Börn eru að lamast, fá hjartabilanir og deyja í kjölfar sprauta

Í frétt segir:

Þó svo að börn séu tal­in í minni hættu á al­var­leg­um veik­ind­um í kjöl­far Covid-19 smita, eru áhyggj­ur af því að Delta af­brigðið gæti leitt til al­var­legri til­fella. Einnig er litið á það að bólu­setn­ing­ar barna séu lyk­il­atriði til að halda skól­um opn­um og hjálpa til við að binda enda á heims­far­ald­ur­inn.

Hér stendur varla steinn yfir steini nema fyrstu orðin: Börn eru talin í minni hættu á alvarlegum veikindum í kjölfar smits á SARS-CoV-2 sem leiðir til COVID-19 sjúkdómsins.

Allt annað er hrein og klár þvæla.

Delta-afbrigðið er búið að hringsóla í milljónaríkjum í nokkra mánuði undir mikilli vöktun og gögn um áhrif þess á börn, innlagnir og alvarleg veikindi liggja fyrir. Engin spálíkön nauðsynleg eða vangaveltur og getgátur. Gögnin eru til og hvað segja þau?

Jú, að deltan smiti vissulega fleiri en er engu hættulegri en fyrri afbrigði fyrir börn. Þetta er einföld stærðfræði: Ef líkur á einhverju alvarlegu eru 1 á móti milljón og þú ert með afbrigði sem smitar tvær milljónir á meðan hið fyrra smitaði eina þá færðu 2 alvarleg tilvik. Sömu líkur en fleiri tilvik. Deltan er ekki ástæða til að sprauta börn með efnum sem eru þeim hættulegri en veiran.

En þarf ekki að sprauta börn til að halda skólum opnum? Aftur nei! Fjölmörg dæmi eru um opna skóla í gegnum allan faraldurstímann og aftur eru gögnin til. Engin spálíkön nauðsynleg eða vangaveltur og getgátur. Börn geta stundað skóla án þess að baka afgangi samfélagsins vandræði. Þetta gilti vorið 2020 (íslenskir barnaskólar voru þá opnir án grímu og sprautu) og líka haustið 2021, eða hafa menn gleymt því sem menn vissu þó fyrir einu og hálfu ári síðan?

Ef kennarar og ræstitæknar skólanna telja sig þurfa sprautu til að mæta í vinnuna þá þeir um það. Þá erum við að tala um fullorðið fólk sem má reykja, drekka, taka lán og þiggja sprautu.

Hvatar lyfjafyrirtækja til að framleiða örugg og vel prófuð lyf hafa hingað til verið bundnir við orðspor þeirra og traust lækna á þeim, og svo hafa auðvitað verið gerðar miklar kröfur til prófana og öryggis. Ekkert slíkt aðhald er lengur til staðar. Nú skal beljan mjólkuð á meðan hún er með nóg af fé skattgreiðenda til að maula. 

Börnin eru í stórhættu vegna sprautuefnanna og blaðamenn ættu hreinlega að skammast sín þegar þeir bera á borð rannsóknir tóbaksfyrirtækjanna á ágæti reykinga og rannsóknir lyfjafyrirtækja á ágæti eigin lyfja.

Hættum að fórna heilsu, menntun og félagslífi barna! 


mbl.is Pfizer segir bóluefnið öruggt fyrir ung börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvern lita foreldrarnir á sem sinn LEIÐTOGA? 

"AÐ EFTIR HÖFÐINU DANSI LIMIRNIR?".

Jón Þórhallsson, 21.9.2021 kl. 08:43

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Þessi svokölluðu "bóluefni" eru skelfileg, hvernig sem litið er á þau, og nú er Lyfjastofnun búin að tilkynna um 8 fósturskaða eftir þessar sprautur!

Kristín Inga Þormar, 21.9.2021 kl. 09:07

3 identicon

Sæll Geir,

Takk fyrir þessa grein, en því miður þá höfum við Medical Fasisma hér á landi, þar sem að lyfja- og bóluefnafyrirtækin hafa svona mikil áhrif, og þar sem að Þórólfur karlinn minnist á einhverjar niðurstöður aftur og aftur í fjölmiðlum, svo og passar svona líka vel uppá að minnast ekki á hvaðan niðurstöðurnar eru komnar. Nú og auk þess þar sem þessir ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðlar hér spyrja aldrei, hvaðan þessar eða aðrar niðurstöðurnar eru komnar?
Hér er bókstaflega allt gert fyrir þessi lyfja- og bóluefnafyrirtæki, og eins og segir þá sömdu heilbrigðisyfirvöld hér sérstaklega af sér, svo og tóku á sig alla ábyrgð fyrir lyfja-og bóluefnafyrirtækin, þannig að það er ekki hægt að lögsækja þau. Nú er aðalatrið hjá heilbrigðisyfirvöldum og ríkisstjórninni að banna fólki, að fá að sjá alla þessa kaupssamninga yfir bóluefnin í tilraunarskyni, eða svo almenningur sjá ekki hversu ömurlega heilbrigðisyfirvöld og ríkisstjórnin stóðu að málum, þar sem allar réttur var tekin af fólki til lögsækja þessi lyfja- og bóluefnafyrirtæki. Hjá þessum læknum þá virðist það vera mjög mikilvægt að umboðsmenn lyfja-og bóluefnafyrirtæka hér borgi áfram þessa "Læknadaga" sem haldnir hafa verið í Hörpu árlega, svo og borgi áfram fyrir þá þessar árshátíðir og fleira. Fjölmiðlar hér vilja ekki tala um þetta allt saman, hvað þá minnast á allar þessar alvarlegu aukaverkanir, heldur bara öskra smit, smit og aftur smit, svo og gera allt til þessa að troða inn þessum bólusetningum án upplýsinga um alvarlegu aukaverkanir.
KV.
           
No description available.


No description available.

openvaers.com/covid-data

openvaers.com/openvaers

Alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll eftir bólusetningar (Vaccine Adverse Event Reporting System VAERS Results)



"24,526 Deaths, 2,317,495 Injuries Following COVID Shots – EU Database" https://www.thelibertybeacon.com/24526-deaths-2317495-injuries-following-covid-shots-eu-database/

The EudraVigilance database reports that through September 11, 2021 there are 24,526 deaths and 2,317,495 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.9.2021 kl. 12:22

    4 identicon

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.9.2021 kl. 16:53

    5 identicon

    "Helgi Örn Viggósson gerði þessa samantekt um nýja rannsókn á hjartavöðvabólgu hjá börnum eftir Covid bólusetningu

    Ný rannsókn um tíðni hjartabólgna hjá börnum eftir kóvid bólusetningu.

    Rannsóknin fjallaði um börn 12-15 ára, einblíndi á hjarta-tengdar aukaverkanir og ein megin niðurstaðan var að heilbrigðir strákar á þessum aldri eru allt að 6.1 sinnum líklegri til að þurfa spítalavist með hjartabólgu (pericarditis/myocarditis) eftir mRNA sprautu heldur ef þeir sýktust af veirunni".  Sjá samantekt um nýja rannsókn á hjartavöðvabólgu hjá börnum eftir Covid bólusetningu.

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.9.2021 kl. 21:46

    6 Smámynd: Geir Ágústsson

    Sem betur fer erum ég og barnsmóðir mín sammála því að þessar sprautur fari aldrei í okkar börn.

    Geir Ágústsson, 22.9.2021 kl. 08:23

    7 Smámynd: Jón Þórhallsson

    Sæll Geir!

    Hver er "ljóti kallinn" í þínum augum í þessu sambandi?

    Jón Þórhallsson, 22.9.2021 kl. 10:24

    8 Smámynd: Geir Ágústsson

    Jón,

    Ég veit nú ekki ef það er einhver einn ljótur kall. Vissulega var verið að rannsaka veirur á rannsóknarstofu og gera þær sterkari. Það þurfti að fjármagna. Síðan slapp veiran og þá þurfti að þegja um það þar til það var ekki hægt. Einhver í Kína ákvað að búa til ofsahræðslu með því að sviðsetja fólk á förnum vegi að hreinlega detta niður deyjandi. Það var svo ákveðið að breiða þann ótta út um allan heim og lýsa yfir heimsfaraldri. Svo þarf auðvitað að viðhalda þeim ótta. Þá þarf að tala upp sprauturnar og hvetja fólk til að fá sér slíkar. Og auðvitað að hafna öllum meðferðum með þekktum lyfjum sem enginn græðir á. 

    Við erum svo okkar eigin verstu óvinir með því að leyfa óttanum að blómstra. 

    Geir Ágústsson, 22.9.2021 kl. 11:25

    9 Smámynd: Jón Þórhallsson

    "Sem betur fer erum ég og barnsmóðir mín sammála því að

    þessar sprautur fari aldrei í okkar börn".

    ---------------------------------------------------------------------

    Er það Þórólfur sem að er á rangri leið í lífinu

    með því að blása til sóknar með þessum bólusetningar-óþverra; eða hvað?

    Jón Þórhallsson, 22.9.2021 kl. 11:54

    10 Smámynd: Geir Ágústsson

    Jón,

    Ég hef ekki séð mörg merki þess að hann fylgist á nokkurn hátt með rannsóknum og reynslu milljónaríkja. 

    Geir Ágústsson, 22.9.2021 kl. 12:01

    11 Smámynd: Jón Þórhallsson

    Er þá ekki Alma landlæknir samsek í þessu öllu; að þínu mati

    þar sem að hún samþykkir alla SPRAUTU-GJÖRNINGANA 

    án þess að deppla auga?

    Jón Þórhallsson, 22.9.2021 kl. 12:22

    12 identicon

    Sæll Jón,

    "Hver er "ljóti kallinn" í þínum augum í þessu sambandi?"

    Við erum að tala um fleiri en einn hér á landi, því að hér hafa menn auk þess verið í því að segja við heilbrigt fólk, að það sé veikt (eða smitað) með bæði óáreiðalegum og ónákvæmum PCR skimunum til þess eins þá að halda uppi farsóttarstiginu með hræðsluáróðri. Ofan á allt þegar að dómstólar í Þýskalandi, Hollandi, Austurríki og Portúgal hafa allir úrskurðað þessar PCR skimanir séu alls EKKI við hæfi að nota til að greina covid-19, svo og hefur þetta PCR-drasl EKKI nein lagalegan og vísindalegan grundvöll til að byggja á varðandi allar þessar lokanir, samkomutakmarkanir o.s.frv. Þar sem að EKKI er til nein Gold Standard yfir þessar PCR skimanir og greiningar. Fyrir utan það þá eru þessi PCR próf sérstaklega keyrð hér á 40 snúningum og/eða keyrð yfir 35 snúninga hringrásar mögnunar þröskuldinn til þess eins að geta framkallað allt að því 97% falskar niðurstöður(Clinical Infectious Diseases ciaa 1491 (28. sept. 2020), https://doi.org/10.1093/cid/ciaa1491), eða svo þessir líka ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðar hér geta verið i því að öskrað smit, smit og aftur smit. Aðalmálið var ekki bara að gera hann Kára og Íslenska Erfðargreiningu/Amgen ennþá ríkari, heldur einnig til að koma inn þessum svokölluðu bólusetningum. Eins og segir þá hafa heilbrigðisyfirvöld hér verið í því að segja við heilbrigt fólk, að það sé veikt (eða smitað) eða allt til þess að halda uppi hræðsluáróðrinum og farsóttarstiginu.
    KV.



     

    Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.9.2021 kl. 20:21

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband