Veirutímum sópað undir teppið

Það er eitthvað skuggalegt ráðabrugg í gangi, eða röð tilviljana sem hefur sömu afleiðingar.

Eins og hér er bent á þá mun þingmennska Ölmu Möller gera það torveldara en ella að fá Alþingi til að hefja rannsókn á veirutímum svipaða þeirri og Danir hafa núna sett í gang, meðal annarra ríkja (og verður vonandi ekki bara hvítþvottur á aðgerðum yfirvalda). Sem ráðherra í ríkisstjórn gæti Alma enn frekar staðið í vegi fyrir slíkri rannsókn og sem heilbrigðisráðherra sennilega auðveldlega stöðvað slíka rannsókn í fæðingu. 

Er eitthvað baktjaldaleikrit í gangi eða eru menn bara óvart að stilla upp fólki þannig að veirutímum verði sópað undir teppið?

Ég veit ekki svarið en það skiptir ekki máli í raun hvort það er. Menn geta hoppað úr flugvél án fallhlífar eða með fallhlíf sem er búið að eiga við. Niðurstaðan er sú sama þótt ásetningurinn sé ólíkur.

Kannski var heldur ekki klókt að gefa upp þessa áætlun. Flest fólk sem ég heyri tala um veirutíma gerir það með óbragð í munni og myndbönd sem minna okkur á vitleysuna eru talin vera grín. Fáránlegt grín. Fólk með plastpoka á höfðinu, grímu í sundlaug og sótthreinsi til að maka á alla fleti. Hlægilegt vissulega þótt það óefnislega hafi samt verið verst: Einangrun, einmanaleiki, þunglyndi og annað sem verður ekki svo auðveldlega gert að fyndnu myndbandi.

En sjáum hvað setur. Alma er vissulega þekkt andlit og það virðist oft vera nóg til að krækja í atkvæði. Innihaldið skiptir þá minna máli. Jafnvel þótt á umbúðunum standi að það sé eitrað.


mbl.is Alma heilbrigðisráðherraefni Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um blaðamenn og að læra sína lexíu

Trump var um daginn endurkjörinn forseti Bandaríkjanna og er núna að manna ýmsar stöður í stjórnkerfi þar sem tilnefningar forseta eru margar, óháð því hvort sá forseti er að skapi evrópskra viskubrunna eða ekki.

Nýlega tilkynnti Trump að heilbrigðismálaráðherra hans yrði Robert F. Kennedy, Jr., og margir supu hveljur. 

Samsæriskenningasmiður!

Andstæðingur lýðheilsu! 

Gagnrýnir sífjölgandi bólusetningar gegn öllu og engu!

Telur þær jafnvel hafa afleiðingar!

Blaðamenn nenna ennþá að taka upp hanskann fyrir lyfjaiðnaðinn og má nefna þessa frétt TV2 í Danmörku sem dæmi. 

Þar á bæ tókst að draga upp úr hattinum einhvern mann með fínan titil og fína gráðu sem kallar dag tilnefningarinnar óhugnanlegan fyrir lýðheilsuna og að þetta sé mögulega bara vinagreiði. Núna muni vísindin eiga undir högg að sækja!

Vangaveltur um vensl sífjölgandi bólusetninga auk aukinnar lyfjanotkunar almennt og sprengingar í fjölda allskyns heilsufarsvandamála, sem læknar á launaskrá lyfjafyrirtækja hafa kallað samsæriskenningu, komast á dagskrá.

Skelfing!

Okkur gæti mögulega boðist færri sprautur frekar en fleiri í framtíðinni! Lýðheilsan að hruni komin!

En gott og vel. Blaðamenn lifðu einhvern veginn af veirutíma þrátt fyrir að hafa brugðist öllum sem treystu á þá fyrir upplýsta og hlutlausa fréttaöflun. Þeim er velkomið að halda áfram að grafa eigin gröf.

Það er ekki þar með sagt að verðandi heilbrigðismálaráðherra Bandaríkjanna hafi rétt fyrir sér í öllu. En að reyna gamla bragðið - afskrifa einhvern sem samsæriskenningasmið af því hann stígur á rangar tær - mun ekki virka í þetta skipti. Og ætti aldrei að virka aftur.

Og ég held, svei mér þá, að fleiri og fleiri séu að átta sig á því.


Könnun: Kjósendur vilja engu breyta

Á meðan Bandaríkjamenn, Þjóðverjar, Hollendingar, Argentínumenn, íbúar El Salvador og fleiri þjóðir eru komnar vel á veg að gera upp við vókið, vitleysuna, verðbólguna og fleira gott þá kjósa Íslendingar þau þægindi sem felast í óbreyttu ástandi, eða það benda skoðanakannanir til. Það er að sumu leyti skiljanlegt. Betra finnst börðum hundi að fá húsaskjól og mat þótt lélegt sé en að vera óbarinn úti, mögulega í kulda og vosbúð.

Það er nefnilega ekkert víst að breytingar séu alltaf til batnaðar. 

Er þá ekki bara best að kjósa þá sem tala vel um báknið, stofnanirnar, kerfið, skatta til að breyta veðrinu og lækna fátækt, flækjustigin, ríkisútgjöldin, regluverkið og innflytjendurna úr fjarlægu heimshornunum? 

Og um leið um nauðsyn hallareksturs í umhverfi svimandi skatta til að halda allri útgerðinni í gangi, sem gætu svo sem hækkað aðeins, en bara á ríkt fólk.

Þeir flokkar eru að vísu til sem tala um að eyða hallarekstrinum og lækka skatta án þess að draga úr ríkisumsvifum að neinu ráði, en látum slíkt tal eiga sig.

Auðvitað er hægt að lækka bæði skatta og skuldir á sama tíma og útrýma verðbólgu í leiðinni - með því að leggja niður, einkavæða, selja og hreinlega lýsa yfir að hérna ætli ríkisvaldið að draga sig til baka og ef einhver sér þörf á viðkomandi þjónustu þá geti viðkomandi bara stofnað til hennar.

En þannig tal hef ég tæpast rekist á.

Spennandi kosningar? Kannski - það er enn tími til stefnu til að draga skítugar brækur einhvers úr skúffunni eða framkalla minnisleysi hjá frambjóðendum - en sjáum hvað setur.


mbl.is Viðreisn í mikilli sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of stór, víðfeðm og valdamikil sveitarfélög

Sameining sveitarfélaga átti að ná svo mörgum markmiðum.

Stærri sveitarfélög með meira á milli handanna áttu að geta veitt góða þjónustu og farið í nauðsynlegar framkvæmdir.

Samlegðaráhrif áttu að losa um mikla fjármuni.

Lögbundnum skylduverkum átti að sinna betur. 

Allt þetta án þess að tengslin milli sveitastjórnarmanna og kjósenda rofni vegna fjölmennis og víðfeðmi. 

Raunin er almennt séð önnur.

Sveitarfélög sem hafa haldið sjálfstæði sínu standa sig almennt betur en hin. Þrýstingurinn á að moka öllu höfuðborgarsvæðinu í ráðhús Reykjavíkur hefur sem betur fer ekki borið árangur. Skattgreiðendur utan Reykjavíkur sjá það á veskinu og þjónustunni.

Sveitarfélög með marga útvarsgreiðendur eiga auðveldar með að sökkva sér í skuldir - slá lán út á skatttekjur framtíðar. 

Innan stærri sveitarfélaga eru svæði sem finnst þau vera afskipt og fá enga rödd í ákvarðanatöku.

En það er ekki bara við sveitarfélögin að sakast að þau eru mörg hver í blússandi skuldasúpu eftir fjölmörg hagstæð ár og þurfi núna að taka lán til að borga yfirdráttinn. Ríkisvaldið hefur séð tækifæri í sístækkandi sveitarfélögum og mokar á þau allskyns nútímalegum kröfum og skyldum. Sum sveitarfélög hafa svo bætt í með eigin gæluverkefnum.

Skattgreiðandinn týndist í leiðinni, og víða einnig grunnskólanemendur, ökumenn og ungt fólk í leit að hagstæðu húsnæði.

Það er góð hugmynd að Samband íslenskra sveitarfélaga standi núna að ráðstefnu um samstarf ríkis og sveitarfélaga. Þar er allt í molum og mögulega ástæða til að endurhugsa þá vegferð sem var farið í með sameiningu sveitarfélaga og notkun ríkisins á þeim sem einskonar ruslatunnu fyrir gæluverkefni.


mbl.is Beint: Samstarf ríkis og sveitarfélaga rætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fasistar fyrr og nú

Fasistum fer núna töluvert fjölgandi er marka má tungutak pólitískra rétttrúnaðarpresta sem hafa fyrst og fremst þá skoðun að vera á öndverðri skoðun við Trump. Ef Trump vill A þá vilja þeir B. Ef hann segir að himininn sé blár þá er hann í raun grænn. Ef hann segir að veira hafi átt uppruna sinn á rannsóknarstofu þá varð hún til náttúrulega í leðurblökum. 

En eitthvað hefur skilgreiningin á fasisma breyst. Einu sinni boðuðu fasistar sterkt ríkisvald undir stjórn öflugs leiðtoga sem hélt því fram að að fólk sé ekkert án ríkisins og ríkið æðra fólkinu, og að þagga megi niður í öðrum skoðunum. Sem sagt, nútímalegur vinstrimaður að einhverju leyti, herskár einræðisherra að öðru. Ekki sami hlutur og að vera nútímalegur vinstrimaður, en margir skyldleikar. 

Í dag eru fasistar þeir sem vilja hafa hömlur á þessu ríkisvaldi, hægja á útþenslu þess, skattheimtu og yfirráðum yfir lífum einstaklinga, og eru sæmilega opnir fyrir mál- og tjáningarfrelsi. 

Gott og vel, það fer að styttast í að maður fari hreinlega að kalla sig fasista í nýju skilgreiningu þess orðs. Væri það ekki eitthvað?

Auðvitað hefur orðræða rétttrúnaðarprestanna fyrirsjáanlega ýtt þeim út í horn sem öllum er sama umSvimandi fjárhæðir hafa farið í að borga Hollywood-stjörnum og frægum þáttastjórnendum til að kalla alla sem eru ekki á ystra jaðri vinstrisins fasista, nasista og rasista. Fjölmiðlar rétttrúnaðarprestanna laða að sér töluvert færra fólk en vinsælir hlaðvarpsstjórnendur. Almenningur er farinn að ranka aðeins við sér og tjá sig í gegnum atkvæðagreiðslur gegn firringunni, gefið að yfirvöld banni ekki stjórnmálaflokka á uppleið í svokölluðum lýðræðisríkjum. 

Fasistarnir svokölluðu eru miklu minni fasistar en þeir sem kalla þá fasista þegar miðað er við upprunalega skilgreiningu hugtaksins og það er farið að blasa við fleirum.

En kannski það að heyra að einhver sé kallaður fasisti sé vísbending um að þar sé rödd þess virði að hlusta á?


Hætta nýskráningu bensín- og dísilbíla á næsta ári, í alvöru?

Viðreisn vill hætta nýskráningu bensín- og dísilbíla á næsta ári segir flokkur sem hingað til hefur verið á uppleið í skoðanakönnunum. Vonandi lóðfellur hann í sæti við hlið Vinstri-grænna í kjölfar slíkrar yfirlýsingar. Samfylkingin á skilið sömu örlög. 

Bensín- og dísilbílar eru ekki að fara neitt í mörg ár svo það sé á hreinu. Fólk sleppir því frekar að borða en fylla á slíka bíla. Þeir eru hestar nútímans. Rafmagnsbílar hafa marga kosti en líka galla, og þann galla stærstan að vera óaðgengilegir venjulegu launafólki sem þarf að komast á milli staða. Ef það breytist þá endurskoða ég auðvitað þá afstöðu, en í daglegu lífi eru spádómar oft lítils virði. 

Svona yfirlýsingar koma samt ekki á óvart. Það er á mörgum vígstöðvum unnið að því að taka bílinn af venjulegu launafólki. Þetta er gert með boðum og bönnum, sköttum og öðru. Ferðafrelsi venjulegs fólks fer hreinlega í taugarnar á mörgum með nefið upp í loftið. 

Þetta kemur loftslagsbreytingum ekkert við. Launafólk í bílum fyllir göturnar, býr til umferð og hávaða og kallar á viðhald og uppbyggingu vega. Veirutímar voru mun þægilegri fyrir þá sem líta niður á aðra - engin umferð, ekkert vesen. 

En það er örlítil von og hún heitir kosningar. Kjósendur geta valið hvort þeir vilji fá að halda sínu eða sjá á eftir lífsgæðum sínum. Því miður virðast margir velja að láta svipta sig frelsi og eigum en nánast aldrei er of seint að skipta um skoðun.

Ég vissi ekki að öll vitleysan frá meginlandi Evrópu hefði náð á strendur Íslands en er hér með leiðréttur. Enn og aftur ætla Íslendingar að verða kaþólskari en páfinn - innleiða þvæluna hraðar og ákafar en aðrir. 

En sem sagt, það eru kosningar framundan. Sjáum hvað setur. 


Stjórn­ar­skrár­vörðum rétti kvenna til þung­un­ar­rofs?

Umfjöllun evrópskra fjölmiðla um stjórnmálalandslagið í Bandaríkjunum er oft sérstök, svo ekki sé meira sagt, og fellur ágætlega að lýsingunum í þessum pistli, þar sem meðal annars er skrifað:

Íslenskir fjölmiðlar skilgreina hugtakið sérfræðingur af frjálslyndi og jákvæðni. Hafi menn fengið sér Big Mac í Disney World, spilað golf í Orlando og villst í Central Park eru þeir orðnir sérfræðingar í bandarískum stjórnmálum.

Gott dæmi er nýleg umfjöllun um konur sem fjarlægja sig núna af stefnumótamarkaðinum vegna ósættis við karlkynið eins og það leggur sig (nokkuð sem kemur væntanlega karlmönnum til góða og minnkar líkurnar á að lenda í baneitruðu sambandi). Þar segir meðal annars:

Er mörg­um kon­um ofboðið að karl­menn hafi kosið fram­bjóðanda sem hef­ur ekki aðeins verið sakaður um kyn­ferðisof­beldi af tug­um kvenna held­ur stóð einnig á bak við til­nefn­ing­ar þriggja hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem greiddu at­kvæði með því að hnekkja stjórn­ar­skrár­vörðum rétti kvenna til þung­un­ar­rofs.

Þarna er öllu blandað saman. Það er gefið til kynna hér að dómari sem hefur hlotið útnefndingu úrskurði í málum að skapi þess sem tilnefndi, og verður það að teljast meðal langsóttari samsæriskenninga. Því er haldið fram að í stjórnarskrá Bandaríkjanna standi eitthvað sem heimili alríkinu að setja lög í öllum ríkjum Bandaríkjanna um fóstureyðingar og er hér með lýst eftir því hvaða ákvæði það nákvæmlega er. 

Nú er auðvitað ekkert nýtt við að hið opinbera seilist mun lengra í valdabrölti sínu en stjórnarskrár heimila, og fær maður jafnvel á tilfinninguna að það sé engin stjórnarskrá í gildi sem verji almenning gegn ásókn hins opinbera í frelsi og eigur. En það má með veikri von vona að dómstólar stöðvi slíka sjálftöku á völdum, og það er það sem Hæstiréttur Bandaríkjanna gerði í tilviki fóstureyðinga. Löggjöf um þær á heima í ríkjunum, ekki í Washington DC, rétt eins og íslensk löggjöf um fóstureyðingar er ákveðin af Alþingi en ekki Evrópusambandinu, Sameinuðu þjóðunum eða þýska þinginu.

Menn geta svo verið sammála eða ósammála - fundist að löggjöfin í Texas eða Þýskalandi eða hvar sem er ætti að vera öðruvísi - en það er bara allt önnur umræða. 

Hvað sem því líður þá er við hæfi að vitna aftur í pistilinn sem vísað var í hér að ofan:

Menn horfðu á Bandaríkin með skandinavísk frjálslyndisgleraugu á nefinu og höfðu litlar forsendur til að skilja hvað var að gerast. Þegar upp var staðið féllu þessir sérfræðingar allir á prófinu. Þeir unnu útfrá þröngum forsendum og óskhyggju sem giltu ekki þegar talið var upp úr kjörkössunum. 

Það er nefnilega það, og fjölgar þar með ástæðunum til að taka lítið mark á evrópskum „fréttaskýringum“ um bandarísk stjórnmál og jafnvel stjórnmálin eins og þau leggja sig, með veigamiklum undantekningum.


mbl.is Konur sniðganga karlmenn út af Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í boði í Brussel

Stundum getur allskonar tal í kringum Evrópusambandsaðild verið furðulegt, svo sem að það blasi ekki við hvað felist í slíkri aðild og að einhvers konar aðildarviðræður þurfi að fara fram til að komast að því. Hvað er í pakkanum? Hvað er í boði? Við bara höfum ekki hugmynd! Förum í viðræður til að komast að því!

Af því að - sjáið til - Ísland er með svo mikla sérstöðu. Fámenn eyja í Norður-Atlantshafi sem reynir að stunda landbúnað í samkeppni við sólríkari svæði og halda úti dreifðri byggð.

Er ekki hægt að búast við allskyns styrkjum og undanþágum? Jafnvel að fá meira í kassann en aðildin kostar? 

Fá fé úr vösum þýskra skattgreiðenda, eins og Austur-Evrópa og önnur svæði sem Íslendingar virðast vilja bera sig saman við? 

Fær ekki Malta slíka meðferð? Fámenn eyja sem reiðir sig á meginlandið?

En svona hugsa þeir ekki í Brussel. Þar eru menn ekki að fara breyta reglunum fyrir Ísland. Jú, mögulega eru einhverjir styrkir í boði þar til þeir eru það svo ekki lengur. Kannski er ákveðin sérstaða í legu Íslands sem veitir smávegis afslátt. En aðildarviðræðurnar eru í raun aðlögunarviðræður: Hversu hratt og vel getur Ísland aðlagað sig að kröfum Evrópusambandsins - ekki öfugt. 

Svo geta menn hugleitt það vel og vandlega hvort Evrópusambandið sé eitthvað sem er að dafna og batna eða eitthvað sem er að grotna niður. Eru fyrirtækin innan þess að vaxa og eflast eða hreinlega að loka verksmiðjum og flýja? Eru orkureikningarnir að hækka eða lækka? Er glæpum að fjölga eða fækka? Er verið að aðlaga innflytjendur að evrópskum gildum eða víkja fyrir framandi gildum úr fjarlægri fornöld? 

Þetta með gjaldmiðilinn er svo önnur saga sem þarf ekki að blanda saman við aðild að Evrópusambandinu. Best væri auðvitað að loka Seðlabanka Íslands og koma á algjöru frelsi en þá þurfa opinberir starfsmenn að missa störfin svo sú umræða nær ekki lengra.

Hvað er svo í boði í Brussel? Það blasir við. Þar á bæ fara menn ekki í aðildarviðræður heldur innlimunarviðræður, og kröfurnar blasa við.


mbl.is Innganga í ESB ekki töfralausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir Trump núna?

Það er alveg magnað að heyra fólk tala um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. 

Hvað gerir hann núna?

Núna stoppar hann ekkert með þingmeirihluta í farteskinu!

Hann mun núna banna fóstureyðingar!

Núna verður Project 25 hrint í framkvæmd!

Ég tek eftir því að enginn talar um að Trump muni gera eitthvað hræðilegt „aftur“ eða „eins og seinast“. Það man hreinlega enginn eftir neinu sem hann gerði annað en að á hans forsetatíð valdi Hæstiréttur Bandaríkjanna að endurskoða eigin úrskurð um heimildir alríkisins til að setja lög um fóstureyðingar innan ríkja Bandaríkjanna. Sem sagt: Ekki einu sinni verk Trump.

Hefur fólk gleymt því að hann var forseti í 4 ár og því algjörlega fyrirsjáanlegur? Auðvitað hjálpa þingmeirihlutar en þeir eru jú samt bara það - þingmenn sem kjósa um mál, hver og einn, og stundum úr takt við þarfir og óskir forsetans. 

Auðvitað er þetta viðbúið tal og eins hótanir fólks um að flytja frá Bandaríkjunum og hvaðeina og að ætla núna að stofna til mótmæla og rústa eigum venjulegs fólks. Eftir nokkrar vikur af ósköp venjulegri forsetatíð sem hefst á því að undirrita margar tilskipanir mun fólk ekki taka mikið eftir því hver er forseti Bandaríkjanna, a.m.k. ekki í Evrópu. Trump mun birtast á sjónvarpsskjá þar sem hann fer í opinberar ráðstefnur og þess háttar og yppa öxlum. 

Eins og seinast.



Leiðrétting: Harris vildi EKKI koma í hlaðvarpið

Blaðamenn afhjúpa stundum skoðanir sínar á viðfangsefninu og gera það með ýmsum hætti. Það getur verið óvart en líka viljandi. 

Þeir geta sagt frá næstum því öllu sem skiptir máli til að veita samhengi en sleppt ákveðnum atriðum til að beina huga lesenda eða hlustenda í rétta átt. 

Þeir geta blandað saman staðreyndum og uppspuna.

Þeir geta valið að skilgreina eitthvað á ákveðinn hátt svo hughrifin verði ákveðin, svo sem að kalla hóp raðnauðgara frá Pakistan Asíubúa

Svo geta þeir sagt frá því þegar Kamala Harris vildi koma í hlaðvarp Joe Rogan, vinsælasta hlaðvarpsstjórnanda heims, en fékk það ekki, eða með orðum blaðamanns:

Í októ­ber kom út þriggja klukku­stunda lang­ur viðtalsþátt­ur við Trump sjálf­an. 

Teymi Harris er sagt hafa átt í viðræðum við Rog­an á síðustu vik­um um að koma í hlaðvarpið en ekk­ert varð af því.

Joe Rogan þó! Að stunda ritskoðun til að ná fram pólitískum markmiðum! Að hampa einum frambjóðanda en meina öðrum aðgangi! 

Eru það ekki hughrifin sem er reynt að kalla fram hérna?

Staðreyndin er allt önnur. Donald Trump settist niður í hljóðveri Rogan og ræddi þar ýmis mál í þrjár klukkustundir. Þrjár klukkustundir! Þannig eru þættir Rogan. Þeir eru það sem kallast „long form“ viðtöl. Þetta er leyniuppskrift Rogan - það sem kom honum á kortið. Fólk er orðið þreytt á kappræðum, örstuttum og klæðskerasniðnum viðtölum og hraðaspurningum. 

Svona viðtöl tekur Rogan í eigin hljóðveri þar sem er allt til alls, tæknimaður, skjár til að varpa á og öskubakki til að setja vindlaöskuna í, eða jónuöskuna ef því er að skipta. 

Og hvað vildi Kamala Harris? Hún vildi að Rogan kæmi til hennar og að viðtalið við hana tæki að hámarki eina klukkustund. Þetta eru opinberar upplýsingar. Af hverju að sleppa því að nefna þetta? Jú, til að fá þig til að hugsa með þér að Rogan hafi haft pólitískan ásetning - að hampa viðmælandum sem kom í þrjá tíma í hljóðver en loka á annan sem vildi fá stjórnanda í stofuna sína og drepa í raun þá viðtalstegund sem stjórnandi er þekktur fyrir og hlýtur vinsældir út á.

Ég skil alveg að við Evrópumenn teljum Harris vera betra forsetaefni en Trump. Hún talar eins og við viljum að sé talað og lofar skattahækkunum og öðru sem við kjósum svo ítrekað með. En leyfum nú Bandaríkjamönnum bara að eiga sínar kosningar og í versta falli að sumra mati - ef Trump vinnur - þá hættum við að þurfa styðja fleiri stríð en við gerum nú þegar, og ríki Bandaríkjanna fá sjálf að ákveða hvaða lög gilda innan landamæra þeirra, meðal annars um fóstureyðingar, rétt eins og ríki Evrópu.

Ekki svo slæmt, þrátt fyrir allt.


mbl.is Rogan lýsti formlega yfir stuðningi við Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband