Fólk fær veirur. Að halda annað er tálsýn

Svokallaður árangur Íslands í að læsa fólk inni heima hjá sér svo það fái ekki veiru eða smiti ekki veirum er enginn árangur. Miklu frekar er sú staðreynd að það er mögulegt að læsa fólk inni á eigin heimilum gott dæmi um undirlægjuhátt gagnvart yfirvöldum.

Með fámennum undantekningum þolir fólk alveg að fá veirur og læknast einfaldlega af þeim. Læknar sjá svo um að laga hina. Því fyrr sem yfirvöld átta sig á því, því betra. Því fyrr sem almenningur áttar sig á því, og hættir að láta girða sig af eins og sauðfé, því betra.

ÁHandþvottur er alltaf góð hugmynd. Að hósta í ermina sömuleiðis. Áfram gakk.


mbl.is Hver er staðan á þessu öllu saman?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Þú veist það Geir að þetta er dálítið heimskt.

Og ég efa að undirliggjandi hagsmunir skýri þá heimsku.

Þú ert ekki gaurinn sem fær borgað fyrir að segja að Maxinn sé öruggur.

Svo núna ertu ráðgáta.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.7.2020 kl. 16:40

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Menn geta haft skoðanir án þess að fá borgað fyrir þær eins og Hádegismóri en það skilur Miðflokkurinn að sjálfsögðu engan veginn. cool

Annar ykkar er einfaldlega frjálshyggjumaður en hinn íhaldsmaður og einangrunarsinni.

Margir þeirra sem voru íhaldssamastir og lengst til hægri í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum kjósa nú Miðflokkinn.

Stofnaðir voru frjálslyndi flokkurinn Viðreisn, sem er hægrisinnaður flokkur, og Miðflokkurinn, sem er íhaldssamastur og lengst til hægri af þeim flokkum sem sæti eiga á Alþingi.

Og þar vilja engir aðrir mynda ríkisstjórn með Miðflokknum, ekki einu sinni Flokkur fólksins. cool

Þorsteinn Briem, 7.4.2014:

Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt frá árinu 1929 fyrst og fremst verið kosningabandalag frjálslyndra og íhaldsmanna.

Fólk sem kýs Sjálfstæðisflokkinn aðhyllist einstaklingshyggju, frjálslyndi, frjálshyggju eða íhaldsstefnu.

Meira kraðak er nú varla til í einum stjórnmálaflokki og samstaðan oft lítil, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn margsinnis klofnað og brot úr flokknum myndað ríkisstjórn með öðrum stjórnmálaflokkum. cool

Þorsteinn Briem, 3.7.2020 kl. 17:48

3 Smámynd: Örn Einar Hansen

Eins og ég hef sagt áður, velkominn til Svíþjóðar.  Hið svokallaða "góða fólk", fylgist um nasistaríkið Kína, sem er að myrða miljónir manna í landinu ... þeir eru verri en nasistar þýskalands. En þú heirir ekki eitt einasta "bofs" í þykistu gyðingunum á íslandi ... þeir láta hátt um "einhverjar" kerlingablækur á íslandi, sem aldrei hefur verið eitt eða neitt ... en þegar kemur að raunverulegum málefnum, eins Ughyuir búum, falun gong og öðrum minnihlutahópum í Kína, sem eru geltir ... meinað að eignast börn, haldið í fangabúðum í miljónatali ... og jafnvel innyfli þeirra tekin úr þeim lyfandi, til að veita einhverjum drullosokki ... nei, þá heirist ekki bofs.

Hátt er látið um "umhverfismálin", en nú kemur í ljós að allt þetta umhverfis þvaður er bara kínverskur áróður, svo að þeir geti fengið undanþágur í Parísar sáttmálanum, til að spylla umhverfi jarðar, á meðan þeir sjálfir hagnast á kostnað allra annarra.

Kína, læsir fólk inn á heimilum sínum ... þeir taka járnhurðir og logsjóða þær fram fyrir dyr fjölbýlishúsa svo að allir innandyra komist aldrei aftur út, og deyji drottni sínum þar innan dyra. Þeir fara síðan einu sinni í viku, til að athuga hvort einhver sé enn á lífi.

Þetta er staðreynd ... það á gera nákvæmlega þetta sama við alla þess þykistu sérfræðinga, bæði heima og heiman ... láta þá fá það óþvegið, að verða logsjóðaðir inni á heimilum sínum og komast aldrei aftur út lifandi.

Þetta á líka að gera við öll sendiráð Kína, erlendis.

Örn Einar Hansen, 3.7.2020 kl. 20:04

4 identicon

En Einar Örn það er ekki hægt að draga alla Svía í sama dálk. Sumir telja jafnvel að bíllausir bæir séu ekki æskilegir sbr.

https://www.svt.se/nyheter/haller-vi-pa-att-odelagga-vara-stadskarnor

Grímur (IP-tala skráð) 4.7.2020 kl. 17:01

5 Smámynd: Örn Einar Hansen

Grímur, alveg sammála. Það er alltaf svartur sauður í hverju fé. Og það er jafn nargur sauðir í sænsku fé, eins og íslensku.

Hver er þá munurinn? Af hverju eru Íslendingar að loka samfélaginu, á meðan Svíar halda því opnu? Ég geng hér í Maxi og kaupi inn, enginn er með grímu fyrir andlitinu ... enginn heldur 2 metra regluna. Allir eru sammála um að virða frelsi einstaklingsins.  Kínverjsar segja "wei guo ren bu pa si" ... útlendingar eru ekki hræddir við að deyja.

Vandamálið er ekki hvort við séum hræddir við að deyja, eður ei. Heldur sú staðreynd að við vitum að bera grímu, hefur enga aðstoð. Engin gríma mun hjálpa okkur ... hún mun kanski hjálpa öðrum "gegn" okkur, enn ekki okkur sjálfurm. Andstætt því sem kínverjar halda ... þeir telja að gríman muni bjarga þeim sjálfum.

En þrátt fyrir að hér í Svíþjóð finnst ansar, asnakjálkar, apar og aumingjar eins og allst staðar annars staðar. Höfum við samt sem áður fylgt mynstri frjálsræðis og alþýðu. Við notum ekki herinn til að þvinga fólk, við gefum þeim fyrirskipanir, sem hver og einn einstaklingur er sjálfur ábyrgur fyrir að fylgja eftir. Einstaklingurinn er ábyrgur fyrir heilbrigði sínu ... ekki ríkið. Við erum lýðræði ... ekki einræði skrýmsla, eins og Xi.

Örn Einar Hansen, 4.7.2020 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband