Langur er armur sóttvarnarlæknis

Alltaf þegar er búið að innleiða ströngustu sóttvarnaraðgerðir hingað til er talað eins og aldrei megi taka vægari skref.

Þríeyki fengu fálkaorðu fyrir tíma sóttvarnarfangelsa, andlitsgríma og þrefaldrar skimunar á landamærum.

Hvernig í ósköpunum gátu þríeyki þegið fálkaorðu fyrir slíkt kæruleysi?

Þríeyki fengu fálkaorðu fyrir að tala um að fletja út kúrvur og verja heilbrigðiskerfið fyrir of miklu álagi. Nú er óbeint talað um að reyna útrýma veirunni með öllu.

Hvernig í ósköpunum gátu þríeyki þegið fálkaorðu þegar þau töldu að flatar kúrvur væru nóg?

Sóttvarnaryfirvöld eru að lengja arm sinn og eru núna beinlínis farin að heimta lagasetningu sem meinar fólki frá því að sinna sóttkví á eigin heimili, í eigin landi. Fyrir ári síðan hefði slíkt verið kallað fáránlegt en dropinn holar steininn og bráðum sættir almenningur sig við sóttvarnaraðgerðir að eilífu. 

Nema auðvitað almenningur spyrni við fótum.


mbl.is Úrskurður geti hleypt sóttvörnum í uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Geir karlinn, 

Já, það rétt hjá þér þetta er mjög sérstakt allt saman, en það er greinilegt að Þórólfur vill halda uppi þessum Medical Fasisma svona áfram og áfram, svo og með að notast við óáreiðanlegar- og ónákvæmar PCR- prófanir til að halda þannig uppi þessari svokallaðri farsótt, sem að 99,7% tilfella fólk lifir af.

KV.

        

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 6.4.2021 kl. 15:16

2 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 6.4.2021 kl. 17:27

3 identicon

Það ætti að kæra þessi yfirvöld hér eins menn hafa gert í Noregi: 

May be an image of one or more people and text that says 'I Was Only Following Orders' 'Crimes Against Humanity' EB Norwegian Govt Charged Under Nuremberg Code for False Pandemic, Violation of Human Rights'

"Govt of Norway Indicted for Crimes Against Humanity Over 'Planned False Pandemic' ~~ sjá hérna : https://wp.me/p2X3AR-N1j - og https://twitter.com/thetlbproject

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 6.4.2021 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband