Innbrot um hábjartan dag?

Ríkisstarfsmenn eru þeir einu sem fá lögregluvernd þegar þeir brjótast inn. Aðrir þurfa yfirleitt að treysta á lögregluverndina til að verja sig gegn innbrotum. Svona er lífið einkennilegt stundum.

Það kemur mér samt á óvart að Mjólkursamsalan af öllum fyrirtækjum sé núna fórnarlamb innrásar frá Samkeppniseftirlitinu. Mjólkuriðnaður á Íslandi er fjarri því að geta kallast "frjáls markaður". Kúabændur búa við ríkisrekið kvótakerfi og innflutningur á mjólkurafurðum er rækilega njörvaður niður í úthlutunarkerfi sem auðvitatð er stjórnað af opinberum embættismönnum.

Þótt einhverjar smærri mjólkursamsölur úti á landi kvarti yfir stærð stærsta samsölunnar á stærsta markaðssvæðinu þá er það ekki til marks um að neitt sé "að" sem þurfi að "leiðrétta". Þegar ríkinu er sigað á stærsta keppinautinn með það að markmiði að skaða orðstír hans og flækjast fyrir rekstri hans, þá er eitthvað að!

Vonandi mun ekkert "grunsamlegt" koma út úr innbrotinu í Mjólkursamsöluna. Vonandi verður innbrotið bara til þess að tugir opinberra embættismanna eyði helling af tíma í að blaða í gegnum óspennandi trúnaðarskjöl og hafi þar með ekki tíma til að ráðast inn í önnur fyrirtæki á meðan. Kostnaðarsamt fyrir skattgreiðendur en e.t.v. nauðsynlegt til að halda öllu þessu starfsfólki hins opinbera uppteknu svo það geri ekki enn meiri skaða hjá öðrum!


mbl.is Samkeppniseftirlitið að bera út gögn hjá Mjólkursamsölunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kári Harðarson

Vonandi er þetta bara tímaeyðsla.  Ég óttast samt að Samkeppniseftirlitið hafi haft rökstuddan grun áður en það fékk löglega heimild til að skoða gögn MS.

Eftirlitið veit að þessar aðgerðir eru óvinsælar ef þær skila engu og þessvegna vanda menn sig. 

Líklega snýst málið ekki um einokun MS, hún er "lögleg".  Þótt MS hafi einokun eru samt nokkur landslög eftir sem þeir gætu hafa brotið.

Kári Harðarson, 5.6.2007 kl. 11:05

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Almenn hegningarlög eða hin skrýtnu landslög, "samkeppnislög"? Tilkynning fyrirtækjanna (þau eru víst orðin mörg núna) staðfestir það sem ég hef sagt: Verð er ákveðið af EMBÆTTISMÖNNUM og ég býst við að allar árs- og afkomuskýrslur liggi fyrir.

Kári, ég held að von þín um vönduð vinnubrögð og rökstuddan grun sé röng, en við sjáum hvað setur. Samkeppnislög eru sama eðlis og jafnréttislög - allir eru sekir uns sakleysi er sannað. Ég vona að kaupendur mjólkurvara þurfi ekki að blæða of mikið svo sakleysið megi sanna að þessu sinni.

Geir Ágústsson, 5.6.2007 kl. 13:27

3 identicon

Ég hélt að þú myndir nú fagna þessu...

Árni Richard (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 17:43

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég mundi fagna innrás Samkeppnisstofnunar inn á íslensk sjúkrahús, vínverslanir og framhaldsskóla. Fréttin gæti byrjað svona:

"Rökstuddur grunur liggur fyrir um verðsamráð, of háa gjaldskrá, samkeppnishamlandi starfsemi og tilraunir til að koma í veg fyrir stofnun nýrra samkeppnisaðila á sviðum menntunar, heilbrigðisgæslu og áfengissölu. Ríkisvaldið liggur undir grun og má búast við kæru von bráðar."

Er ég bjartsýnn?

Geir Ágústsson, 5.6.2007 kl. 21:30

5 identicon

Við skulum bara vona það besta fyrir Mjólku...

MS ætti ekki í skjóli ríkisvaldsins að eyða einkarekinni samkeppni. 

Árni Richard (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 07:38

6 Smámynd: Geir Ágústsson

MS ætti ekki að vera í skjóli neins. Hvernig stendur á því að ríkið spilar hlutverk í mjólkurframleiðslu og -sölu á Íslandi? Hvernig stendur á því að ríkið býr til kerfi sem býður upp á að einhver hefur meiri "réttindi" til einhvers en annar, og svo til annað kerfi sem sigar starfsmönnum sínum á starfsmenn hins kerfisins? 

Ef einhver býður upp á rökrétta útskýringu þá er ég galopinn fyrir henni. Ef útskýringin er órökrétt þá mundi ég líka vilja heyra hana, en lofa ekki skilningi. 

Geir Ágústsson, 7.6.2007 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband