Bush þarf að sýna góðan endasprett

George W. Bush mundi gera vel með því að lappa upp á vængbrotinn forsetaferil sinn með því að þrýsta með öllu afli á að Bandaríkin geri sem flesta fríverslunarsamninga, þá sérstaklega við Mið- og Suður-Ameríkulönd sem reyna nú að standast mútugreiðslur úr olíusjóðum Venesúela.

Sósíalismi Suður-Ameríku er óðum að loka dyrum sínum á lífskjarabætingar þegna sinna rétt eins og sá austur-evrópski gerði á sínum tíma í Evrópu, og slíkt getur haft skelfilegar afleiðingar í för með sér. Opnun á alþjóðaviðskipti við þennan heimshluta, nánast á hvaða skilmálum sem er, getur því eingöngu verið til bóta.

Nú er að vona að Bush eigi enn eftir einhvern trúverðugleika sem hann svo nýtir til að tengja milljónir fátækra Suður- og Mið-Ameríkubúa við allsnægtir hins kapítalíska veisluborðs.

Enginn syndir á leku gúmmídekki frá Bandaríkjunum til Kúbu, eða smyglar sér undir gaddavírsgirðingu til að komast frá Bandaríkjunum til Venseúela (ef þannig má að orði komast). Straumurinn er í hina áttina. Ætli það sé ekki vísbending um eitthvað? 


mbl.is Bush styður forseta Kólumbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú Michael Moore fór þarna yfir á einhverjum dalli. Mæli með að menn kynni sér http://www.youtube.com/watch?v=aEXFUbSbg1I&feature=related

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 21:47

2 Smámynd: Geir Ágústsson

En ílengdist ekki, öllum að óvörum, eða hvað?

Geir Ágústsson, 4.3.2008 kl. 22:13

3 identicon

Ég veit það ekki ég bjóst alveg við því að hann yrði eftir, en það var kannski bara óskhyggja.

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 23:04

4 identicon

Frjáls verslun er eina leiðin til að hafa alvöruáhrif á harðstjórn í öðrum ríkjum. Þetta á ekki bara við um Suður-Ameríku heldur einnig Miðausturlönd. En mér sýnist að öll forsetaefnin í BNA vilji hafa áfram, og jafnvel auka við, þá verndarstefnu sem þar hefur verið við lýði.

Úlfur (IP-tala skráð) 5.3.2008 kl. 16:12

5 identicon

Það væri rosalega gaman að sjá USA gera fríverlsunarsamning við Kúbu. Gera alla verslun frjálsa, bara allt frjálst flæði vöru, þjónustu, vinnuafls og alles. Eyjan myndi kannski tæmast á svona korteri en hver veit kannski einhver myndi flytja til baka enda komið fríverslunarríki.

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 02:25

6 identicon

Þegar stjórnvöld á Kúbu geta ekki lengur kennt BNA um allt sem aflaga fer er augljóst að réttum aðila verður kennt um. Kastró-stjórnin félli eins og spilaborg.

Kúba myndi svo sannarlega ekki tæmast. Hafandi í huga hversu erfiðar aðstæður þarf til að fólk neyðist til að yfirgefa heimaland sitt á ég bágt með að sjá hvernig aukið frjálsræði ætti að hafa þau áhrif. Það eru til ríkir Kúbumenn í BNA sem bíða eftir tækifærinu til að koma landi sínu á réttan kjöl.

T.d. tæmdist Rússland ekki, og Austur-Þýskaland ekki heldur. Einhverjir fluttu burt, það er rétt, en uppgangur og bætt lífskjör urðu staðreynd hjá þeim sem eftir urðu.

Úlfur (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 12:33

7 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég held að óskalisti þinn sé of langur Geir og að þú gerir óraunhæfar kröfur til Bush-stjórnarinnar. Raunar held ég að engum sé gerður greiði með fríverslunarsamningum við ríki sem ekki eru stjórnmálalega og efnahagslega tilbúin til slíks. Til dæmis skilst mér að NAFTA gangi vel að sumu leyti en miður hvað aðra þætti varðar. Mexico er líklega of mannmargt og of vanþróað til að allir þættir gangi upp.

Góð samskipti hafa tekist með Bandaríkjunum og Kólumbíu. Líklega munum við sjá þessi samskipti aukast og ef vel gengur og hagur Kólumbíu eflist, munu fleirri ríki Suður-Ameriku sækjast eftir sama mynstri.

Höfum í huga að í Suður-Ameríku er fullt af vitleysingum eins og Hugo Chavez og Castro. Þeir geta á skömmum tíma gert að engu áratuga framþróun. Venezuela var lengi vel í góðum gír, en nú eru horfur þar skelfilegar, þrátt fyrir að þeir syndi í olíu.

Loftur Altice Þorsteinsson, 7.3.2008 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband