Straumurinn að ókeypis hlaðborðinu

Tugþúsundir flóttamanna streyma nú í ókeypis hlaðborðið sem Evrópa er fyrir þá sem komast þar inn. Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart.

Löndunum sem flóttafólkið kemur frá er stjórnað af fólki sem hefur engan áhuga á að bæta lífskjör íbúanna eða auka svigrúm þeirra til að byggja upp eigið líf og ná hamingjunni á sinni eigin forsendum. Það er staðreynd. Þetta eru lönd sem banna flest og sníða fólki mjög þröngan skatt. Oft blossa upp átök þegar einn hópur stríðsmanna reynir að hrifsa völdin af öðrum hópi stríðsmanna. Almennir borgarar verða þá fallbyssufóður.

Til að sporna við þessu ástandi hefur eftirfarandi oftast verið nefnt:

  • Að auka kostnað smyglaranna við starfsemi sína og þvinga þá þannig til að taka enn meiri áhættu í skiptum fyrir enn meiri ágóða. Um þetta er m.a. fjallað hér.
  • Að reyna undanskilja suma frá gjafaborði Evrópuríkjanna með mismunun.
  • Að reyna dreifa fjöldanum víðar, sem endar nú samt oft á því að heilu borgirnar þarf að byggja undir flóttafólk og innflytjendur.

Það sem þyrfti samt að gerast er:

  • Að Evrópuríkin hverfi af braut velferðarríkisins og geri hvern og einn, e.t.v. í samvinnu og samstarfi við aðra, ábyrgan fyrir eigin framfærslu, menntun, börnum, atvinnuleysistryggingum og elli, svo fátt eitt sé nefnt. Þetta fyrirkomulag dregur að sér duglega einstaklinga sem átta sig um leið á því að sumir þurfa á aðstoð að halda og veita hana með frjálsum framlögum eða einhvers konar rekstri sem höfðar til þeirra sem þurfa á aðstoð að halda.
  • Að Evrópuríkin hætti að gera málefni flóttamann og innflytjenda að einhverju pólitísku máli þar sem eitt gengur yfir alla, og veiti eigendum lands og vinnustaða þess í stað réttinn á ný til að ákveða sjálfir hverjir komast inn og hverjir ekki. 
  • Að stjórnendum fátækra og stríðshrjáðra landa sé sagt fullum fetum að það sé þeirra eigin yfirlýsta og meðvitaða stefna sem er að valda öðrum miklum vandræðum, og að viðkomandi eigi að gera úrbætur í stað þess að rétta í sífellu út lófann og biðja um ölmusa frá þeim betur stöddu.

Sagan kennir okkur að flóttamanna- og innflytjendastraumur er alltaf frá fátækum, sósíalískum ríkjum og í átt að þeim frjálsari og kapítalískari. Besta leiðin til að hægja á þessum straumi er að gera meira af plánetu okkar frjálsa og kapítalíska. Þá getur fólk á ný fundið von um að geta náð markmiðum sínum í lífinu án þess að yfirgefa heimalandið, fjölskylduna og vinina og troða sér á lekan dall í Miðjarðarhafinu. 

Samúð mín er mikil fyrir örvæntingarfullu flóttafólki. Hún er engin fyrir harðstjórum og þeim sem verðlauna harðstjórana með ölmusa og misskildri vorkunn. Hún er líka lítil fyrir svokölluðum mannvinum sem halda að með niðurgreiðslu á fátækt fáist eitthvað annað en meiri fátækt. 


mbl.is 3.700 flóttamönnum bjargað á Miðjarðarhafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

"Sagan kennir okkur að flóttamanna- og innflytjendastraumur er alltaf frá fátækum, sósíalískum ríkjum og í átt að þeim frjálsari og kapítalískari"...

Er það nú allskostar rétt ? - Kemur þetta fólk ekki að mestu leyti frá forríkum einræðisherraríkjum (jú, harðstjórum)..þar sem auðnum er hinsvegar misskipt ? 

Ömurlegt samt, en þetta verður nú að hafa einhvern endi.

Már Elíson, 3.5.2015 kl. 12:01

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Straumurinn var frá:

- Austur- til Vestur-Þýskalands

- Sovétríkjanna til Evrópu

Straumurinn er frá:

- Norður- til Suður-Kóreu

- Mexíkó til Bandaríkjanna

- Afríku til Evrópu

Er ég að missa af einhverju? Auðvitað er "frjálst og kapítalískt" afstætt, en samt. 

Geir Ágústsson, 3.5.2015 kl. 12:28

3 Smámynd: Már Elíson

Hvurslags svar var þetta...Erum við ekki að tala um atburðina sbr. greinia, fyrir botni Miðjarðarhafs..núna ?

Már Elíson, 3.5.2015 kl. 15:48

4 identicon

Og ég sem hélt, við lestur fyrirsagnarinnar, að þú ætlaðir að fjalla um stöðugan flótta Íslendinga til Noregs. Hlutfallslega er hann meiri en straumurinn frá Afríku til Evrópu.

Hábeinn (IP-tala skráð) 3.5.2015 kl. 16:07

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Er kannski ekki að hugsa skýrt eftir heilan dag af fullu húsi af börnum, en jú er að tala um flóttamannastrauminn frá Afríku til Ítalíu. Hann er gríðarlegur þótt hlutföll séu hærri annars staðar af flóttamannastraumi sem fer frekar friðsællega fram og þannig að allir virðist græða á honum.

Geir Ágústsson, 3.5.2015 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband