Hjálp til ađ skilja hvađ er á seyđi í Úkraínu

Í svolítilli frétt um átök í Úkraínu rekst ég á umfjöllun sem mér finnst ekki alveg hanga saman. Blađamađur segir til dćmis:

Fyrr í mánuđinum greindu rúss­nesk yfir­völd frá ţví ađ ţeir myndu draga úr sókn á höfuđ­borg Úkraínu, Kćnu­garđ, og ein­beita sér ađ ţví ađ ná völdum í sjálf­skipuđu lýđ­veldunum Do­netsk og Lúhansk. Hé­röđin tvö hafa veriđ undir stjórn ađ­skilnađar­sinna sem ađ­hyllast Rúss­land frá árinu 2014.

Hérađs­stjóri Do­netsk, Pavlo Kyry­len­ko, segir rúss­neska her­menn skjóta vís­vitandi á al­menna borgara og eyđi­leggja inn­viđi af á­settu ráđi.

Hérna er sem sagt rússneski herinn fyrir hönd rússneskra yfirvalda ađ reyna ná völdum í tveimur héröđum, jafnvel til lengri tíma. Og gerir hvađ til ađ styrkja stöđu sína? Skýtur vísvitandi á almenna borgara og eyđileggur innviđi!

Af hverju? 

Til ađ búa til andspyrnuhreyfingar međal almennra borgara? Til ađ ćsa upp óbreytta borgara? Til ađ eyđileggja orđspor sitt enn meira? 

Ef Rússar hafa náđ völdum á tilteknum svćđum, eins og blađamađur segir, ţá er nákvćmlega engin ástćđa til ađ eyđa byssukúlum í almenna, óbreytta borgara. 

Blađamađur heldur áfram:

Enn er barist í Maríu­pol en fjöldi al­mennra borgara og her­manna hafa leitađ skjóls í Azovs­tal stál­smiđjunni. Rúss­neski herinn hefur gert nokkrar at­lögur ađ smiđjunni en hefur fengiđ leiđ­beiningar um ađ passa ađ enginn komist út.

Ţetta held ég ađ sé haugalygi og jafnvel áróđursbragđ sem ađ auki stangast á viđ ađrar fréttir í vestrćnum fjölmiđlum. Ef rússneska hernum vćri alveg sama um óbreytta borgara ţá vćri hann búinn ađ teppaleggja ţessa verksmiđju og raunar Úkraína alla međ sprengjum úr einhverjum fullkomnustu og stćrstu sprengjuflugvélum heims sem Rússar ráđa yfir. Raunar er rússneska frásögnin - sú ađ veriđ sé ađ reyna hvetja óbreytta borgara til ađ yfirgefa svćđiđ - mun trúverđugri. 

Ţessi áhersla úkraínskra yfirvalda og herdeildarinnar á svćđinu á ađ verja til dauđa nákvćmlega ţetta svćđi á miđju áhrifasvćđi Rússa er stórfurđuleg. 

Og ađ lokum:

Tćp­lega 5,3 milljón manns hafa flúiđ Úkraínu frá ţví stríđiđ hófst, sam­kvćmt flótta­manna­ráđi Sam­einuđu ţjóđanna.

Ţessu má alveg trúa. Ţađ er samt ánćgjulegt ađ lesa í dönskum fjölmiđlum ađ ţađ séu miklu fćrri flóttamenn ađ koma til Danmerkur en búist var viđ og var búiđ ađ undirbúa og ađ konur og börn séu ađ snúa aftur til Úkraínu svo börnin komist í skóla og geti umgengist feđur sína. 

Kannski ţađ versta sé bráđum gengiđ yfir. Vonandi. Og Rússar ađ fara hypja sér heim.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband