Hvað hafa sóttvarnaraðgerðir drepið marga?

WHO um grímunotkunÁrið 2019 stóð í leiðbeiningum Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­ar­inn­ar (e. World Health Organization, WHO) að útgöngubönn, almenn grímunotkun og lokun skóla og fyrirtækja væru ekki sannreyndar aðferðir til að takast á við veirusmit og ekki var mælt með slíkum aðgerðum. Meira að segja smitrakning var talin hæpin aðgerð að teknu tilliti til áhrifa. 

WHO um smitrakninguEn öllu var þessu hent í ruslið á fyrstu mánuðum ársins 2020. Nýleg rannsókn frá John Hopkins spítalanum í Bandaríkjunum gefur kannski tilefni til að endurskoða þá ákvörðun. Hún komst að þeirri niðurstöðu að útgöngubönn hafi ekki haft nein áhrif á fjölda dauðsfalla en fórnarkostnaðurinn á hinn bóginn búinn að vera svimandi, bæði í fé og töpuðum lífum.

Það er því kannski ráð að grafa aðeins í ruslatunnunni og finna hinar fyrri leiðbeiningar, ekki satt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Má bæta við að enginn hefur hlustað á eða farið eftir WHO síðastliðin tvö ár nema forsætisráðherra nefndi um daginn hvers vegna ekki aflétt er hraðar, þá hentaði að vísa til þeirra.

Tilgáta mín er að þeir sem elska þessar takmarkanir eigi svo erfitt með allt áreitið sem frelsið býður upp á og virðast loks finna ró í líf sitt með takmörkunum og stjórnsemi.

Rúnar Már Bragason, 5.2.2022 kl. 13:14

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Nær allir þeir sem deyja nú af völdum Covid 19/Omicron í Danmörku hafa EKKI verið bólusettir.

Ég held ekki að þú ættir að tala um töpuð líf, Geir Ágústsson, þú sjálfhverfi samfélagsflóttamaður (egóisti).

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.2.2022 kl. 14:36

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Vilhjálmur,

Ég held nú ekki að WHO sé að mæla gegn bólusetningum og sjálfur er ég enginn andstæður þess að fullorðið fólk láti sprauta sig ef það vill og á meðan börnunum er hlíft við lyfjagjöf sem á að slá á veirusjúkdóm sem þau finna voðalega lítið fyrir.

Flestir sem deyja af vörum veirunnar eru aldraðir einstaklingar. Þeir eru næstum því allir bólusettir, og þeir sem eru það ekki eru svo hrumir að þeir eru ekki taldir þola bólusetninguna.

Geir Ágústsson, 5.2.2022 kl. 14:43

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Fyrir þá sem hafa áhuga á dönskum tölum þá get ég mælt með þessari síðu:

https://covid19danmark.dk

Þar sést að nánast allir sem deyja af völdum Covid eru þríbólusettir háaldraðir einstaklingar.

Geir Ágústsson, 5.2.2022 kl. 14:46

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Þetta eru skelfilegar tölur fyrir rétttrúnaðarfólkið.

Hljóta að vera falsaðar tölur og ábyggilega frá einhverri

feiksíðu.cool

Sigurður Kristján Hjaltested, 5.2.2022 kl. 15:24

6 identicon

Árið 2019 höfðu útgöngubönn, almenn grímunotkun og lokun skóla og fyrirtækja ekki verið sannreyndar sem aðferðir til að takast á við veirusmit hjá heilum þjóðum. Snemma árið 2020 var strax farið í útgöngubönn, almenna grímunotkun og lokun skóla og fyrirtækja með góðum árangri. Þar með taldist það vera sannreynt að það virkaði meðal alls almennings og á heilu ríkin, eins og það hafði gert á áratugi meðal fámennra hópa heilbrigðisstarfsfólks og annarra sem önnuðust veirusmitaða. Og árangur þeirra ríkja sem harðast gengu fram í þeim aðgerðum er eftirtektarverður.

Nýleg gölluð og hlutdræg samantekt valdra kannana yfir stutt valið tímabili og landsvæði er ekkert sem hægt er að segja marktækt og taka alvarlega.  https://www.frettabladid.is/frettir/segir-nidurstodur-rannsoknar-um-ahrif-adgerda-a-covid-smit-skekktar/

Á https://covid19danmark.dk sést að nánast allir sem deyja af völdum Covid í Danmörku frá byrjun Nóvember síðastliðnum til loka Desember eru þríbólusettir háaldraðir einstaklingar, enda mjög hátt hlutfall í þeim aldurshópi þríbólusettir. Sem hlutfall af hverjum 100.000 þá eru það óbólusettir og tvíbólusettir sem eiga metið og eru rúmlega fjórfalt fleiri en þríbólusettir.

Vagn (IP-tala skráð) 5.2.2022 kl. 15:41

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Engin rannsókn er fullkomin en það eru margir fletir sem þarf að skoða.

Umframdauðsföll síðan janúar 2020 eru svipað mörg í Svíþjóð og Nýja Sjálandi. Það dóu sem sagt alveg jafnmargir og venjulega í báðum ríkjum. Annað var nokkuð opið og börnin misstu ekki úr skóla. Hitt varð að fanganýlendu þar sem epli rotnuðu á jörðinni því það fékkst ekki innflutt vinnuafl til að hjálpa til við uppskeruna.

Tapaðar krabbameinsskimanir, vímuefnavandi, brottfall úr skóla, vonleysi í kjölfar tekjumissis og atvinnuleysis, einangrun, skertur talþroski ungra barna vegna feluleiks á andlitum fólks, kvíði og margt fleira mun koma í hausinn á okkur á næstu mörgu árum. Já, taktu sem dæmi (væntanlega því þú telur það vera til fyrirmyndar) eyju sem lokaði sér af fyrir umheiminum, en það dóu bara alveg jafnmargir þar og venjulega, úr einhverju öðru og kannski engu skárra.

Geir Ágústsson, 5.2.2022 kl. 16:49

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Annars er magnað að sjá hvað tvísprautaðir eru skyndilega að hrynja hratt niður. Höfðu sprauturnar einhver neikvæð áhrif á ónæmiskerfi þeirra? Þeir sjá þetta líka í Ísrael í kjölfar þriðju sprautu og bráðum fjórðu.

Geir Ágústsson, 5.2.2022 kl. 16:49

9 identicon

Umframdauðsföll síðan janúar 2020 eru rúmlega tvöfalt fleiri í Svíþjóð en Nýja Sjálandi. Og flestir kjósa frekar að epli rotni en að nánir ættingjar deyi.

Ágiskanir um ástæður umframdauðsfalla án nokkurrar þekkingar á aðstæðum eru bara bull og þvæla. Og spádómar um framtíðina sem byggja ekki á neinu eru ekki gögn í þessu máli. Sama hvort það er met aðsókn ungmenna í skóla meðan á þessu stóð, minni drykkja, minna aðgengi að vímuefnum og færri slys hjá ungmennunum eða leiði, kvíði og þunglyndi yfir að þurfa ekki að koma sér í skóla á morgnanna í myrkri, rigningu og slabbi og hanga þar síðan allan daginn. Hér hafði svo covid nær engin áhrif á krabbameinsskimanir. Vandamálið þar tengdist covid ekkert. Talþroski skerðist ekkert frekar við grímunotkun en blindu. Börn læra jafnt að tala og skilja tal hvort sem þau sjá munn hreyfast eða ekki. 

Annars er magnað að sjá hvað þrísprautaðir eru nálægt ónæmi meðan færri sprautur og sérstaklega ósprautaðir hrynja hratt niður. Greinilega höfðu sprauturnar einhver jákvæð áhrif á ónæmiskerfi þeirra. Þeir sjá þetta líka í Ísrael í kjölfar þriðju sprautu og bráðum fjórðu sem þeir bjóða nú heilbrigðisstarfsfólki og öldruðum vegna góðs árangurs af þeirri þriðju.

Vagn (IP-tala skráð) 5.2.2022 kl. 18:18

10 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Mig vantar að sjá hvernig þú og þínir björguðu fleiri mannslífum en þið tókuð.

Geir Ágústsson, 5.2.2022 kl. 20:25

11 identicon

Hvað hefur skortur á sóttvarnaraðgerðum drapið marga?yell

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 5.2.2022 kl. 20:56

12 identicon

All I see people with masks cough like they have asthma or emphysema. How did it happen that Geir is an egoist? just because he has an opinion. He doesn't force anything on you. Take 4 or 5 vaccines. I think in all the books that the founders of the World Economic Forum have released. Your behavior is well described there. So you take and 10 vaccines and a place in your life qr passport is ready. And this is your world passport, which says which component is in your blood. You are just part of the experiment. But everything is fine, the main thing is that you will not get sick. Only you still have to wear a mask. In general, learn to breathe more slowly. Your children will already be born with altered serotonin 5-HT2A receptors. Even if they are tortured in the camps, they will not be able to resist. If they are born at all. In Iceland, I only see the vaccinated get sick. As well as all over the world. And don't forget that now you won't have the privilege of traveling if the state doesn't have access to your body. So yes, Put on a mask, Be quiet, breathe slowly, don't forget two meters (you are already in social Auschwitz) And most importantly, be afraid. Living in fear is the same as dying. It's okay to be stupid. It's okay to be a victim of LGBT propaganda or your government. It's good to be a degenerate. But if you injected yourself with a carcinogen 3 times. And put a gag on your mouth.Staying  2 meters from others( remember they think you are dirty,your cancer of this EARTH) What else do you want. what selfishness? what are you talking dear Vilhjalmur? I think it's praise for Geir when people like You Disagree with him.

I personally started wearing the FFP 3 at the beginning of December 2019. When people looked at me in Weird. At the end of April 2020, I understood what it was all about. Your DNA is being sold by private laboratories to China. And when they create a virus that will infect your family and your genome. If you do not agree with the policy of WORLD COMMUNIST PARTY OF CHINA. 

But you are not in danger. You are no longer human. Pfizer and Moderna having patents on your BODY. And you know what. These are the people like Klaus Schwab and the Rockefeller Family with Henry Kissender. Do you know why they have no respect and compassion for you? Because you allowed this to be done to your childrens. You really deserve everything that happens to you. But I feel sorry for you. You are people like me. And I pray that you wake up while you're still alive. Although 2022 is in the middle of summer when the biggest lockdown will come. And all the vaccinated will be PERMANENTLY declared infected and that in general they will soon say you are dying, and infected with something UNKNOWN ( like respiratory transmissible HIV ) but that's okay, here's a pill for you, now we'll tweak your DNA a little and get you fixed. 

Just continue to make selfies on your COVID TRACKING APP.Give your finger print and location. And " LIVE " in permament F E A R.

I am really sorry but all i can say in the end.

I think Geir writes here only because he feels sorry for you. Нour stupidity has no limits. Nothing more to say. For example, I don't write anything. I see scared people on the streets. People who voluntarily took poison into their bodies. I don't see their faces. They are so afraid. They are like zombies standing in the cold waiting for the "tests" In -4c. And their immune system dies from the injection. So you can accidentally die from the Flu. . 

Buy lemons. Eat healthy food. Exercise. Breathe clean air. Drink pure water. You are not in Russia or China.

What is wrong with you. Living in such fear because of a cold. In general, to live in fear is DEATH in itself. WORSE THAN ANY EBOLA.

Zheo (IP-tala skráð) 5.2.2022 kl. 22:42

13 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Geir.

Það er hámark fyndninnar að sjá Gúgla þýðanda rífast við rafeind en fátt finnst mér um varnir hjá þér þegar þú spyrð félaga Vagn hvort hann og hans líkir hafa tekið fleiri mannslíf en þeir björguðu. Jarðar svona við veruleikafirringu.

En það er tvennt, það fyrra spratt upp eftir að ég fljótlas hina meintu rannsókn sem Washington Times byggði frétt sína á.  Þú veist Geir að svona rannsóknir er heill iðnaður í Bandaríkjunum, megintilgangurinn að fóðra fólk sem TRÚIR, þær styðja til dæmis jarðmiðjukenninguna, eða að aldur jarðar sé um 10.000 ár, eða að steingervingafræðin séu fals, eða að geimverur hafi byggt píramída heimsins og svo framvegis. Tilgangurinn er að gefa þeim sem trúa skjól í meintum vísindum, að það upplifi sig ekki sem no Homo í nútímasamfélagi tækni og vísinda.  Hér á Íslandi gæti hugsanlegur markhópur verið fólk sem upplifði stærðfræði sem lokaða bók og fór því félagsvísindi, eða það trúir bulli eins og að náttúruleg kyn séu fleiri en tvö.

Spurning er því hrein og klár forvitni, í hvaða hóp ert þú Geir??, við hvaða aðra markhópa samsinnar þú þig fyrst að heilbrigð skynsemi fær þig ekki til að hrisa hausinn yfir vitleysunni??; "Lockdowns in the U.S. and Europe had little or no impact in reducing deaths from COVID-19, according to a new analysis by researchers at Johns Hopkins University. The lockdowns during the early phase of the pandemic in 2020 reduced COVID-19 mortality by about 0.2%, said the broad review of multiple scientific studies".  Eru engin takmörk á þeirri heimsku sem hægt er að fóðra viljuga á??

En þetta var ekki erindið, ég ætlaði ekki að nenna að þakka þér fyrir góða skemmtun þó glott og bros sé lífselixír mikill. 

Það var þessi setning þin, margleiðréttuð; "Flestir sem deyja af völdum veirunnar eru aldraðir einstaklingar.".

Þú veist að í delta faraldrinum sem braust út í USA síðasta sumar og teygði sig fram eftir vetri, dóu fleiri yngri en 60 en þeir sem voru eldri en 60 í fyrstu bylgjunni þegar veiran herjaði á þéttbýlar borgir og varnir engar fyrr en gripið var misseint til samfélagslegra lokana.  Þeir sem dóu í Delta bylgjunni voru að megninu óbólusett fólk, fæst með þekkta undirliggjandi sjúkdóma (það lét bólusetja sig).

Þú veist að veirusjúkdómur er hættulegur yngra fólki og börnum, þegar hann herjar á hluta lands en er samt í topp 5 yfir dauðsföll á landsvísu. (sbr ef hann herjaði í Garðabæ og Hafnarfirði en næði samt yfir topp 5 á Íslandi).

Þú veist að veirusjúkdómur sem herjar á helstu líffæri mannslíkamans getur verið lífshættulegur öllum og þó yngra fólk lifir hann af þá getur það verið skaddað til lífstíðar, býr við skerta heilsu og lífsgæði.

Þá veistu líka að stór hluti þeirra sem veiktust illa (af fólki yngra en 70) eiga líf sitt að þakka nútímalæknavísindum.  Heilbrigðiskerfið annar aðeins X fjölda, ef stjórnlaus faraldur fjölgar illa veiku fólki úr X í 10X, þá blasir við hrun heilbrigðiskerfisins, með þeim afleiðingum að fólk sem hefði lifað, myndi deyja.  Og það á líka við illa veikt fólk af völdum annarra sjúkdóma.

Þetta síðastnefnda veit ég að þú veist Geir af því að þú hefir ekki náð prófi í verkfræði ef þú réðir ekki við þessa rökhugsun að þekkja muninn á X og 10X.

En svo ég dragi það saman sem þú veist Geir, af hverju segir þú það sem þú veist að er rangt??

Og ef þú skyldir ekki vita það, þá er þetta samviskuspurning.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.2.2022 kl. 13:27

14 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Jón Magnússon er með puttan á þessu í pistli sínum í dag.

Frábær og svo sannnur.

6.2.2022 | 11:22

Mun einhver viðurkenna mistök?

Vísindamenn við einn fremsta háskóla í Bandaríkjunum "John Hopkins háskólann í Maryland" í samvinnu við vísindamenn í Danmörku og Svíþjóð hafa komist að þeirri niðurstöðu að samkomutakmarkanir, skólalokanir og aðrar harðar aðgerðir stjórnvalda í baráttunni við Kóvíd höfðu ekki tilætluð áhrif. Niðurstaðan kom vísindamönnunum á óvart, en hún var að e.t.v. hafi harðar aðgerðir stjórnvalda dregið úr dánartíðni um 0.2% í mesta lagi. Þá er ekki tekið með í reikninginn hvað ráðstafanir stjórnvalda ollu mörgum dauðsföllum. En þegar allt er tekið til alls er líklegt að aðgerðirnar hafi ekki bara verið unnar fyrir gýg heldur valdið meira tjóni en ávinningi.

Niðurstaða ofangreindrar rannsóknar sýnir líka að í þjóðfélagi sem býr við hátt menntunarstig og gott upplýsingastig, þá er hægt að treysta fólki til að meta áhættuna og haga sér samkvæmt því. Leið lýðræðis og upplýsinga er fær og það er ekki þörf á að svipta brorgarana grundvallarmannréttindum eins og gert hefur verið.

Í gær mældust fleiri Kóvíd smit á Íslandi en nokkru sinni fyrr, þrátt fyrir ýmsar ráðstafanir stjórnvalda. Frá því í nóvember hefur engu skipt hvort sóttvarnarráðstafanir væru hertar eða slakað á þeim. Smitin eru samt í hæstu hæðum. Sú staðreynd ein og sér sýnir að sóttvarnarstefan ríkisstjórnarinnar er mistök og þessi mistök kostar þjóðfélagið milljarða. Þessi staða rennir auk heldur stöðum undir meginniðurstöðun vísindarannsókna John Hopkins háskóla o.fl.

Vísindamenn og stjórnmálamenn, sem hafa beitt sér fyrir ströngum sóttvarnarráðstöfunum vegna Kóvíd munu rembast við að segja okkur að þetta sé allt saman tóm vitleysa, að þær fórnir sem færðar hafi verið á altari sóttvarnarlæknis og heilbrigðisráðherra í samtaka ríkisstjórn með stjórnarandstöðu, sem krafðist enn harðari ráðstafana, að segja okkur að þrátt fyrir að vísindin segi að þetta hafi allt verið mistök, að þá séu það ekki mistök heldur hafi haft stórkostlega þýðingu. 

Á sama tíma berast fregnir frá Ísrael, sem er leiðandi í bólusetningum og búið að bólusetja flesta með fjórða skammtinum, að dauðsföllum þar fjölgi þrátt fyrir þetta. 

Hver er þá niðurstaðan? 

Gripið var til frelsissviptingar fólks af því að tæknin leyfði það. Þessar frelsissviptingar reynast hafa verið óþarfar, það mátti treysta fólkinu til að gæta sín. Aðgerðirnar hafa kostað gríðarlega fjármuni, sem munu rýra lífskjör á komandi árum og auka fátækt. Engin mun bera ábyrgð á þessum geigvænlegu mistökum.

Þegar allt kemur til alls þá var þetta alltaf spurning um pólitík, en ekki vísindi eins og ritstjóri enska blaðsins "The Spectator" Fraser Nelson segir í grein sinni "The lockdown estapblishment will never accept that its disastrous policy failed". 

Þeir sem hingað til hafa gert hróp að okkur, sem höfum viljað ræða meint vísindi sóttvarnarlæknis og heilbrigðisráðherra og sagt að frjálsar umræður í frjálsu þjóðfélagi væru óvinafagnaður, ættu nú að viðurkenna, að óvinafagnaðurinn er sá mestur þegar stjórnmálastéttin, fjölmiðlaelítan og meintu vísindi þeirra sem ráða með ofurþunga ríkisfjölmiðila og annarra útiloka að eðlileg skoðanaskipti og gagnrýni eigi sér stað.

Já, það er spurning hvenær fólk viðurkennir mistök.

Sigurður Kristján Hjaltested, 6.2.2022 kl. 13:47

15 Smámynd: Ómar Geirsson

Nei Sigurður, Jón er ekki með þetta.

Fólk sem trúir þessari vitleysu;

"Lockdowns in the U.S. and Europe had little or no impact in reducing deaths from COVID-19, according to a new analysis by researchers at Johns Hopkins University. The lockdowns during the early phase of the pandemic in 2020 reduced COVID-19 mortality by about 0.2%, said the broad review of multiple scientific studies",

ætti ekki einu sinni að vera með réttindi að kunna reima skóna sína.

Svo alvarleg árás er þessi meinta rannsókn á raunveruleikann.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.2.2022 kl. 18:47

16 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gott og vel Ómar.

En umræðuna, hvort sem fólki líkar betur eða verr,

á að vera sjálfsagt að taka. 

2009 í USA þurfti bara 25 tilkynningar um alvarlegar

aukaverkanir vegna svínaflensu í 350 milljóna ríki

og það var nóg til að stöðva bólusetningar gegn þeirri veiru.

Í dag frá lyfjastofnun eru tölurnar svona..

Tilkynningar vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19

Tölurnar að neðan eru uppfærðar alla virka daga kl. 9:00.

Þetta er ekki frá falssíðu eða einhverju feik síðu.

Þetta eru upplýsingar beint af opinberri íslenskri

síðu. Hversu mikið þarf í viðbót til að uppfylla þarfir

þeirra sem reyna að gera lítið úr þeim sem eru að reyna

að benda á tölulegar staðreyndir.??

Með réttu hefði átt að stoppa þessar sprautugjafir fyrir löngvu

síðan. Meira að segjs Þórólfur er farin gegn sér miðað við það

það sem hann sagðið í upphafi farldursins.

Sigurður Kristján Hjaltested, 6.2.2022 kl. 21:03

17 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

þar sem lyfjastofnun sér til þess að ekki sé hægt

að afrita frá þeim á aðrar síður, þá eru tölurnar svona,,

Lyfjastofnun hafa borist 6,095 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19. Þar af 280 alvarlegar.

Sigurður Kristján Hjaltested, 6.2.2022 kl. 21:06

18 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Sigurður.

Ég ætla ekki að taka umræðu við þig um túlkun á tilkynningum um aukaverkanir vegna bóluefna, alveg eins og ég trúi og treysti bróður mínum varðandi allt sem snýr að bíl mínum (hann er bifvélavirki, ég er sauður), þá trúi og ég treysti ísraelskum vísindamönnum sem hafa rannsakað og metið hinar meintu aukaverkanir.  Íslenska síðan er vissulega rétt, en tilvísun þín í bólusetningar vegna svínaflensu eru örugglega teknar af einhverri lygasíðu sem kennd er við falsfréttir, kannski Fréttin.is??

Athugasemd mín varðaði það að mér fannst óþarfi að hæða Jón að falla í þann fúla pytt að trúa fjarstæðubulli, hvernig heldur hann að veirur smitist??, í gegnum tölvupóst eða feisbók??

Veirur lifa ekki sjálfstæðu lífi, þær þurfa hýsla, séu þeir ekki til staðar, þá deyja þær út.  Einmitt þess vegna virka þær aðferðir sem skera á smitleiðir þeirra, líkt og samfélagslokanir.

Spurningin snýst um hvort hægt sé að ná sama árangri án þess að grípa til slíkra drastískra aðgerða, dæmi um slíkt er lokun landamæra í Nýja Sjálandi, eða sambland af tiltölulega mildum aðgerðum á Íslandi ásamt stífri smitrakningu og sóttkvíar í kringum smit.

Tækjabúnaður eða mannskapur fyrir slíkt var ekki til staðar í allflestum ríkjum Evrópu eða USA, að reikna eitthvað annað út er kostuð heimska, loddaraskapur.

En jú, steingervingar heimsins eru falsanir, kolefnagreining uppspuni, og jörðin er miðja alheimsins, sönnunin er ótal ótal rannsóknir vestra, eða þannig.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.2.2022 kl. 21:26

19 identicon

Sæll Ómar, 

Nú er aðalatriðið hjá öllum þeim sem að hafa stutt allar þessar svokölluðu bólusetningar að reyna afneita öllum alvarlegum aukaverkunum, svo og til þess eins að þurfa ekki að bera einhverja ábyrgð.
Hjá heilbrigðisyfirvöldum hér á landi þá er það auk þess orðið mjög mikilvægt að reyna með öllum tiltækum ráðum að koma algjörlega í veg fyrir að fólk fá greiddar bætur. Eins og t.d. með því að skipa nefndir til þess eins þá að framleiða bæði lélegar niðurstöður og skýrslur, því að auðvita vilja heilbrigðisyfirvöld ekki viðurkenna einhver mistök.

Í þessum líka lélegu- og leynilegum kaupsamningum, þá er öll ábyrgð tekin af bóluefnafyrirtækjum varðandi alvarlegar aukaverkanir o.s.frv, svo og þar sem að fyrrverandi ráðherra samdi svona líka sérstaklega af sér, til þess eins þá að þóknast algjörlega bóluefnafyrirtækjum. Þannig að ekki er hægt að höfða mál gegn bóluefnafyrirtækjum, nú og aðeins hægt að krefjast takmarkaðra bóta hjá Sjúkratryggingum Íslands hér á landi (sjukra.is/slys/sjuklingatrygging/hvad-baetir-sjuklingatrygging/baetur-vegna-covid-19-bolusetningar/
  
Þess skal getið hér að Heilbrigðisyfirvöld höfðu reyndar vit á því að koma inn auknu fjárheimildum til Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), eða þar sem að stjórnmálamenn reiknuðu með að fjöldinn allur af alvarlegum aukaverkunum kæmi upp hér á landi eftir þessar svokölluðu bólusetningar, svo og þar sem að fyrrverandi heilbrigðisráðherra og fleiri sömdu svona líka sérstaklega af sér í þessum líka lélegu - og leynilegu bóluefnasamningum.

"Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000 (bótaréttur vegna bólusetningar)", eða hérna: "Komi aukaverkanir við bólusetningu vegna COVID-19 fram má því búast við fleiri atvikum. Til viðbótar verður að nefna að kostnaðarmatið er ófullkomið að því leyti að ómögulegt er að vita hvort einhverjar og þá hverjar aukaverkanir bólusetningar vegna COVID-19 kunna að verða. Að lokum þarf að hafa í huga að bætur samkvæmt skaðabótalögum eru metnar til framtíðar og eru því hærri því yngri sem einstaklingurinn er, sem metinn er. Drómasýki í kjölfar Pandemrix-bóluefnisins greindist fyrst og fremst hjá ungum einstaklingum og voru bætur til hvers einstaklings því háar, en bætur voru greiddar í níu málum af 17 umsóknum sem bárust stofnuninni.
Við áætlun á bótagreiðslum er miðað við að upp komi svipaður kostnaður vegna hvers bótaskylds máls og vegna drómasýki, sem tengd var Pandemrix-bóluefninu, en tvöfalt fleiri verði bólusettir. Við áætlun á rekstrarkostnaði hjá SÍ er miðað við að talsverður fjöldi umsókna berist vegna COVID-19 bólusetningar. Athuga þarf að heildarkostnaður vegna bráðabirgðaákvæðisins gæti orðið miklum mun meiri en hér er áætlað. SÍ berast um 150–180 umsóknir um bætur úr sjúklingatryggingu á hverju ári. Hvert mál felur í sér gagnaöflun og mat á bótarétti auk mats á umfangi tjóns og upphæð bóta. Málsmeðferð hvers máls er því umfangsmikil. Stöðugildi í sjúklingatryggingu eru nú 4–5. Í kostnaðarmatinu er reiknað með að bæta verði við tveim viðbótarstöðugildum lögfræðinga til tveggja ára og tveimur stöðugildum fulltrúa. Umfang gæti þó jafnvel krafist fleira starfsfólks. Að þessu virtu er talið að kostnaður ríkissjóðs vegna frumvarpsins geti orðið kr. 128.228.383 á ári næstu tvö árin" (https://www.althingi.is/altext/151/s/0463.html). 



"34,337 Deaths 3,120,439 Injuries Following COVID Shots in European Database as UK Public Data Show 35 Deaths 213 Hospitalizations Among Booster Triple" (healthimpactnews.com/2021/34337-deaths-3120439-injuries-following-covid-shots-in-european-database-as-uk-public-data-show-35-deaths-213-hospitalizations-among-booster-triple-vaccinated/)

"Doctors and COVID-19 Vaccine Injured Testify in Washington D.C. to Crimes Against Humanity; CDC, FDA, NIH, Fauci are No Shows"

"666 Cases of Heart Disease in 12 to 17-Year-Olds After COVID Shots; Less than 2 Cases Per Year Following All Vaccines for Past 30+ Years"



"A group of medical doctors and the leader of the Turkish Welfare Party issue a grave warning to the world. They show photos of babies born with severe genetic birth defects, like a baby with a tail, one eye, covered in hair or with multiple arms and legs. This is what could happen, as the result of the gene therapies that are injected into our people.."

"Fact is that many thousands of babies are born dead, after the pregnant mothers were injected. Something so disastrous happened to the unborn babies in the womb, that killed them."

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 7.2.2022 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband