Vefþjóðviljinn fyrr og nú

Besta íslenska vefritið og jafnframt það elsta starfandi er Vefþjóðviljinn (www.andriki.is). Vefþjóðviljinn hóf útgáfu 24. janúar 1997 og hefur komið út daglega síðan þá eða í 20 ár samfleytt. Geri aðrir betur!

Núna verða breytingar á útgáfunni því hún verður ekki lengur dagleg. Vonandi verður hún samt einhver.

Vefþjóðviljanum má hrósa fyrir svo margt að ég veit ekki hvar ég á að byrja.

Hann kynnti mig t.d. fyrir austurríska skólanum í hagfræði

Hann setur ítrekað dægurmálaumræðuna í annað og kannski breiðara samhengi en gengur og gerist í oft einsleitri umfjöllun annarra fjölmiðla.

Hann hnýtir í stjórnmálamenn og aðra sem vilja eyða fé annarra.

Hann grefur ofan í mál sem fáir aðrir sýna áhuga fyrr en löngu seinna.

Hann stendur vörð um einstaklingsfrelsið og eignaréttinn. Frjálshyggjan á Íslandi stendur í eilífri þakkarskuld við Vefþjóðviljann. 

Hann hefur í stuttu máli reynst mér ómetanlegt veganesti síðan ég byrjaði að opna heimasíður á netinu. Og vonandi heldur hann áfram að vera það þótt útgáfudögunum fækki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband