Hvernig væri að "veita" aðgang að frjálsum markaði í staðinn?

Norðmenn eru ágætt fólk. Þeir þéna vel á olíu sem rennur inn í vel smurða vél kapítalismans og nota afraksturinn til að bora jarðgöng og kaupa hluta- og skuldabréf út um allan heim. Eitt vantar þeim samt: Hagfræðiskilning.

Ungbarnadauði er ekki bein afleiðing af skorti á þróunaraðstoð. Hann er fylgifiskur sósíalisma. Þróunarríkin hafa ekki sama aðgang að heimsmarkaði og hin ríku Vesturlönd (og mörg Asíu- og Suður-Ameríku-lönd). Slæmt, og algjörlega á ábyrgð Vesturlanda.

Þetta er samt bara hálf sagan sögð. Þróunarríkin sjálf eru í mörgum tilvikum sinn versti óvinur. Þau eru mörg hver umkringd eigin tollamúrum og viðskiptahöftum (nánar um það hér). 

Það sem þróunarríkjum heims vantar er ekki bara plástur á sárið í formi norskra olíupeninga, heldur fríverslun og kapítalismi. Norðmenn gera sennilega sitt fram til ársins 2015, en hvað svo? Hvenær á að þrýsta á stjórnvöld þróunarríkja að fella niður varnarmúra sína í viðskiptum, samhliða því að fella niður vestræna varnarmúra, og leyfa ungbarnadauða að detta niður á vestræna tölfræði nánast af sjálfu sér?


mbl.is Norðmenn veita milljarði dala til baráttu gegn ungbarnadauða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Ungbarnadauði fylgifiskur sósíalisma? Miðað við tollamúrana hérna inn til Íslands, þá ætti ekki eitt einasta barn að vera á lífi hér undir ofur sósíalista stjórn Sjálfstæðisflokssins, sem hefur ekki snert tollamúra íslands síðustu 16 ár, nema þá til að hækka þá.

.

Þróunarríkin hafa mjög góðan aðgang að stærsta markaði heims í gegnum 'Everything But Arms' initiative Evrópusambandsins, en helvítis sósíalistarnir í Bandaríkjunum eru ennþá með tollamúrana sína uppi!

.

Held samt að það séu göt í þessari kenningu þinni, og mögulega vita þeir í Noregi bara ágætlega í hausinn á sér þegar kemur að hagfræði.

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 26.9.2007 kl. 23:28

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Þegar allt kemur til alls er Ísland meðal frjálsustu landa heims þegar kemur að viðskiptum við útlönd. Samanburður við Afríku er því skot út í loftið.

Yfirleitt er stærsti markaður hvers lands löndin í kring en ekki fjarlæg tæknikrata-bákn þar sem saltinnihald má ekki vera nema svo og svo til að hljóta náð fyrir augum Evrópubúa. Afríkulöndin sjálf tollaleggja hvort annað í miklum mæli og drepa þannig innri markað svæða sinna, sem er mun meira afgerandi en aðgangur að fjarlægum mörkuðum.

Evrópubúar eru líka duglegir að senda niðurgreidda framleiðslu sína inn á Afríkumarkað og drepa þarlenda bændur í verðstríði.

Ég vísaði í ágæta skýrslu sem ætti að tölfræðivæða fróðleiksfúsa aðeins.

Blaðsíða 25 í þessari skýrslu er einföld (og vissulega einfölduð) framsetning á sambandi kapítalisma (efnahagslegu frelsi) og ungbarnadauða, svona ef einhver er í vafa um að samband sé hægt að finna þar á milli.

Sveinn Elías, ef þú hefur ekkert annað en blótsyrði og upphrópanir til málanna að leggja þá vil ég vinsamlegast biðja þig um að skilja ekki eftir athugasemdir á þessari síðu.

Geir Ágústsson, 27.9.2007 kl. 07:22

3 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Til að byrja með; þessi frétt á vísi og annarstaðar hefur greinlega farið framhjá þér, sem sýnir að frelsi á íslandi sýnir er í 109. sæti af 141 þegar kemur að frelsi il alþjóðaviðskipta, og situr þar með löndum á borð við Pakistan, Marokkó og Úganda. Ástæður eru of háir tollar og innflutningshöft, einkum í landbúnaðarmálum. Árið 2004 vorum við í 87. sæti og því 77. árið 2003. Frelsi hvað?

Þrátt fyrir að matvæli í Evrópusambandinu eru niðurgreidd (eins og í Bandaríkjunum, enn þó minna en hér á Íslandi eða í Noregi), þá eru matvælin samt mun dýrari en þau sem framleidd eru í þróunarlöndunum.. ég hef ekki séð nein haldbær gögn um hvernig þróunarlöndin séu að verða undir á heimamarkaði í samkeppni við vesturlönd í matvælaframleiðslu.

Þú mátt ekki misskilja mig þannig að ég vilji ekki frjálsan markað, ég er mjög fylgjandi honum.. ég er bara á móti þeim ranghugmyndum um frelsi í viðskiptum á Íslandi sem Frelsi.is menn virðast vera með, og þeim sleggjudómum sem þeir eru með gagnvart ESB.. þess vegna pikka ég svona í þig ;)

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 27.9.2007 kl. 09:54

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég er mjög móttækilegur fyrir pikki. Pikk heldur manni á mottunni.

Þér að segja þá er danskur kjúklingur ódýrari í Ghana en innlendur kjúklingur þar í landi. Hljómar alveg fáránlega en þetta sá félagi minn með berum augum. Mér finnst það segja ansi mikla sögu (þótt ég hafi því miður ekki tíma til að leita að skriflegum heimildum núna).

ESB og Ísland eru engin englaríki. Tæknilegar hindranir eru til staðar í miklum mæli sem halda varningi þróunarríkjanna úti. Þó er eitthvað búið að breytast til batnaðar á seinustu árum. Evrópskur markaður er þó hvergi nærri "opinn" fyrir varning þróunarlandanna, jafnvel ekki þótt tollskráin segi 0%.

Vandamálið er einnig að finna innan þróunarríkjanna sjálfra, sem mörg hver framfylgja enn stefnu verndartolla og þá helst gagnvart nágrönnum sínum.

"Developing countries' average tariff rates are more than three times higher than those of developed countries, and other types of trade barriers, such as antidumping measures, are on the increase." (heimild, síður 5-6)

Geir Ágústsson, 27.9.2007 kl. 11:43

5 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Jámm, eins langt og ég veit þá gildir þetta; "In February 2001, the Council adopted the so-called "EBA (Everything But Arms) Regulation” (Regulation (EC) 416/2001), granting duty-free access to imports of all products from least developed countries without any quantitative restrictions, except to arms and munitions.".. og það gagnvart 50 fátækustu ríkjum heims, og vonandi fer þeim fjölgandi. Það eru margir góðir punktar við ESB, t.d. eru tollar inn og út úr þeim löndum sem eru að hríðlækka í allar áttir.. enda þarf tollabandalag ekkert að vera neikvæður hlutur, þar sem það getur verið notað til að fella þá niður :)

Frjáls markaður er málið, og því stærri sem markarðurinn er því betra. Vonandi mun Afríkubandalaginu takast jafn vel til að brjóta niður tollamúrana þar eins og hefur tekist innan Evrópu, og gera þannig löndin það háð hvor öðru að stríð verða óhugsandi - og gera þau það efnahagslega vel stæð að hlutir eins og hungursneyð og dauði úr algengum sjúkdómum verði ekki upp á Norðmenn komið.

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 27.9.2007 kl. 17:11

6 Smámynd: Geir Ágústsson

"Frjáls markaður er málið, og því stærri sem markarðurinn er því betra."

Amen! Það sem iðulega gleymist er að tollamúrar og viðskiptahöft virka svipað á hagkerfið og grjótburður í höfn. ENGINN er betur settur með viðskiptahöft af neinu tagi.

Ég stenst ekki freistinguna að berja aðeins á ESB úr því ég skrifandi (feitletrun er mín):

"Brazil began to export frozen salted chicken to Europe in 1998, as a way to conserve the product better. As a result, these exports jumped from 41 thousand tons in 1997 to 183 thousand tons in 2001. The growth in Brazilian sales to the region led the Europeans to change the rules of the game and alter the product's classification, thus raising the import tax rate." (tengill)

Tæknilegar hindranir af þessu tagi eru vonandi fáar og langt á milli, en þetta er hin nýja kynslóð viðskiptahafta sem þarf að berjast gegn, nú þegar almennur skilningur virðist vera kominn á skaðsemi styrkja og miðstýrðs áætlunarbúskapar. 

Geir Ágústsson, 27.9.2007 kl. 17:44

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Sósíalísk ríki = fátæk = ekki mikil úrræði til að kaupa dýr bólusetningarlyf.

Kapítalísk ríki = rík = hægt að finna fé fyrir bólusetningarlyfjum án þess að fórna máltíð eða húsaskjóli.

Fyrir hafsjó af "furðulegum" hlutum eins og þetta þá mæli ég með nýjustu skýrslunni um efnahagslegt frelsi í heiminum. Ég er viss um að lestur hennar mun gera þig svo gáttaðan að þú munt hafa margar spurningar fyrir mig til að svara, t.d. hvernig stendur á því að kapítalismi leiðir til þess að vinnandi börnum fækkar niður í nánast ekkert og meðalævi fólks rýkur upp úr öllu valdi.

Geir Ágústsson, 27.9.2007 kl. 22:59

8 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Auðvitað er hægt að finna leiðinleg dæmi um viðskiptahindranir ESB eins og allra annara tollabandalaga/ríkja. Það eru alltaf hagsmunaaðilar sem ná sínu í gegn, en það eru tímabundnar aðgerðir. Hinsvegar verður því ekkert neitað að með tilkomu Evrópusambandsins hefur stærsti frjálsi markaður sem hefur mjög svipað umhverfi fyrir öll fyrirtækin sín, og stór hluti af honum notar aðeins eina mynt! Þetta rífur burt stærstu hindranirnar sem eru í viðskiptum, og væri örugglega mjög hollt fyrir okkur Íslendinga að taka fullan þátt í ;)

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 28.9.2007 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband