Þrjú fyrirtæki á leið úr landi?

Fyrirtækjum sem ganga vel skila hagnaði, a.m.k. ef velgengnin nær lengra en í vasa fjárfesta. Eigendur þeirra greiða sér gjarnan arð. Sumir efnast. Og þá segir einhver (raunveruleg tilvitnun):

"Eins og reynsla hinna norðurlandanna sýnir fæst góðæri með aukinni skattheimtu hjá stórgróðafyrirtækjum, hátekju-og stóreignafólki og skynsamlegri nýtingu tekjuaukans til meiri jafnaðar."

Einnig:

"Það er örugglega gott að losna við suma [hátekjumenn] úr landi. Þeir mergsjúga þá síður íslenskan almenning á meðan."

Nú hafa þrjú íslensk fyrirtæki birst á lista yfir fyrirtæki sem vaxa hratt. Eigendur þeirra vonast væntanlega til að því fylgi fjárhagslegur ágóði, enda er mikið á sig lagt til að byggja upp arðbæran rekstur. En fari svo að þeim takist að efnast á hugmyndaauðgi, viðskiptaviti og útsjónarsemi þá mæta jafnaðarmennirnir með heygafflana og vilja rýja þá inn að skinni.

Eru þrjú fyrirtæki á leið úr landi?


mbl.is Þrjú íslensk fyrirtæki vaxa hraðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ef þau eru ekki í einhverju sem verður vinsælt að stunda - eins og túristaiðnaðurinn er nú, þá gæti þetta flogið undir radar.

Mér skilst að Bónus hafi komist á legg þannig - enginn tók eftir þeim fyrr en þeir félagar voru orðnir alveg gríðarlega ríkir.  Þá var of seint að koma þeim á hausinn.  Fyrirtækið orðið alþjóðlegt.

Ásgrímur Hartmannsson, 8.4.2017 kl. 23:52

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Um að gera að setja 93 1/2 skatta á öll fyrirtæki sem græða, svo að það sé hægt að hækka laun þingmanna og ríkisstarfsmanna um 55% á næsta ári.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 9.4.2017 kl. 00:38

3 identicon

Eitthvað fylgjast menn illa með ef þeir halda að fyrirtæki séu að íhuga flutning úr landi vegna hárra skatta.

Skattar á fyrirtæki á Íslandi eru með því lægsta sem þekkist í þróuðum ríkjum. Fyrirtækjaskattar eru hér 20% en td 35-47% í Bandaríkjunum.

Það er að sjálfsögðu hin illræmda íslenska króna sem er sökudólgurinn. Lágir fyrirtækjaskattar mega sín lítils þegar krónan er í uppsveiflu eins og undanfarið.

Að sjálfsögðu er gott að losna við þá úr landi sem stuðla að hruni krónunnar og notfæra sér það með því að hirða eignir almennings á gjafverði. Það bætir bæði lífskjör og stuðlar að minni ójöfnuði.  

Ásmundur (IP-tala skráð) 9.4.2017 kl. 09:00

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Álögur á íslensk fyrirtæki eru svo miklar og flóknar í framkvæmd að sérstakir ráðgjafar geta gert sér mat úr því að greiða úr flækjunni

En það er réttilega á það bent að ríkiseinokun á gjaldmiðlaútgáfu á Íslandi hefur sína ókosti. 

Það er mótsögn fólgin í því að vilja bæta lífskjör og um leið auka jöfnuð.

Geir Ágústsson, 10.4.2017 kl. 09:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband