Þegar fjölmiðlar velja að þegja

Ég bý í frekar rólegu svæði í útjaðri Kaupmannahafnar og er hér með eitt og bráðum tvö grunnskólabörn sem ég treysti á einn eða annan hátt hinu opinbera fyrir. Bæði ætlast ég til þess að þau læri eitthvað í skólanum - námsefni, félagsþroska og annað slíkt - en einnig hitt að þau séu laus við heilaþvott. Ég hef ekki séð merki um annað en að þetta traust sé verðskuldað og fyrir það er ég þakklátur.

Á Íslandi virðist þessu vera öfugt háttað. Börnin tileinka sér mjög takmarkað námsefni og eru heilaþvegin frá morgni til kvölds. Á veggjum skóla eru veggspjöld sem fá þau til að endurskoða eigin líffræðilega veruleika. Heilu vinahóparnir koma heim eftir heilaþvott frá utanaðkomandi áróðurssamtökum og segjast vera af einhverju öðru kyni en því sem þau raunverulega eru af. Mörgum þeirra er í kjölfarið beint í hendur skottulækna sem leggja til að þau stöðvi kynþroska sinn og undirbúi sig undir vegferð sem endar á limlestingum á kynfærum þeirra og í kjölfarið geldingu.

Yfir þessu kætast margir, svo sem lyfjafyrirtækin og þeir sem vilja fækka mannkyninu, en því miður fyrir þessa aðila þá verður þessi nýja dýrkun á geldingum stöðvuð. Búið er að afhjúpa skottulækningarnar að baki þessari vegferð og fjalla um það á Íslandi. Öflugar raddir með alþjóðlegan hlustendahóp, eins og Dr. Jordan Peterson og Michael Schellenberger, leggja nú alla sína þyngd á að róa frá þessari tilraunastarfsemi á börnum og tilræði við samkynhneigð sem samþykktan hluta af mannlífinu. 

Landlæknisembættið breytir svörum sínum um hvaða vísindi liggja að baki meðferðarúrræðum á íslenskum börnum sem telja sig vera af öðru kyni. Viðbúið er að íslensk baráttusamtök fyrir auknu hringli í haus og líkama barna geri hið sama án þess að hafa hátt um það.wpaths78 

Íslendingar láta stroka nöfn sín út af lista yfir meðlimi skttulækningarsamtakanna. 

Spilaborgin er hrunin og það er stórmál.

En hvað gera fjölmiðlar þá? Á bæði Íslandi og erlendis.

Þeir þegja.

Þeir láta eins og ekkert sé. Eins og engin gróf og alvarleg mistök hafi verið gerð með því að hleypa erlendum skottulækningum að íslenskum börnum og ungmennum.

En það er ekki öll von úti. Þökk sé gengdarlausum ritskoðunum hefðbundinna fjölmiðla á veirutímum hefur myndast frjór og góður jarðvegur fyrir valkosti við þá. Hinir hefðbundnu fjölmiðlar gerðu sig ónothæfa og bjuggu til pláss fyrir málfrelsi á öðrum miðlum. Það er til dæmis hægt að treysta á Brotkast til að taka fyrir málin sem aðrir vilja ekki eða þora ekki að snerta með priki. Eins má alveg þakka Morgunblaðinu fyrir að hafa ekki enn ritskoðað penna úti í bæ, eins og mig, þótt þeir geti stuðað einhverja. 

Gott og vel, hefðbundnir fjölmiðlar geta ennþá sagt okkur frá úrslitum íþróttaleikja, veðurspánni og því hvaða fræga fólk er að giftast eða skilja.

En fyrir þungu og erfiðu málin þarf að leita annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mér finnst að t.d. RÚV sé orðin að alsherjar áróðusvél en ekki sú fréttastofa sem ætlast er til að henni. Flott grein og tímabær hjá þér. 

Sigurður I B Guðmundsson, 1.4.2024 kl. 09:01

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Frá bær grein hjá þér og tek undir hjá nafna minum hér að ofan.

Sigurður Kristján Hjaltested, 1.4.2024 kl. 11:42

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Blaðamannafélagið rær nú lífróður með heilsíðu og opnu auglýsingum um mikilvægi sitt. En fólk er búið að átta sig á að það selur svikna vöru og að hægt er að leita annað að upplýsingum.

Auðvitað er alltaf til fólk sem nennir ekki að hugsa, nennir ekki að vita, en því fækkar. Því á endanum fylgir það meginstraumnum og hann er að breyta um stefnu. 

Ragnhildur Kolka, 1.4.2024 kl. 12:17

4 Smámynd: Riddarinn

Nauðsynlegu málin í þjóðfélaginu eins og umgengni beggja foreldra við börnin okkar eru með öllum ráðum þögguð því hag og forréttindum mæðra skal ekki hruflað við. Starfsfólk sem býr ti fréttir er ekki fréttafólk heldur er það öfgafólk og fyrst og fremst starfað sem málpípur femínisma kynjatstíðs transfólks homma og lesbía covit bólusetning áróðurs og svipaðra mála. Það er að leitast við að fá símar persónulegu vinsældir frá öfga og óeyrðahópum. DV starfsfólk og stefna þess er gott dæmi um misnotkun starfsfólks á aðstöðu sinni hjá fjölmiðli og staðbundinn öfga áróður starfsfólks þegar það fjallar í síbylju um fátt annað en feminisma ofbeldi karlmanna dóma gegn karlmönnum kynferðisbrot og endalausar ásakanir um nauðganir og aftur nauðganir innlendar og svo aukalega erlendar nauðganir og morð karlmanna til að viðhalda streyminu og linnulausum ásökunum á karlkynið til niðurrifs og hjálpar við feminisk öfgaöfl aftur aftur ársins hring.

Riddarinn , 2.4.2024 kl. 12:22

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Sigurður og Sigurður,

Ég þakka hrósið. Hérna er RÚV ekki eini fjölmiðillinn til umræðu en Morgunblaðið gerði vel að birta hluta af þessari pælingu í ritstjórnarpistli og taka gagnrýnina til sín. 

https://www.mbl.is/mogginn/bladid/grein/1858739/

Ragnhildur,

Þessu tók ég eftir fyrir nokkrum dögum og uppnefndi átaki undireins sem brandari.is. Ekki hefur þetta ævintýri kostað lítið, og engu mun það skila.

Bladamennska.is - brandari punktur is - geiragustsson.blog.is

Riddarinn,

Að gera börn föðurlaus er mjög ákaft baráttuverkefni margra hópa, aðallega róttækra femínista en mögulega líka hjá trans hreyfingunni. En vittu til, þetta er ekki töpuð barátta! Við sjáum nú þegar hvernig lítið gengur að ásaka menn upp úr þurru og losna þar með við þá. KSÍ er hérna kannski seinast að vakna þegar þeir drepa heilu landsliðin en kannski hætt því núna eða bráðum. Allskyns lista- og fjölmiðlamenn hafa snúið aftur úr útskúfun og engin leið að stöðva það.

Haltu áfram að trúa á góða málstaðinn og gefa honum uppbyggilegan stuðning.

Geir Ágústsson, 3.4.2024 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband