that Palestinian students tend to see October 7 as part of a larger historical context, whereas for the Israelis, the Hamas terrorist attacks have changed everything. This is just one example, he said, that shows how the perspectives on the same events can differ. "And yet I think we all agree that we want to stay here."
Ef við gætum nú bara lært að gera eitthvað svipað í stað þess að umbreytast á einni nóttu í Litla-Hitler eða Litla-Múhameð og óska heilu þjóðunum dauða.
Kannski leynist ástæðan fyrir ástandi samfélagsumræðunnar í þessum hluta úr frétt DW:
Reyndar hafa nemendur eitt sem sameinar þá: tónlist. Verkin sem þeir eru að æfa bjóða upp á eitthvað sem þeir geta einbeitt sér að, eitthvað sem þeir geta unnið saman; svo ég held að daglegt starf okkar hafi leitt til samheldni, sagði Rapp.
**********
Indeed, the students have one thing that unites them: music. The pieces they are practicing offer "something they can concentrate on, something they can work on together; so I think our daily work has led to a form of cohesion," said Rapp.
Kannski við séum einfaldlega eirðarlaus. Vinnuvikan er stutt, áhugamálin bundin við skjá og samfélagsmiðlarnir orðnir að vímuefni sem gerir fólk vitstola.
Hvernig væri að búa til tónlist í staðinn?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 23. október 2023
Woke-hreyfingin étur börnin sín
Samskipti við woke-fólkið hafa sitt afþreyingargildi en enn meiri afþreyingu má oft fá úr samskiptum woke-liða við hvern annan.
Þeir keppa sín á milli í því hver er hollasti liðsmaður seinustu þvælunnar, en fylgjast líka vel með því hvort einhver misstígi sig ekki: Flaggi ekki nýjasta fánanum. Taki ekki undir nýjustu líffræðina. Sé ekki nógu hræddur við manngerða hamfarahlýnun. Sýni efasemdir gagnvart framleiðslu á grófu klámi fyrir lítil börn.
Og eitt nýjasta dæmið: Karlmaður sem þráir ekkert heitar en ást woke-liða gerði óvart eitthvað sem treður á tær róttæku femínistanna að baki kvennaskrópdeginum á morgun.
Allur þessi söguþráður rataði auðvitað í fjölmiðla en megnið af atgangi woke-liða hvern á annan gerir það ekki. Ég sé honum deilt hér og þar í minni hópum. En skemmtanagildið er það sama, hvort sem blaðamenn taka eftir eða ekki.
Það er greinilega erfitt að vera raunverulega sanntrúaður í þessum trúarbrögðum og ótrúlegt að menn nenni ennþá að reyna, en takk fyrir afþreyinguna!
![]() |
Ég gerði mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 23. október 2023
Viðurkenna skömmina
Fjöldi fyrirtækja ætlar að leyfa konum (og kvárum, og raunar öllum nema gagnkynhneigðum karlmönnum) að fá frí á morgun án þess að draga neitt frá laununum. Það sé til að benda á allskyns misrétti.
En ef fyrirtæki telur sig vera að borga jafnt fyrir sömu vinnu óháð kyni af hverju fallast þau þá á að greiða fyrir þátttöku í viðburði sem á að benda á mismunun?
Eru fyrirtækin að viðurkenna eitthvað? Að launafólk þeirra (allt nema gagnkynhneigðir karlmenn) sé í raun að fá borgað minna fyrir sömu vinnu?
Eða er þessi greiddi aukafrídagur mismunun gagnvart karlkyns starfsfólkinu sem tekur á sig auknar byrðar?
Nema auðvitað að vinnustaðurinn hreinlega lokist og karlmennirnir fá þá líka frí á fullum launum en án þess að þurfa frjósa á Arnarhóli.
Annars finnst mér nú bara að þær konur sem vilja eigi að drífa sig í hærri tekjur hið fyrsta. Það geta þær gert með því að stunda minna félagslíf og vera lengur í vinnunni, vera minna með börnunum, fá sér vinnu á fiskiskipi eða með því að sækja í störf með áhættuálagi. Það er ekki eftir neinu að bíða! Það er að segja, ef menn telja peninga vera upphaf og endi alls eins og virðist vera skoðun margra.
![]() |
Verða ekki fyrir tekjutapi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 22. október 2023
Líðan barna
Líðan barna já. Erum við ekki öll sammála um það að okkur er skítsama? Börn eru hvort eð er alltaf leið yfir einhverju, nenna ekki að læra, vilja bara vaka lengi og sofa út, borða rusl og henda skítugum fötunum á gólfið. Við teljum niður dagana að þurfa ekki lengur að sinna þeim öðruvísi en með því að eiga snakk í skúffunni og látum þau fá vasapeninga til að þau geti fjármagnað fjarveru frá heimilinu í sem lengstan tíma.
Nei ég segi svona. Ég vil ekki hljóma eins og einhver fræðimaður eða hjarðheilsusérfræðingur.
Kvíðin börn þurfa meiri aðgát vegna stríðsfrétta, er okkur sagt. Og það er kannski rétt ef börn eru yfirleitt að horfa á stríðsfréttir. Og raunar margt gott sem þarna kemur fram, svo sem:
Viðhorf forráðamanna sjálfra til stríðsins skipti ekki síður miklu máli. Það er einmitt mjög gott að við séum ekki að dæma heilu þjóðirnar sama hvað stjórnvöld ákveða að gera, varast það að tala um að þessir séu svona eða hinsegin."
Margt fullorðið fólk hefði gott af svona ráðum.
Hvað um það. Hvar voru sérfræðingarnir á veirutímum? Þegar börnum var beinlínis þröngvað í skjáfyllta einveru?
Þeir voru heima hjá sér í fjarvinnu, mögulega buxnalausir og í sófanum, að laumast til að horfa á einn og einn þátt á milli funda, eða fá sér aðeins í tánna á vinnutíma.
Mörg börn voru að fyllast vonleysi og depurð og á það var bent.
Þunglyndi fór að hrjá mörg þeirra, og við því varað.
Einveran tók á mörg börnin, og það blasti við.
En okkur var öllum alveg drullu-nákvæmlega-skítsama, því við vorum ekki að hugsa um börnin. Við vorum að hugsa um smit! Smit, smit, smit! Og þegar var búið að gúmmístimpla sullið í sprautunum: Sprauta, sprauta, sprauta! Ólétta og aldraða, og auðvitað börnin.
Líðan barna var ekki einu sinni á landakortinu. Ef unglingar komu saman var hreinlega hægt að siga lögreglunni á þá, og nágrannar vel á varðbergi, kíkjandi í gegnum rimlagardínurnar á hvað unglingarnir voru orðnir margir, og hvað seinasta minnisblað hafði um það að segja.
Líðan barna já. Hverjum er ekki sama? Þau eru jú bara óþekktarungar sem skulu læra að hlýða, en til vara að þegja. Sérstaklega ef þeim líður eitthvað illa.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 22. október 2023
Umframdauðsföllin
Mikil dauðabylgja sveipast nú yfir íslenskt samfélag, eins og nánast enginn fréttamiðill segir okkur frá. Umframdauðsföll eru viðvarandi yfir því viðbúna, svo misserum skiptir.
Einhverjar rannsóknir finnast á þessu fyrirbæri og tengja við örvunarbólusetningar: Nokkrum vikum eftir nýja sprautuherferð fer fólk að hrökkva upp af í hrönnum.
Ný gögn sem staðfesta þetta eru sífellt að koma upp á yfirborðið og nokkrir einstaklingar að fylgjast vel með og birta jafnóðum á ýmsum vettvangi, svo sem á fjésinu, þaðan sem þetta innlegg er fengið:
Skýring þess að umframdauðsföllin eru fleiri á Íslandi en í Danmörku og ESB er að á meðan 5% Íslendinga þáðu þriðju örvunarsprautuna létu einungis 0,8% Dana sprauta sig og í ESB/EEA var bólusetningarhlutfallið 2,4% eða helmingi lægra en á Íslandi. Bólusetningarhlutfallið er af heimasíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu (ECDC - European Center for Disease Control). Hærra bólusetningarhlutfall hérlendis skilaði verulega fleiri umframdauðsföllum á Íslandi en á meginlandi Evrópu. Þetta má sjá myndrænt á meðfylgjandi tveimur súluritum sem sýna vikulegan fjölda umframdauðsfalla á Íslandi og í Danmörku það sem af er árinu 2023 og mánaðarleg umframdauðsföll á Íslandi og í ESB frá maí 2022 til september 2023. Ég tek því hér með til baka og biðst afsökunar á aðdróttunum og vangaveltum þess efnis að íslensku læknarnir standi ekki jafnfætis kollegum sínum í Evrópu hvað þekkingu og hæfni varðar. Hins vegar er tímabært að þeir stígi fram og tjái sig um skaðsemi bóluefnanna og hætti að láta embætti landlæknis segja sér fyrir verkum um meðferðarúrræði við Covid.
Svolítið óhugnunarlegt, satt að segja, en enn óhugnanlegra er að yfirvöld æða áfram í blindni og sprauta fólk til dauða. Veggspjöld hins opinbera bjóða ekki upp á neina fyrirvara og hanga í matsölum þjónustuíbúðakjarna. Þökk sé linnulausum áróðri eru eitursprauturnar ennþá samþykktar af einhverju hlutfalli fólks - að því er virðist mun stærra hlutfalli en í flestum öðrum evrópskum ríkjum.
Líftryggingafélög taka auðvitað eftir og hafa víða tjáð sig um blæðandi sjóði sína, en þau íslensku þora sennilega ekki að segja neitt. Útfararstofurnar kvarta sennilega ekki enda gullöld hjá þeim. Mögulega eru einhverjir biðlistar að styttast í kjölfar úthreinsunarinnar, jafnvel þótt hjartavandamál unga fólksins valdi auðvitað álagi líka (unga fólkið sem betur fer ekki sprautað lengur, en skaðinn er víða skeður). .
Einhver af þessum stærri og ónothæfu fjölmiðlum þurfa að fara vakna. Ástandið fer að líkjast þjóðarmorði. Meðvitað eða ómeðvitað, framkvæmt af ásetningi eða óvart vegna þekkingarskorts og vanhæfni.
Almenningur þarf líka að vakna almennilega. Það er ekki nóg að koma í veg fyrir að yfirvöld stúti eigin heilsu. Það þarf að koma í veg fyrir að þau stúti heilsu annarra líka.
Umboðsmaður Alþingis hefur fengið ábendingu veit ég, en er það embætti ekki komið ofan í skurð?
Á þessari síðu verður haldið áfram að góla út í tómið og vonast til að einhver hlusti. Stjórnmálamenn, lögfræðingar, blaðamenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, talsmenn tryggingafélaga, útfararstofur, prestar - einhver!
En á meðan halda einstaklingar úti í bæ áfram að fylgjast með og uppfæra súlurit hins íslenska þjóðarmorðs.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 21. október 2023
Opinber rekstur í einni mynd
Sem alveg sérstakur áhugamaður um loftslagsmál og gapandi bils á milli raunveruleika og stjórnmála í þeim málaflokki þá opnaði ég enn eina fréttina um enn eina skýrsluna (sem verður gleymd og grafin á morgun) með fyrirfram ákveðnum niðurstöðum (miðað við val á skýrsluhöfundum) og rakst á þessa mynd:
Fljótt á litið er þarna að sjá íbygginn ráðherra segja með titrandi röddu frá alvarlegum tíðindum fyrir fram hóp af áhyggjufullum áheyrendum.
En fljótt á litið er líka þarna að sjá hálftóman sal af fólki sem er greinilega drepleiðast og er sumt hvert að blaða kæruleysislega í gegnum pappír sem verður bráðum kominn í endurvinnslugáminn á leið til Hollands þar sem kola- og gasorkuver sjá um að endurnýta hann, mögulega í klósettpappír.
Nú er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Íslands (kemst þessi titill fyrir á nafnspjaldi?) greinilega mjög drífandi og duglegur maður sem kemur miklu í verk. En það er líka galli. Duglegir stjórnmálamenn eru fljótir að sjósetja allskonar þvælu og fylgja henni eftir þar til launamaðurinn situr eftir rafmagnslaus, bíllaus og kjötlaus.
Blaðamenn lepja þetta upp en almenningur mætti alveg byrja að óttast.
Mér finnst þessi mynd svo lýsandi fyrir opinberan rekstur. Þarna bóka menn alltof stóran sal, og dýran, fyrir gjörsamlega áhugalausa áhorfendur sem mæta flestir hverjir ekki en láta sig svo hafa það að skrifa einhverja stórkostlega fyrirsögn sem á að hræða fólk til að þvo umbúðir með heitu vatni og sápu svo útlendingar geti knúið sementsverksmiðju. Næsta dag hafa menn svo gleymt öllu, og skýrslunni hræðilegu sem var uppspretta umræðunnar, þar til næsta æsifrétt birtist og tollir í hausnum á okkur í tæpan sólarhring.
Hvergi í stjórnarskrá Íslands stendur að hlutverk ríkisvalds sé að reyna stjórna loftslagi Jarðar með skattheimtu og skerðingum á lífskjörum okkar. Samt virðist fátt annað komast að.
Dæmigerður opinber rekstur.
Ég legg til að menn hugi að mengunarvörnum (sem er eitthvað allt annað en skerðing á losun gróðurhúsalofttegunda) og nýti takmarkað fé frekar í eitthvað uppbyggilegt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 21. október 2023
Áttavilltir útlendingar
Ég hef sjaldan lesið frétt sem færir mér jafnmikla gleði og skemmtun og þá um útlendinga að mótmæla hvalveiðum á Íslandi.
Nokkur gullkorn (tilvitnanir í útlendingana):
Hvalir eru stórkostlegar, gáfaðar verur sem leika lykilhlutverk í því að halda jafnvægi í hafinu okkar. Þeirra velferð er í eðli sínu tengd heilsu plánetunnar okkar.
En það eru fjölmargar áhyggjur uppi er tengjast lögum ykkar um velferð dýra, eins og blóðmör og sérstaklega hvalveiðar, sem ég bið ykkur um að binda enda á fyrir fullt og allt.
Tengdadóttir mín er nýkomin heim frá ykkar fallega landi, viti sínu fjær að sjá hvalkjöt á matseðli. Hún sér eftir því að hafa ekki verið svo forsjál að taka myndband á þeirru [sic] stundu af sér standa upp og yfirgefa veitingastaðinn ...
Ef þú vilt bjarga heiminum frá loftslagskrísunni, kjóstu með þessu frumvarpi, þar sem [hvalveiðar] hjálpa hvorki íslensku efnahagskerfi né Íslendingum.
Þetta er alveg stórkostlegt. Allt í einu eru hvalveiðar og hin svokallaða loftlagskrísa orðin tengd málefni. Mögulega reka hvalir mikið við - þarf þá ekki að útrýma þeim?
Hvað í ósköpunum tengir saman blóðmör og hvalveiðar? Af hverju ekki að einfaldlega mótmæla neyslu kindakjöts með öllu? Blóðmör er jú lítið annað en afgangafæði - matvara búin til úr því sem datt á gólfið þegar kjötið var skorið af kindinni. Er kannski eitthvað að þýðingunni?
Hvalir eru hluti af lífríkinu en þarf þá ekki að hafa stjórn á hvalastofninum eins og öðrum? Varla gengur að mokveiða fiska og búa til endalaust svigrúm fyrir fleiri hvali, eða hvað?
Hin viti sínu fjær tengdadóttir þarf ekki að gera annað en deila matseðli af heimasíðu 3frakka á samfélagsmiðlum ef þannig liggur á henni. Það er ekkert að fela og engin ástæða til að sjá á eftir því að hafa ekki tekið mynd af pappírseintaki.
Eini punkturinn sem ég get tekið undir er að hvetja hvalveiðimenn til að drepa dýrin eins hratt og þeir geta til að lágmarka þjáningar, en sama hvatning á við allar tegundir veiðimennsku, og mögulega við fleira að athuga í sláturhúsum ákveðinna menningarheima (varúð - ekki fyrir viðkvæma!) en íslenskra hvalveiðiskipa.
Það er freistandi að biðja þessa útlendinga um að líta sér nær, skoða eigið fæði og rekja uppruna þess inn í iðnaðarfjós fullum af beljum á allskyns lyfja- og hormónakúrum, en ég nenni því ekki.
Þess í stað les ég aftur tilvitnanir í þá og reyni að hlægja ekki upphátt þar sem ég sit á kaffihúsi.
![]() |
Jason Momoa sendir Alþingi bréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 21. október 2023
Friðartákn herforsetans
Þegar kemur að því að skýra stjórnmál er oft mikið svigrúm fyrir túlkanir og hægt að stilla mönnum upp á ýmsan hátt.
Sem dæmi má nefna nýlega tillögu Bandaríkjaforseta um að dreifa seðlum í allar áttir til að reyna kaupa sér vinsældir og draga athygli fólks frá raunverulegum vandræðum.
Í einni fréttaskýringu er meðal annars sagt (feitletrun mín):
Joe Biden Bandaríkjaforseti óskar eftir hernaðaraðstoð fyrir Ísrael og Úkraínu í nýjum þjóðaröryggispakka sem nemur 106 milljörðum bandaríkjadala. ...
Ný krafa Bandaríkjaforseta tengir fjölda ólíkra vandamála í von um að samstaða meðal Bandaríkjamanna hristi upp í þeirri ringulreið sem repúblikanar hafa skapað.
Jafnframt sendir hann repúblikönum ákveðið friðartákn í formi 6,4 milljarða fjármagnsauka til fólksflutningavandans við sunnanverð landamærin að Mexíkó vandi sem er hægri flokknum hjartans mál.
Friðartákn já. En hér er ákveðin pólitísk skák í gangi. Forsetinn er að leggja fram eitt frumvarp sem nær til fjölda ólíkra og óskyldra mála í von um að laða að sér atkvæði allra. Með því að henda peningum í landamærin er vonast til að menn greiði atkvæði með peningasendingum í allt önnur mál líka. Allt eða ekkert: Landamæri og Úkraína, eða hvorugt.
Mun betri fréttaskýringu má finna á Antiwar.com sem lýkur með þessum orðum:
Fáeinir fulltrúar repúblikana hafa hindrað þingið í að afgreiða viðbótarfé til Úkraínu. Biden-stjórnin vonast til að ýta á nokkra þingmenn í GOP til að greiða atkvæði með frumvarpinu með því að sameina fjármögnun til Taívan, Ísrael og landamæranna með Úkraínu.
**********
A small number of Republican represenatives have hindered Congress from passing additional funds for Ukraine. The Biden administration hopes to push several GOP members of Congress to vote for the bill by combining funding for Taiwan, Israel, and the border with Ukraine.
Snjallt, ekki satt? Og kjarni málsins. Ekki einhver ímynduð ringulreið eða svokallað friðartákn.
Mikil er samúð mín með bandarískum skattgreiðendum og launþegum. Þessir hundrað milljarðar dollara eru ekki til. Þá þarf að prenta. Þeir auka peningamagn í umferð og minnka kaupmátt gjaldmiðilsins. Nú þegar Kínverjar eru byrjaðir að nota eigin gjaldmiðil til að kaupa olíu á heimsmarkaðinum eru líka stoðir olíudollarans byrjaðar að bresta og þá er voðinn vís:
Hreyfingar frá dollara - jafnvel í hægagangi - mun þýða hækkandi framfærslukostnað fyrir Bandaríkjamenn. Þar sem færri útlendingar halda í dollara mun hin stjórnlausa núverandi verðbólga bandarískra yfirvalda skapa enn meiri verðbólgu innanlands. Með öðrum orðum, hreyfing frá dollara mun þýða að bandaríska stjórnin verður minnka peningaprentun til að fjármagna skuldir þjóðarinnar ef hún vill forðast óðaverðbólgu. Það mun líka líklega leiða til hærri vaxtakostnaðar á bandarískum ríkisskuldabréfum og þörf á auknu skattfé til að borga af skuldunum. Það mun þýða að það verður erfiðara fyrir Bandaríkjastjórn að fjármagna þau nýju stríð, aðgerðir og gæluverkefni sem Washington lætur sig dreyma um.
**********
A movement away from the dollareven in slow motionwill mean a rising cost of living for Americans. With fewer foreigners holding on to dollars, the US regimes current runaway monetary inflation will create more domestic price inflation. In other words, movement away from the dollar will mean the US regime must engage in less monetization of the nations debt if it wishes to avoid runaway inflation. It also likely will lead to a need to pay higher interest rates on US government bonds, and that will mean a need for more taxpayer money to service the debt. It will mean that it will become more difficult for the US regime to finance every new war, program, and pet project that Washington can think up.
Væntingar mínar til fjölmiðla verða sífellt hófstilltari. En þegar það tekst ekki einu sinni að sjá í gegnum frekar augljóst pólitískt bragð þá er öll von úti.
![]() |
Hundrað milljarðar dala gætu hafnað á vegg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. október 2023
Lengjum frí þingmanna
Þingmenn vinna alltof mikið. Þeir eiga að vera miklu meira í fríi. Þá framleiða þeir minna af kjánalegum inngripum í samfélagið. Lög fá að rykfalla þegar fólki og fyrirtækjum hefur tekist að finna leiðir framhjá hindrunum þeirra. Minna af skattfé landsmanna er sent erlendis, í vasa vopna- og lyfjaframleiðenda eða í hendur spilltra stjórnmálamanna.
Það er því fagnaðarefni að forsætisráðherra ætli að leggja niður störf á næstunni, hvað sem það nú þýðir. Færri gagnslausir fundir? Lægri ökustyrkur í boði skattgreiðenda? Minni prentkostnaður í Stjórnarráðinu? Ég sé ekkert nema kosti.
Ef menn vilja alveg einstaklega skemmtilega frásögn um ágæti þess að stjórnmálamenn geri ekkert og hvernig það í sjálfu sér flýtir mögulega lausn stórra vandamála þá get ég mælt með þessum fyrirlestri.
Í fyrirlestrinum segir frá upphafsárum mikillar efnahagslægðar sem kom í kjölfar peningaprentunar vegna þátttöku Bandaríkjanna í fyrri heimsstyrjöldinni. Svo illa vildi til að forsetinn fékk heilablóðfall um þetta leyti og var að mestu leyti óstarfhæfur. Hið opinbera beitti sér mjög lítið gegn leiðréttingu markaðarins og niðursveiflan var orðin að uppsveiflu á augabragði. Þetta er svo borið saman við ofvirka stjórnmálamenn sem voru við völd þegar önnur bóla sprakk tæpum áratug síðar en vegna allskyns aðgerða varði hún í fleiri ár.
Megi sem flestir stjórnmálamenn leggja niður störf á næstunni og sem lengst. Það myndi eitt og sér leysa mörg af vandamálum samfélagsins en til vara að búa ekki til ný.
![]() |
Ég mun leggja niður störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)