" ... í samræmi við óskir yfirstjórnar sjúkrahússins"

Einnig vilji minni­hlut­inn tryggja Land­spít­al­an­um full­nægj­andi fjár­magn í sam­ræmi við ósk­ir yf­ir­stjórn­ar sjúkra­húss­ins.

Þetta er athyglisverð ósk. Hún segir svo margt um það hugarástand sem ríkir í kringum ríkisreksturinn. Þar eru bara ákveðnar "þarfir" sem eru fyrirfram þekktar og þarf einfaldlega bara að uppfylla með fé úr vösum skattgreiðenda. Annars verður hallarekstur eða deildum er lokað. Svona líka einfalt.

Úti í raunveruleikanum - þar sem einkaaðilar starfa - lítur málið öðruvísi við. Þar eru vissulega ákveðnar þarfir og óskir allra eru að nægt fé fáist með sölu á varning og þjónustu til að fjármagna þær. En viti menn, það er ekkert víst! Hvað gerist þá? Er deildum lokað og þjónustan skorin niður auk þess sem verðið er hækkað? Nei. Þvert á móti þarf fyrirtækið núna að leggja enn meira á sig fyrir minna fé og jafnvel færra starfsfólk til að krækja í aukin viðskipti. Allra leiða er leitað til að spara án þess að það bitni á þjónustunni eða flæmi viðskiptavinina í hendur samkeppnisaðila. Starfsfólki er kennt nýjar leiðir til að nýta tæki og tól og eigin tíma. Yfirmönnum er sagt að finna leiðir til sparnaðar og fjarlægja allan óþarfa. 

Á sama tíma þarf að heilla viðskiptavinina og bjóða betur en sá næsti svo tekjurnar aukist.

Þarfir og óskir stjórnenda eru vissulega til staðar en þeir geta ekki bara rétt út höndina og ætlast til þess að einhver leggi fé í þær. 

Ríkisreksturinn kemst upp með að gera minna og minna fyrir meira og meira fé, út í hið óendanlega. 

Ríkisvaldið á ekki að reka sjúkrahús frekar en önnur fyrirtæki eða stofnanir. Það er eins og að rétta unglingi bíllyklana og vodkapela og óska honum góðrar skemmtunar. 


mbl.is „Menn eru í algjörri sjálfheldu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við skulum byrja á því að losa okkur við ÁTVR, RÚV og Ríkiskirkjuna áður en við losum okkur við heilbrigðiskerfið.  

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 16.12.2015 kl. 11:46

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Ríkið fann ekki upp heilbrigðiskerfið heldur þvert á móti hernam það á erfiðum tímum og neitar að sleppa aftur.

En jú pólitískt er sennilega betra að týna ávextina sem hanga lágt áður en klifrað er hærra. En þótt það sé auðveldara að frelsa þrælana á annarri hendi en báðum þá held ég samt áfram að berjast fyrir því að þeir fái frelsi á báðum höndum. 

Geir Ágústsson, 16.12.2015 kl. 13:05

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Bankar og lífeyrissjóðir eru með allt heila ólöglega og rænda ríkisbatteríið í gíslingu. Það er alvarleg staðreynd!

Lífeyrissjóða-skrifstofan stjórnar meira að segja Tryggingarstofnun ríkisins. Og þar af leiðandi svíkur Tryggingarstofnun ríkisins fjölda fólks um lögleg réttindi og siðmenntaða þjónustu!

Það er mjög mikilvægt að fólk skilji þetta alvarlega og óverjandi ástand hjá Tryggingarstofnun ríkisins.

 

Okurránshagnaður bankanna og lífeyrissjóðaskattpíningar er svo svimandi hár, að ekki er mögulegt fyrir nokkurn mann að skilja réttlætanlegan óbreyttan tilverutilgang banka/lífeyrissjóða, með sömu áframhaldandi lögleysuna!

Hvers vegna sleppa gíslatöku-bankar/sjóðastofnanir alltaf við beinskeyttar spurningar og svör með eftirfylgni í fréttafjölmiðlunum fjölmörgu í nútímasamfélagi?

Það er ekki nóg að koma með eina litla ritskoðaða og fyrirframákveðna samkomulagsumræðu, og gleyma svo öllu saman!

Það er mikilvæg og þörf vinna, að halda réttlætanlegri og gagnlegri gagnrýni til streitu í öllum málum. Það er í raun skilyrðis/undanbragðalaus skylda opinberra fjölmiðla og allra annarra, að gefa ekkert eftir í að komast til botns í löglausum raunveruleikanum. Til að verja heiðarleg fyrirtæki og almenning á réttlætanlegan löglegan hátt. En ekki til að verja einhverjar lögbrjótandi risasvika-fjárglæfrastofnanir, (hverju nafni sem þær nefnast).

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.12.2015 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband