Brexit-bólan

Svo virðist sem flest ríki stundi nú ákveðið Brexit-ferli: Taki stjórn á eigin landamærum og takmarki það sem þau telja sig þurfa að takmarka.

Má kannski uppnefna vírusinn Brexit-bóluna?


mbl.is Leggur til takmarkanir á ferðum til ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta er orðið að geðbilun. Og nú á að loka Evrópu fyrir útlendingum, Evrópu sem WHO segir að sé nú orðin miðja útbreiðslunnar. Hvað næst?

Á sama tíma sýna niðurstöður ÍE að margfeldisstuðullinn er amk. 14 smit á móti einum greindum með hefðbundnu aðferðunum. Það þýðir að dánarhlutfallið á heimsvísu er um 0,3%, ekki 3,6%.

Þorsteinn Siglaugsson, 16.3.2020 kl. 21:11

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Talnasérfræðingar heimsins reikna út frá ýmsum forsendum. Allar tölur um útbreiðslu og dreifingu eru hér með ómarktækar. Hvergi er reiknað eftir sömu formúlu. Hvergi er neinn staðall yfir mælda v.s. hausatölu.

 Stormur í vatnsglasi, eða raunveeuleg plága. Ekki nokkur leið að segja til um það lengur. Enn síðri leið fyrir almenning að átta sig á stöðunni. Hvað hefur dauðsföllum fjölgað mikið í dag, miðað við sama dag í fyrra?

 Sá sem telur sig til þess um kominn að sanna eitt eða neitt, vinsamlegast stígi fram!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 17.3.2020 kl. 02:31

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Brexitbólan gæri verið réttnefni. Ofsabólan er sennilega meira réttnefni. Vonum bara að hún endi í brexit. Þaðer komið nóg af bólum.

 Góðar atundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 17.3.2020 kl. 02:34

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Halldór,

Góður punktur - dánartíðni núna miðað við hefðbundnu inflúensuna 2019? Það væri athyglisvert.

En ég er ekki að gera lítið úr alvörunni. Ríki eru að loka landamærum til að verja heilbrigðiskerfi sín og hægja á dreifingunni svo það séu til gjörgæslurúm fyrir alla sem þurfa. 

(Að ríki eins og Suður-Kórea, með líflegan einkamarkað í heilbrigðisþjónustu, hafi ekki þurft að gera það sama en samt náð tökum á vandamálinu er efni í ritgerðir framtíðar.)

En af sömu ástæðu fór Bretland út í Brexit: Til að verja velferðarkerfi sitt fyrir innflytjendum. 

Og ef það er í lagi núna að loka landamærum vegna veiru munu þá ekki fleir ríki sjá að það eigi líka að fá að gera vegna innflytjenda?

Heimurinn verður kannski ekki sá sami þegar þessi veira er farin.

Geir Ágústsson, 17.3.2020 kl. 07:27

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þetta ástand sýnir nú best hversu gagnslítið það er að reyna að stýra viðbrögðum við svona faraldri eingöngu á landsgrundvelli.

Þorsteinn Siglaugsson, 17.3.2020 kl. 11:59

6 identicon

Það er einungis almenningur í öllum löndum sem getur hægt á útbreiðslunni og það vill jú enginn vera þekktur fyrir að hafa gefið skít í leiðbeiningar og dreift vírusnum í kjölfarið því það væri einsog hún Þórhildur sagði við sína þegna

Det synes jeg ikke, man kan være bekendt

Grímur (IP-tala skráð) 17.3.2020 kl. 20:41

7 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Held reyndar að stýring á hvers lands grundvelli sé það eina í stöðunni. Ekki lætur dani norðmann segja sér fyrir verkum, frekar en fransmaður dana segja sér að sitja eða standa í þessum keingumstæðum.

 Þjóðríkið er vonandi að endurheimta sinn stall, á löngu tímabæran kostnað fjölmenningarkjaftæðis og hindurvitna um hluti sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Nauðsyn landamæra hefur sennilega aldrei fyrr verið eins augljós og í dag. Gott að jafnvel innmúruðustu lönd globalismans og yfirráðasækninnar séu að átta sig á því. Frú Merkel er full sein með ræðuna sína. Göbbels var á undan.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 17.3.2020 kl. 23:36

8 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það er þetta með talnafræði um hitt og þetta eins og Wuhan kínversku veiruna, þá er máltækið sem kemur upp í huga minum sem er oft mótað i byrjun í bókhalds skóla:

Figures can lie and liars can figure.

Aðal fagið mitt í háskóla var Accounting.

Kveðja frá Montgomery Texas

Jóhann Kristinsson, 19.3.2020 kl. 18:36

9 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég held að flestir séu sammála um að opin landamæri séu af hinu góða en að fleiri séu að átta sig á því að eftirfarandi er líka mikilvægt að það sé hægt að loka landamærunum til að verja það sem er innan þeirra, t.d. útflæði á velferðarpeningum, innflæði á sjúkdómum og trúarofstæki osfrv.

Alveg rétt eins og maður sem segir:

Ég tek gjarnan við gestum og finnst gaman að fá gesti en ég hef líka rétt til að fleygja þeim út ef þeir míga á gólfið mitt eða stöðva þá í dyrunum ef mig grunar að þeir ætli að ræna mig og rota.

Geir Ágústsson, 20.3.2020 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband