Samsæriskenning: Raforkuskortur á Íslandi er meðvituð aðgerð

Mér var að detta í hug samsæriskenning - kenning um samsæri. Ég trúi henni ekki sjálfur en komi í ljós að hún er rétt þá kæmi það mér ekki á óvart. Annað eins hefur nú gerst og að áhrifamikil öfl hittist á fundi og leggi á ráðin til að maka eigin krók á kostnað fjárhags og heilsu almennings.

Kenning mín er svohljóðandi: Raforkuskortur og skerðingar á rafmagni á Íslandi eru leiðir til að afla tekna fyrir ríkissjóð.

Byrjum á því sem blasir við:

Landsvirkjun er að framleiða gríðarlegar arðgreiðslur í ríkissjóð að því marki að ráðherra ríkisfjármála kallar þær lykilþátt í ríkisfjármálum næstu ára. Með öðrum orðum: Galtómur ríkissjóður þarf á þessum arðgreiðslum að halda.

Landsvirkjun fær ekki að virkja, þ.e. eyða milljörðum í að byggja upp innviði rafmagnsframleiðslu á Íslandi, þ.e. draga á hagnað sinn til að fjárfesta. Það er í boði ríkisins. Annað sem er í boði ríkisins er aukin raforkunotkun og slit á vegum með því að liðka fyrir sölu rafmagnsbíla. Hvoru tveggja stuðlar að raforkuskorti. Hvoru tveggja þrýstir á hærra raforkuverð. Hærra raforkuverð þýðir aukinn hagnaður Landsvirkjunar. Tilviljun? Kannski. Það, eða óvitaskapur. Hvort er verra?

Landsnet, sem er hið opinbera fyrirbæri sem dreifir hinu sjaldgæfa rafmagni, framleiðir líka argreiðslur í opinbera sjóði. Landsnet lokkaði stóra raforkunotendur á Austfjörðum til að skipta út olíu fyrir rafmagn og hefur svo þurft að svíkja afhendingu á því rafmagni ítrekað undanfarin misseri, og fyrirséð að það haldi áfram. En það gerir ekkert til. Þeir notendur borga ekki hæsta raforkuverðið í skiptum fyrir óstöðuga raforku. Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur bendir á að hægagangur í framkvæmdum til að losa um fyrirsjáanlega flöskuhálsa hafi leitt til mikilla vandræða og útgjalda. 

En með því að framkvæma ekki og búa til skort og hærra verð er hægt að skila hagnaði og arðgreiðslum. Þetta gildir í tilviki Landsvirkjunar og Landsnet. Varan - raforkan - er skert í bæði framleiðslu og dreifingu og þeir sem framleiða og dreifa fá fyrir vikið meira í vasann sem ríkið getur svo hirt. Hvatinn til að auka framleiðslu og koma henni til viðskiptavina er öfugur: Því minna sem er framleitt og þeim mun meira sem er hvatt til aukinnar notkunar og því verr sem gengur að koma framleiðslunni til viðskiptavina, því meiri hagnaður. Lykilþættir í afkomu ríkissjóðs njóta góðs af. 

Er þetta ekki alveg ljómandi góð samsæriskenning?

Ég ítreka að ég trúi því ekki að einhver aðili sitji á bak við tölvuskjá og kalli á þessar þjáningar fyrir fólk og fyrirtæki. En ef svo er þá kæmi það mér ekki á óvart.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hljómar mjög kunnuglega,gæti verið lýsing á íslenska fiskveiðikerfinu sem byggist á skortstöðu.

Björn. (IP-tala skráð) 19.4.2023 kl. 21:03

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Frasinn sem kemur upp í hugann hér er "idiot plot"

https://en.wikipedia.org/wiki/Idiot_plot

og hér: https://tvtropes.org/pmwiki/pmwiki.php/Main/IdiotPlot

Samsæriskenningin hljómar rétt í okkar eyru, því við erum vanir því að yfirvöld séu annað hvort gjörsamlega greindarskert eða hrein illmenni.  Eða bæði.

Auðvitað myndu allir græða lang mest á að virkja bara meira og auka iðnað.  Þannig myndi fást margfaldur gróði á við hvað sem fæst með því að hækka bara verðið upp að sársaukamörkum.

Vandamálið er að það er engin leið að sjá hvort einhver er hálfviti eða illmenni, byggt eingöngu á illvirkjum hans.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.4.2023 kl. 21:53

3 identicon

Það eina sem vantar í samsæriskenninguna er hvað þeir sem ákvarðanirnar taka græða. Ríkissjóður tekur engar ákvarðanir og stjórnendur græða persónulega ekkert. Það er ekki eins og þetta sé einkafyrirtæki þar sem stjórnendur fá feita bónusa þegar hagnaður er mikill. Hvers vegna að taka áhættuna á skít og skömm, brottrekstri og jafnvel fangelsisvist þegar enginn er ábatinn?

Vagn (IP-tala skráð) 20.4.2023 kl. 04:05

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Ásgrímur,

Ljómandi skilgreining. Sennilega er ekkert samsæri í gangi en ástandið þannig að það gæti allt eins verið það.

Geir Ágústsson, 20.4.2023 kl. 04:44

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Sammála því. Forstjóri Orkustofnunar græðir enga peninga á að tefja málsmeðferð eða þegar sala rafmagnsbíla eykst eða þegar Austfirðir, Reykjanes og Vestmannaeyjar fá ekki rafmagn. Bjarni Ben fær aðeins meira til að leika sér með en sömu laun. Sennilega gæti aldrei tekist að stilla meðvitað saman svona samsæri. En niðurstaðan er sú sama.

Geir Ágústsson, 20.4.2023 kl. 05:00

6 Smámynd: Júlíus Valsson

Orkuauðlindin er matarhola fyrir suma í nafni "loftslagsmála og orkuskipta". Þetta er í raun vel útfært samsæri og þjóðin gapir af aðdáun og kaupir sér niðurgreiddan rafbíl. Ertu annars komin(n) með "smartmæli". Það er ekki langt í sæstrenginn. 

Júlíus Valsson, 20.4.2023 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband